Fálkinn - 07.12.1956, Side 7
FÁLKINN
5
kemur inn forstofumegin“ og
stundum fer likt hjá Hilton.
Hann opnar nýtt hótel í sömu
andránni og síðasta hönd er lögð
á það. Sjónarvottur segir frá því,
að þegar Hilton Istanbul var opn-
að í fyrra sást varaforseti fyrir-
tækisins vera að bera rúm upp í
herbergin á efri hæðunum og
framkvæmdastjórinn að festa nið-
ur gólfdúkana — og konur ailra
helstu starfsmannanna að hengja
upp gluggatjöld og myndir og búa
um rúm. Og Philippe var sjálfur
í eldhúsinu. Hann hafði komið
fijúgandi frá New York daginn
áður. Það fyrsta sem hann tók
eftir var að pönnur vantaði í eld-
húsið og náði hann í tyrkneska
eirsmiði til að búa til 20 pönnur
í snatri. Þeir voru að þessu alla
nóttina og hver panna kostaði um
S50 krónur.
Þegar Hilton kom inn í gisti-
húsið með hina tignu gesti sína
frá U.S.A. og Evrópu, gat eng-
iiin séð að þarna hafði allt vaðið
á súðum nokkrum klukkutímum
áður. Hilton hafði alls ekki séð
húsið sjálfur fyrr en hann kom
þarna í vígsluna, og kostaði það
þó um 120 milljón krónur. En
hann hafði gefið sér tíma til að
læra ræðuna sína utan að — á
tyrknesku.
Nú hefir Hilton orð um að
reisa gistihús í Noregi, líklega á
Holmenkollen, til þess að sýna í
verki að hann sé ættrækinn. Þó
er það ekki fullráðið ennþá. Ann-
að situr í fyrirrúmi, svo sem gisti-
hús í Vestur-Berlín og Róm. *
Útiveitingastaðurinn við Caribe Hilton, San Juan, Pue'rto Rico er eins og
aldingarður og fólkið klæðist að suðrænum sið.
honum fyrirfram og kemst þá að
kjörum, sem ekki fást eftir að
sami árgangurinn er orðinn fræg-
ur fyrir gæði.
Beverley Hilton, við Holly-
wood er eitt mesta nýtískugisti-
húsið, sem Hilton hefir reist. Þar
er stór sundlaug, upplýst í botn-
inn — og vitanlega að ofanverðu
líka. Þá er Istanbul Hilton ekki
ósjálegt gistihús. Það stendur við
sjóinn og sér yfir Bosporus og
yfir til Litlu-Asíu úr gluggunum.
En samtals á Codrad Hilton 27
lúxusgistihús, með 32.748 her-
bergjum, svo að þessi gistihús
hans eru engin smásmíði. Hann
á Plaza og Waldorf Astoria i
New York, Beverley Hilton í
Hollywood, Caribe Hilton í Puerto
Rico, mörg gistihús í Mexico og
gistihús í Cairo og Madrid. I
smíðum hefir hann sex gistihús,
cg áformað hefir hann að reisa
gistihús í London, París og Róm.
Hjá Hilton gerist allt með
amerískum hraða, og allt hnit-
miðað niður. Það er orðtæki um
undirbúning mannfagnaðar, að
„þvottakonurnar þvo sig út um
bakdyrnar þegar konungurinn
Víkingaskipið ferðbúið á brennustaðinn og blysberarnir í kring.
„UP-HELIY-AA^ þorroblót Hjoltlendingfl
Beverley Hilton er bygging, sem fólkið í Hollywood te'kur eftir, ekki síst
þegar hún er uppljómuð. Þar e'r einn salurinn þiljaður með 28.000 ostruskelj-
um og þykir mikil gersemi.
Hjaltland eða Shetlandseyjar eru
afskekkt mannabyggð, ])ó að þær
liggi við miklar siglinga- og flugleið-
ir. Þar er norrænasti kynstofninn í
Bretaveldi og þar ríkja fornir nor-
rænir siðir, sem nú eru gleymdir jafn-
vel i Noregi, Færeyjum og íslandi.
Því að Hjaltlendingar hafa orðið fyrir
furðu litlum áhrifum sunnan frá hús-
bændum sínum i Skotlandi og Eng-
landi, þó að eigi sé nema 200 mílna
sigling þangað frá Aberdeen eða 120
mílna loftlína frá norðurströnd Skot-
lands. Og Englendingar sem spurðir
eru um Hjallland vita lítið um það,
nema helst að þar eru litlir hestar,
eigi stærri en tvævetur tryppi íslensk.
Og þó hafa Hjaltlendingar verið undir
skoskri og enskri stjórn í nær 500
ár. Fram til 1471 voru eyjarnar norsk-
ar, en Skotar tóku þær af Dönum
upp í skuld.
Eyjarnar eru um 75 mílur á lengd
frá norðri til suðurs og eru i mörkum
Norðursjávar og Atlantshafsins. Þar
cr vindsamt og fremur ófrjór jarð-
vegur, enda er búskapurinn með forn-
legu sniði. Eyjaskeggjar lifa einkum
á fiskveiðum (síld), en þær eru ekki
arðvænlegar og því flýr unga fólkið
land, stúlkurnar fá sér vinnu á Skot-
landi en piltarnir ráðast á ensk skip,
og margir Hjaltlendingar hafa getið
sér frægðarorð í sjóhernaði.
Eitt af því sem vitnar um hinn nor-
ræna víkingauppruna Hjaltlendinga
cr miðsvetrarbrenna þeirra. „Up-
Helly-Aa“ er þetta þorrablót kallað
og svipar til álfadansanna hér á landi.
Er þessi hátið haldin síðasta þriðju-
daginn i janúar til að fagna því að
daginn fer að lengja. Þetta er blysför
og brenna, sem fer árlega fram í Leir-
vík, höfuðstað Hjaltlands.
Fyrir hátíðina er gerð eftirliking
af víkingaskipi og allir þátttakendur
gera sér búninga og grimur, og fer það
með leynd hvernig þeir líta út, svo
Framhald á bls. 14.
Þannig er víkingaforinginn eða álfa-
kóngurinn klæddur — með öxi, skjöld
og hjálm og í gljáandi spangabrynju.