Fálkinn


Fálkinn - 16.01.1959, Qupperneq 2

Fálkinn - 16.01.1959, Qupperneq 2
2 FÁLKINN Hý difgyrlcgöíön^onfl d Hótel Borg Ung ensk dægurlagasöngkonn, Mary Marshall, hefir verið ráðin til að syngja með danshljómsveitinni á Hótel Borg á kvöldin næslu fjórar vikurnar. Mary Marshall, sem oft er kölluð „Kiss Girl“ í heimalandi sínu, er 24 ára gömul og hefir stundað dægur- lagasöng um sjö ára skeið. Hún liefir sungið á ýmsum þekktum skemmti- stöðum í Englandi, t. d. hinum kunnu næturklúbbum í London: Storkclub og Keyhole; einnig sungið á skemmt- unum breskra hermanna á Kýpur. Hótel Borg hefir ráðið Mary Mars- hall til að syngja með dansliljóm- sveitinni sex kvöld í viku (milli kl. 9 og 11,30 á kvöldi) fram í febrúar- byrjun. Syngur ungfrúin alls konar dans- og dægurlög, auk þess sem hún sýnir stutt kabarettatriði á hverju kvöldi. Stjórnandi hljómsveitarinnar á Hótel Borg er nú Björn B. Einarsson, sem leikur á básúnu og harmoniku. Aðrir í hljómsveitinni eru: Stcinþór Steingrímsson pianóleikari, Erwin Köppen bass.aleikari og Torfi Bald- ursson gítarleikari. flrió m leiö vor Loftleiðam mjög hogststt Árið 1958 ferðuðust 20.702 farþegar með flugvélum Loftleiða. Er ])að tæp- lega 1.800 farþegum fleira en árið 1957 og nemúr aukning farþegatöl- unnar um 7%. Vöruflutningar jukust um svipaða hundraðtölu, en póst- póstflutningar minnkuðu títillcga. Atls voru flutt um 250 tonn af vörum. Flugkílómetrar urðu 3 miltj. og 270 þúsund, farþegakilómetrar um 121 milljón. Aukningin ein, sem orðið liefir á farþegafjölda og vörumagni, segir ckki nema lítið eitt um það, sem mestu máti skiptir i flugrekstrinum, cn það er hversu tekist hefir að nýta flugkostinn, því að sá þáttur er jafn- Framhald á bls. 15. Orðsending til sjómanna Fyrir rúmu ári byrjuðum við að framleiða nýja gerð af sjóstökkum. Þeir eru saumaðir með nælongarni og síðan rafsoðnir, sem algjörlega útilokar leka. Sjóstakkar þessir eru léttir og mjúkir jafnframt því sem þeir eru sér- staklega sterkir og hafa reynst mjög vel. Þeir sjómenn sem enn hafa ekki reynt þá, ættu að reyna hina ágætu kosti þeirra sem fyrst. Merki stakksins er MAX, og fæst í flestum verslunum um land allt. Verksmiðjan MAX h.f* Söluumboð Davíð S. Jónsson & Co. h.f. Brýnið fyrir börnunum að fara varlega með eldinn. Það hefir margsannast, sem máltækið segir: OFT VELDUR LÍTILL NEISTI STÓRU BÁLI. Athugið, að hafa tryggingar yðar ávallt í samræmi við verðlag'. ALMENNAR TRYGGINGAR H.F. Austurstræti 10, Reykjavík Umboðsmenn um allt land.

x

Fálkinn

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fálkinn
https://timarit.is/publication/351

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.