Fálkinn - 07.12.1956, Page 6
4
FÁLKINN
i ..............
Conrad Hilton -
gistihnsajarlinn
Sundlaugin við Beverley Ililton er uppljómuð á kvöldin — líka í botninn!
Istanbul Hilton heitir þetta 350 gesta hótel, sem Hilton reisti í Istanbul, fyrir
120 milljón krónur.
Conrad Iiilton og Zsa Zsa Gabor eru mestu mátar, þó að þau séu skilin. Lík-
lega hefir henni þótt hann nokkuð gamall.
margir Ameríkumenn ferðast
þangað og eyða miklu af pening-
um. Árið 1953 byggði hann
Castellana-gistihúsið í Madríd og
í fyrra lúxushótel í Instanbul.
En það var ekki nema byrjun.
Hann veit að Pan American Air-
ways flytur núna 1.800.000 far-
þegar árlega milli New York og
Evrópu og gerir ráð fyrir að far-
þegatalan verði komin upp í fjór-
ar milljónir árið 1959. Það þýðir
aukna eftirspurn eftir dýrum
gistihúsum í Evrópu. Og Hilton
veit flestum öðrum betur um
kröfur Bandaríkjamanna og
hvaða þægindi þeir meta mest
þar sem þeir gista.
Waldorf Astoria í New York
er frægast allra Hilton-gistihús-
anna vestan hafs. Þar ræður
ríkjum gistihússtjórinn Philippe,
sem er heimsfrægur fyrir að
halda samsæti þannig að þau
hijóti að verða skemmtileg. Þar
er séð fyrir öllu, líka því að láta
eitthvað koma gestunum á óvart,
sem þeir hafa gaman af eða finnst
tilbreyting í. „Við sjáum fyrir
öllu,“ segir Philippe. ,,Ef einhver
doði kemur í samkvæmið látum
við t. d. einn þjóninn missa glasa-
bakka á gólfið. Þá færist fjör í
tuskurnar.“
Philippe kann allt og hefir
þekkingu á góðum mat og vínum.
Hann fer sjálfur til Evrópu á
hverju ári til þess að kaupa vín-
in, sem Waldorf Astoria notar, og
velur þá ekki af verri endanum.
Og hann fylgist með vínunum
frá því að þau eru gerjuð. Ef
honum líst vel á einhvern árgang
þá festir hann kaup á miklu af
„Sá ætti að koma til Islands!"
sagði einhver, þar sem verið var
að tala um Conrad Hilton, mann-
inn sem byggir gistihús um víða
veröld, en þó fyrst og fremst í
Ameríku. Því að Hilton er orð-
inn heimsfrægur fyrir að byggja
og reka gistihús, en þau eru svo
dýr, að það er helst á færi mill-
jónamæringanna að nota þau. En
þeir eru svo fáir á Islandi, að
líklega væri réttara að spara eitt-
hvað af öllum þeim íburði, sem
Hilton sóar í gistihúsin sín.
Gistihúsajarlinn Conrad Hilton
er af norskum ættum, og getur
rakið ætt sína aftur til ársins
1676. Þegar hann var á ferð í
Noregi í sumar sem leið sagði
hann frá því, að í ætt sinni væri
kona, sem héti Mati Pétursdóttir
Allergodt, og rak hún veitinga-
sölu, en bannaði þó áfengi, spila-
mennsku og dans í sínum húsa-
kynnum. Kannske er gestgjafa-
blóð Hiltons frá henni.
En faðir Hiltons fluttist frá
Noregi sex ára og foreldrar hans
settust að í New Mexico og þar
fæddist Conrad Hilton á jóladag-
inn 1887 í bænum San Antonio
Faðir hans átti lítið hús þar, en
byggði við það eitt herbergi fyrir
hvert barn sem hann eignaðist.
Þegar herbergin voru orðin átta,
en bömin farin að týnast burt,
breytti gamli maðurinn húsinu í
gistihús .Og undir eins og Conrad
Hilton kom heim úr fyrri heims-
styrjöldinni keypti hann sér lítið
gistihús í Texas. Næstu árin leigði
hann og byggði 18 gistihús víðs
vegar um landið á árunum fyrir
1930. En svo kom kreppan og
hann varð að hafa hægt um sig.
Árið 1937 gat hann farið að haf-
ast handa á ný og keypti þá Sir
Francis Drake Hotel í San
Francisco. Tveimur árum síðar
seldi hann það aftur og græddi
kringum fimm milljón krónur á
versluninni. Hann þykir framsýnn
í verslunarsökum og fljótur að
sjá gróðurmöguleikana, þótt í litlu
sé. T. d. voru í móttökusalnum
í Waldorf Astoria tvær súlur
neðan úr gólfi og upp í loft. Hil-
ton var fljótur að leigja þær fyr-
ir auglýsingar. I öðru gistihúsi
sem hann keypti sá hann krók,
sem ekki var notaður til neins.
Þar innréttaði hann bar, og jók
umsetninguna með þúsund doll-
urum á dag. Og fleira því líkt
mætti nefna.
Conrad Hilton vinnur ekki á
kvöldin. Þá vill hann hvíla sig á
að skemmta sér, og hann hefir
at'ar gaman af að dansa, þótt hann
sé nær sjötugu, og lítur kvenfólk-
ið hýru auga. Einu sinni var hann
sagður trúlofaður Sonju Henie,
en það reyndist lygi. Hins vegar
lenti hann í því á fullorðins aldri
að giftast Zsa Zsa Gabor. Þau
kynntust í Hollywood og dönsuðu
saman jitterbug og csardas. I
miðjum dapsinum stansaði Zsa
Zsa og sagði: „Mér líst vel á þig.
Ég held að ég elski þig. Ég vil
giftast þér.“ Hilton hló — hann
grét af hlátri. En þremur vikum
síðar voru þau gift og Zsa Zsa
komin á græna grein, því að
Hilton borgaði alla hennar reikn-
inga og lét allt eftir henni. Og
þegar þau skildu gerðist það í
mesta bróðerni og Hilton gaf
henni 350 þúsund dollara, auk
þess sem hann jós yfir hana dýr-
gripum og setti hana á eftirlaun
og bauð henni sex mánaða ókeyp-
is dvöl í La Plaza-lúxusgistihús-
inu í New York.
Conrad Hilton fór að reisa dýr
gistihús í Evrópu vegna þess hve