Fálkinn


Fálkinn - 16.01.1959, Page 3

Fálkinn - 16.01.1959, Page 3
FÁLKINN 3 Kristar (Baldvin Halldórsson), Arnold (Valur Gíslason) og Brita (Herdís Þorvaldsdóttir). „DÓMARINN“ EFTIR VILHELM MOBERG Fyrsta nýja viðfangsefni Þjóðleik- hússins á þessu ári er „Dómarinn“, sjónleikur eftir sænska skáldið Vil- iielm Moberg. Þetta er ádeiluleikrit þar sem lýst er baráttu einstaklings- ins við steinrunnið og miskunnarlaust émbættismannavald. Höfundurinn mun við samningu leikritsins hafa haft í huga tvö dómsmál í Svíþjóð, sem vöktu feiknaathygli þar í larídi. Einstaklingurinn er að þessu sinni ungt skáld, Kristar að nafni, sem hef- ir dvalið erlendis nokkur ár, en falið á meðan Cunning dómara umsjá eigna sinna. Þegar Kristar svo kemur heim með unnustu sinni, Britu, kemst hann að því, að hann stendur uppi nær eignalaus. Fjárhaldsmaðurinn, sjálf- ur dómarinn, hafði hreinlega rænt liann. Þegar ungi maðurinn liyggst leita réttar síns vísar hver frá sér þar sem málið verði ekki flokkað undir em- bættissvið viðkomandi persónu. Hon- um er ennfremur bent á að hyggileg- ast sé fyrir hann að minnast ekki á þetla mál við nokkurn mann þar sem hann beri fram ákæru á hendur liátt- settum embættismanni. Honum gæti orðið hált á því svelli. Unga skáldið er þó ekki á þvi að gefast upp og hyggst fá málið í hendur lögfræðingi. Allir neita þeir þó að taka það að sér, þegar þeir vita hver hinn ákærði er, nema einn, Arnold, sem þegar er á svörtum lista hjá embættismanna- valdinu og liefir ekki úr háum söðli að falla. Eins og allt er i pottinn búið verð- ur málið þó ekki sótt fyrir dómstól- unum, en hreyfirtgu er komið á það með greinum i „Þjóðdóminum", eina blaðinu, sem jiorir að gagnrýna em- bættismannastéttina. Loks er svo komið að yfirvöldin verða að láta málið til sín taka, það er að hvítþvo afbrotamanninn. Leikhúsgestum skal látið eftir að kynnast af eigin raun aðferðinni, sem við það er notuð. Baldvin Halldórsson leikur Kristar, viðkvæmt skáld, sem er enginn mað- ur til þess að bjóða ofureflinu Iiyrg- inn. Hann er að vísu vígreifur í fyrstu og ákveðinn í að berjast fyrir rétti sinum, en er of veikur til þess að standast þær raunir, sem hann verður að ]mla. Lýsir Baldvin vel þessum unga, ógæfusama manni. Ilerdís Þorvaldsdóttir leikur Britu, unnustu Kristars, sem berst við hlið hans eins og hetja, en fær ekki um- flúið hin grimmustu örlög. Róar réttarfulltrúi og fröken Bern- hard, ritari hans eru hinir ákjósan- legustu fulltrúar embættismannastétt- arinnar. Haraldur Björnsson og Guð- björg Þorbjarnardóttir lýsa þeim á mjög skcmmtilegan hátt og á gerfið sinn ])átt í því. Það má kannske segja að hið skoplega i fari þeirra dragi um of úr áhrifum þeirrar kerfisbundnu misbeitingar á valdi, sem á sér stað i skrifstofu réttarfulltrúans þar sem l'lest mál daga uppi „án aðgerða". Valur Gíslason fer prýðilega með Framhald á bls. 14. Herranótl THenntaskólans: ÞR ETTÁN DAKVð LD arsson og Vilborg Sveinbjarnardóttir ágætum tökum á hlutverkum sinum. Efni leikritsins verður ekki rakið hér, en það er fjörlegt og skemmtilegt, þrungið nöpru háði og leiftrandi fyndni svo sem gerist i leikritum Shakespeares. Auk þeirra, sem áður hafa verið nefndir, fara þessir með helstu hlut- verkin: Edda Óskarsdóttir, Þorleifur Hauksson, Ólafur Mixa, Guðmundur Ágústsson, Sigurður Helgason, Jakob Möller og Sigurveig Sveinsdóttir. )D i Nemendur Menntaskólans í Reykja- vik frumsýndu gamanleikinn Þrett- ándakvöld eftir William Shakespeare á Þrettándanum, og var lciksýning- unni ágætlega lekið. Leikstjóri er Benedikt Árnason. Leikrit þetta hefir tvivegis áður verið sýnt hér á vegum Leikfélags Reykjavíkur. Þýðinguna hefir Helgi Hálfdánarson gert. Leiksýningin i heild var mjög góð og nemendum Menntaskólans og leik- stjóranum til sóma. Meðferð nokkurra hlutverka vakti sérstaka athygli, eink- um leikur Þorsteins Gunnarssonar, sem fer með eitt af stærri hlutverk- unum. Einnig náðu þau Ómar Ragn- Iíristar og Brita.

x

Fálkinn

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Fálkinn
https://timarit.is/publication/351

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.