Fálkinn


Fálkinn - 20.02.1959, Qupperneq 4

Fálkinn - 20.02.1959, Qupperneq 4
4 FÁLKINN Fyrstu evrópumennirnir sem vitað er um bjuggu í hellisskútum. — En nú búa afkomendur þeirra sig undir að þjóta í rakettum til annarra hnatta. Ur frumsögu nmnnbynsins Enginn veit live gömul jörðin er, en líklega er hún ekki minna en 4.000 milljón ára. Og enginn veit livenær fyrstu lifverurnar urðu til á jöröinni, en giskað er á að milli Í000 og 2000 milljón ár séu síðan. Þó liafa ekki fundist steingervingar í eldri jarðlög- um en 500 milljón ára. — Frumöld kalla menn jarðsöguna fyrir þann tíma, þ. e. það sem er eldra en 500 milljþn ára, en þá tekur við fornöld, sem nær yfir rúmlega 300 milljón ár, miðöld, sem nær yfir kringum 150 milljón ár og loks nýja öldin, sem við lifum á, en af henni eru liðin að- eins 70 milljón ár. Langmestur liluti hennar er kallaður tertiær-tímabilið, cn síðustu milljón árin eru kölluð kvartær-timabilið. ísland varð til á nýju öldinni. Ef maður lætur tímann frá sköpun heims svara til tólf tíma á úrskífunni og byrjar klukkan tólf, hafa nær níu timar verið liðnir þegar fyrstu kunnu steingervingar fóru að myndast á jörðinni. Skriðdýrin miklu á miðöld jarðar, urðu til iríilli kl. 10 og 11. En jnannkynið kemur ekki fram fyrr en hálfra mínútu fyrir kl. 12, og sú mannkynssaga sem menn þekkja, nær ekki yfir nema brot úr sekúndu. Svo örstutt er ævi mannkynsins i hlutfalli við aldur jarðarinnar. Nú koma til sögunnar rándýr og nas- hyrningar, sem að vísu voru frá- brugðin núlifandi afkomendum sín- um, smávaxinn ættfaðir hestsins fer að gera vart við sig, og ýmsar fleiri skepnur, sem ekki eru enn aldauða á jörðinni. Áður en nýja öldin liófst fyrir kringum 70 milljón árum fer fyrstu spendýranna og fuglanna að verða vart. En nýja öklin er fyrst og fremst öld spendýranna. Ættum þeirra fjölg- aði mjög, en sumar þeirra hafa orðið aldauða. Við byrjun kvartærtímabils- ins, fyrir nálægt milljón árum, er tal- ið að maðurinn verði til. En menn þeirra tíma voru býsna olikir þvi, sem maðurinn er nú. Þess- ir menn vor’u stuttir og gildir og herðabreiðir og mjög bognir í baki. Ennið var lágt og heilinn miklu minni en í nútímamanninum. Tæki liöfðu Fyrstu Evrópu- búar sem við vit- um um bjuggu í hellum. þeir fá og ófullkomin; aðaltækið var kylfa, sem þeir notuðu til sóknar og varnar á sama hátt og öxina síðar, og brúnahvassa steina, svo sem tinnu, höfðu þeir til að skera með. Þeir voru umkringdir af ýmsum villidýr- Viðureign þrí- hyrndar risa-eðlu og ráneðlu, sem hefir étið kjöt. í loftinu sjást fljúg- andi eðlur. um, svo sem ljónum og tígrisdýrum. Lífsbarátta þeirra hefir verið hörð og oft verið hart í búi. ÞEIR ÞEKKTU ELDINN. Frummaðurinn hefir snemma lært að færa sér eldinn í nyt, og það var þetta sem skipaði honum æðra sess en dýrunum. í hellum frummannanna sjást þess merki, að þar hefir verið eldur, þar er aska, hálfbrunninn við- ur, bein og steinar, sem hafa hitnað i eldi. En liklega hefir maðurinn lifað lengi áður en hann lærði að kveikja eld. Það er ekki óhugsandi að hann hafi fengið hugmyndina að notkun ehlsins frá gjósandi eldfjöllum eða frá trjám, sem kviknað hafði af eld- ingu. Líklega hafa frummennirnir luinnað að tala, þótt mál þeirra liafi verið ófullkomið. Flestar skepnur geta ,.talað“ upp á sína visu, þó að það séu ekki nema fá liljóð, sena þau geta framleitt til að lýsa tilfinningum sín- um, svo sem hræðslu, sulti, reiði og blíðu. Fyrstu hellabúarnir hafa vafa- Við vitum ekki hvernig lífið kvikn- aði á jörðinni, en hún var öll mynduð úr ólífrænum efnum. Fvrstu lifandi verurnar á jörðinni munu hafa verið einfrumu smádýr, sem lifðu i grunn- um sjó, en þá var engin jurt og engin lífsvera á þurru landi. Smámsaman koma fram smádýr úr fleiri frumum og þá lirygglaus dýr, svo sem trilo- bítar, þá fiskar og eðlur, og loks skríða þessi dýr á þurrt land og smá breytast og tegundunum fjölgar. Þetta tók hundruð ármilljóna. A miðöld jarðar eru það skriðdýrin, sem eru allsráðandi á jörðinni og náðu gífur- legum jrroska, svo að aldrei hafa stærri dýr lifað á þurru landi, en þó er fullyrt að ekkert þessara dýra hafi orðið eins stórt eins og stærstu hval- ir eru nú. Þessar eðlur voru af ýmsu tagi, sumar lifðu jöfnum höndum i sjó og á landi og aðrar gátu flogið. En á síðasta skeiði miðaldar, tímabilinu sem kennt er við krít, lýkur blóma- skeiði risaeðlanna og þær deyja út. I viðureigninni við vísunda, ljón og fleiri villidýr urðu frummennirnir að nota steinvopn. laust kunnað meira en þetta. Má sjá á hauskúpum þeirra, að „talstöðin“ i heilabúi þeirra, þ. e. sá hluti heilans, sem stjórnar málfærinu, hefir verið miklu þroskaðri en til dæmis lijá sjimpansa, górilla og orangutang — þeim öpum, sem taldir eru manninum skyldastir. En samt hefir þetta manna- mál verið ófullkomið og aðeins til þess að láta í Ijósi algengustu tilfinn- ingar. Hellismennirnir hafa ekki get- að rabbað um daginn og veginn eins og við, og ekki getað útskýrt flókna hluti hver fyrir öðrum. Og þetta var ástæðan til þess að menningunni mið- aði svo hægt áfram öld eftir öld. NEANDERTHAL-MAÐURINN. Fyrir 50.000 árum lifði maðurinn mjög frumstæðu hfi. Flestir munu þá hafa lifað í hellum, að minnsta kosti finnur maður beinagrindur þeirra og búsmuni þar. Vera kann að sumir hafi lifað annars staðar, en þar er meiri vandi að finna menjar eftir þá. í gólfskáninni, sem myndast liefir i hellunum má finna leifar eftir bál,

x

Fálkinn

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fálkinn
https://timarit.is/publication/351

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.