Fálkinn - 27.02.1959, Qupperneq 3
FÁLKINN
3
Togarinn Júlí frá Hafnarfirði.
Þau hörmulegu tíðindi hafa gerst
að tvö íslensk skip hafa farist í þess-
um mánuði með allri áhöfn, alls 42
mönnum.
Botnvörpungurinn Júlí frá Hafnar-
l'irði hvarf á Nýfundnalandsmiðum
sunnudaginn 8. febrúar og hefir ekk-
ert til hans spurst síðan eða úr honum
fundist þrátt fyrir víðtæka leit úr
iofli og á sjó. Ofsaveður brast skyndi-
lega á á miðum togaranna ])ar vestur
frá og gífurleg ísing hlóðst á skipin
þannig að eitt stag hálfur lmmlungur
að gildleika gat orðið eins og tunnu-
botn. Fleiri íslenskir togarar konmst
]>arna i bráða hættu, eins og til dæm-
is Þorkell Máni, sem varð að sleppa
báðum björgunarbátunum og logsjóða
davíðarnar af vegna ísingar sem á
þær hlóðst. — Með júlí fórust 30 vask-
ir sjómenn. Tólf heimilisfeður voru
i þeim liópi, sem láta eftir sig konur
og börn, alls 39 innan 15 ára aldurs.
Tíu dögum síðar barst svo önnur
harmafregn. Vitaskipið Hermóður
fórst fyrir Reykjanesi á siglingu frá
Vestmannaeyjum til Reykjavíkur
einnig með allri áhöfn, tólf mönnum.
Fimm þeirra láta cftir sig konur og
alls 17 börn innan fermingaraldurs.
Það er sár harmur kveðinn að þvi
fólki, sem hér á eftir að sjá kærum
ástvinum, svo þungur að seint mun
aftur birta, en sársaukinn nær einnig
til þjóðarinnar allrar. Iíún hefir orðið
að færa þungbærar fórnir á altari
Ægis. Við þessu er þó aðeins eitt svar.
Við getum strengt ])ess heit að lina
ekki á baráttunni fyrir sem fullkomn-
ustum fiskiskipum, fyrir sem mestu
öryggi á sjóríum, hvar sem leið is-
lenskra sjómanna liggur. Þjóðin get-
ur sameinast um það að gera allt,
seni í mannlegu valdi stendur lil þess
að létta harm ]>eirra, scm nú eiga um
sárt að binda. Hún getur einnig veiti
þeim lijálp, sem nú standa uppi ein-
mana og harmþrungnir.
Sjómennirnir 42 eru horfnir en
minning þeirra lifir.
Þeir, scm fórust með togaranum
Jiilí:
Þórður Rétursson, skipstjóri. Grænu-
lilíð 8, Reykjavik, 42 ára. Hann lætur
eftir sig 3 börn: 14 ára, 11 og (i ára.
Faðir hans er á lifi.
Hafliði Stefánsson, 1. stýrimaður,
Köldukinn ö, Ilafnarfirði, 31 árs.
ICvæntur með 2 börn, 5 ára og 3ja
ára. Móðir á lifi.
Þorvaldur Benediktsson, 2. Ktýri-
maður, Brekkugötu 14, Hafnarfirði, 24
ára, ókvæntur. Hann var sonur Bene-
dikts Ögmundssonar skipstjóra á tog-
aranum Júni frá Hafnarfirði.
Stefán Hólm Jónsson, 1. vélstjóri,
Eskihlíð C, Reykjavik, 48 ára. Lætur
liann eftir sig konu og 5 börn, tvö
innan fermingaraldurs.
Guðlaugur Karlsson, 2. vélstjóri,
Garðavegi 10, Hafnarfirði, 20 ára.
Hann var fyrirvinna móður sinnar.
Runólfur Viðar Ingólfsson, 3. vél-
stjóri. Langholtsvegi 137, Reykjavik,
23 ára. Hann var ókvæntur en móðir
lians býr á Akranesi.
Hörður Kristinsson, loftskeytamað-
ur, Langeyrarvegi 9, Hafnarfirði, 29
ára. Kvæntur og lætur eftir sig þrjú
börn ung.
Andrés Hallgrímsson, bátsmaður,
Mávahlið 27, Reykjavik, 35 ára, ó-
kvænlur, en fyrirvinna móður sinnar.
Kristján Ólafsson, 1. matsveinn,
Efstasundi 85, Reykjavík, 24 ára.
Kvæntur og lætur eftir sig þrjú börn,
4 ára, 1 % árs og 0 mánaða. Átti for-
eldra á lífi.
Viðar Axelsson, 2. matsveinn, Njarð-
argötu 29, Reykjavík, 23 ára. Kvæntur
og átti 1 barn 3 ára. Átti foreldra á
lifi.
Svanur Pálmar Þorvarðsson, kynd-
ari, Laugarnesbúðum 31, Reykjavík,
19 ára. Ókvæntur. Hann var fyrir-
vinna móður
sinnar.
Skúli Bene-
diktsson, kynd-
ari, Ránargötu
0, Reykjavík, 24
ára. Kvæntur
og lætur eftir
sig (i ung börn,
hið elsta 5 ára.
Átti fósturl'or-
eldra á lífi.
Ragnar Guð-
jón Karlsson,
netam., Höfða-
borg 21, 39 ára.
Kvæntur og
lætur eftir sig
þrjú börn, 13,
11 og 7 ára. Átti
fósturmóður á
lífi.
Ólafur Ólafs-
son, netamað-
ur, Nýlendug.
7, Rv. Ókvænt-
ur.
Sigmundur
Finnsson, neta-
maður, Tripóli-
búðum 25, Rvk,
25 ára. Ók-v., en
lætur eftir sig
tvö börn.
Magnús Guð-
mundsson, há-
seti, Tripólí-
búðum 25, Rvk,
44 ára. Kvænt-
ur. Ilann var
stjúpfaðir Sig-
mundar og læt-
ur eftir sig 4
stjúpbörn, upp-
komin. Móðir hans er á Súgandafirði.
Benedikt Sveinsson, netamaður,
Njálsgötu 77, Rvík, 27 ára. Ókvæntur.
Bjó með móður sinni.
Jóhann Sigurðsson, netamaður,
Laugavegi 53B, Rvik, 44 ára. Kvæntur
og lætur eftir sig fjögur börn, 15, 14,
11 og 4ra ára.
Ólafur Snorrason, háseti, Njálsgötu
87, Rvk, 34 ára. Fósturforeldra átti
hann á Patreksfirði og móður á lífi.
Björn Heiðar Þorsteinsson, háseti,
Ránargötu 24, Akureyri, 31 árs. Ó-
kvæntur og bjó hjá foreldrum sínum
á Akureyri.
Jón Geirsson, háseti, Borgarnesi, 21
árs. Ókvæntur, i foreldrahúsum.
Magnús Gíslason, háseti, Lækjar-
kinn 2, Ilafnarfirði, 31 árs. Ókvænt-
ur og eru foreldrar hans í Elliheim-
ilinu Grund hér í Reykjavik.
Magnús Sveinsson, háseti, Rauðar-
árstíg 40, Rvík, 21 árs. í heimili fóst-
urmóður sinnar.
Jón Haraldsson, liáseti, Hlíðarvegi
11, Kópavogi, 16 ára. Hann var einka-
barn foreldra sinna.
Þorkell' Árnason, háseti, Sörlaskjóli
20, Rvík, 38 ára. Lætur hann eftir sig
unnustu og ungt barn. Foreldrar eru
norðtir á Þórshöfn.
Guðmundur Elíasson,' háseti, Vita-
teig 5, Akranesi, 30 ára. Kvæntur og
álti fjögur börn á aldrinum 10, 7, 5
og 2ja ára. Foreldrar hans búa á Akra-
nesi.
Benedikt Þorbjörnsson, háseti, Loka-
stig 28, Rvík, 27 ára. Ókvæntur. Faðir
á lífi.
Aðalsteinn Júlíusson, háseti, Hítar-
nesi, Hnappadalssýslu, þar sem faðir
hans nú býr. Hann var 27 ára og ó-
kvæntur.
Björgvin Jóhannsson. háscti, (stud.
med,), Höfðaborg 12, Rvík, 29 ára og
lætur eftir sig tvö mjög ung biirn.
Móðir á lífi.
Sigurður Guðnason, háseti, Kirkju-
braut 28, Akranesi, 44 ára. Kvæntur
en barnlaus. Foreldrar hans búa á
Suðurcyri.
—O—
Þeir, sem fórust með Hermóði:
Ólafur G. Jóhannesson, skipstjóri,
Skaftahlíð 10, Rvík, 41 árs. Hann var
kvæntur og auk konu lætur hann eftir
sig sjö börn á aldrinum 10, 8, 7, 5, 4
og tvö tveggja ára.
Sveinbjörn Finnsson, 1. stýrimaður,
Utgerði við Breiðholtsveg, Rvik, 24
ára. Hann lætur eftir sig konu og eitt
barn árs gamalt. Foreldrar lians búa
vestur i Grundarfirði.
Eyjólfur Hafstein, 2. stýrimaður,
Bústaðavegi 65, 47 ára. Hann lætur
eftir sig konu og 4 börn, 12, 9, 7 ára
og 8 mánaða. Móðir hans öldruð, er
á lífi.
Guðjón Sigurjónsson, 1. vélstjóri,
Kópavogsbraut 43, Kópavogi, 40 ára.
Kvæntur og auk konu lætur hann eft-
ir sig 5 börn á aldrinum 5—14 ára.
Guðjón Sigurðsson, 2. vélstjóri,
Freyjugötu 24, 65 ára. Lætur eftir sig
konu og uppkomin börn.
Birgir Gunnarsson, matsveinn,
Nökkvavogi 31, 20 ára. Ókvæntur. Var
i foreldraliúsum.
Magnús Ragnar Pétursson, háseti,
Hávallagötu 13, 46 ára. Ókvæntur.
Jónbjörn Sigurðsson, háseti, Gnoða-
vogi 32, 19 ára. Var hjá foreldrum
sinum og er elstur 10 systkina.
Kristján Friðbjörnsson, háseti, 27
ára, til heimilis austur á Vopnafirði.
Ókvæntur.
Davíð Sigurðsson, háseti, Samtúni
32, 23 ára. Elstur 5 systkina.
Einar Björnsson, aðstoðarmaður,
frá Vopnafirði, 30 ára. Ókvæntur.
Helgi Vattnes Kristjánsson, aðstoð-
armaður í vél. Þinghólsbraut 23,
Kópavogi, 16 ára. Var hann á heimili
foreldra sinna.
Vitaskipið Hermóður.