Fálkinn - 27.02.1959, Page 15
FÁLKINN
15
ORDSENÞING
frd Rnfmipeftirliti ríkisins.
Nokkur brögð hafa verið að því undanfarið, að
rafmagnsljóskúlur „sprengi“ vartappa, um leið og
þær bila.
Einnig eru þess nokkur dæmi í seinni tíð, að raf-
magnsljóskúlur bili þannig, að glerkúlan springi og
glerbrotin þeytist í allar áttir
Þótt rafmagnsljóskúlur séu ekki enn sem komið
er viðurkenningarskyldar, sem kallað er, þ. e. að inn-
flytjanda sé skylt að senda raffangaprófun rafmagns-
eftirlitsins sýnishorn til prófunar og úrskurðar
um það, hvort leyfilegt sé að selja þær og nota,
þá eru umræddir gallar, sem sannanlega hafa kom-
ið í ljós, svo alvarlegir, einkum hinn síðarnefndi,
að rafmagnseftirlitið telur ekki rétt að láta þetta af-
skiptalaust.
Reynt verður að safna upplýsingum um hve mikil
brögð kunni að vera að umræddum göllum.
Rafmagnseftirlitið vill því hérmeð mælast til þess,
að allir þeir, sem vottar hafa verið að slíkum bil-
unum, sem hér um ræðir, tilkynni það rafmagns
eftirliti ríkisins eða hlutaðeigandi rafveitu, annað
hvort bréflega eða í síma.
Varúðarreglur:
Þegar rafmagnsljóskúla (pera) er skrúfuð í lampa-
höldu, skal ávallt gætt, að straumurinn að lampan-
um sé rofinn og ekki kveikt á honum (með rofa
eða tengilkvísl) fyrr en Ijóskúlan hefir verið skrúf-
uð í hann. Annars getur verið hætta á að verið sé
of nálægt ljóskúlunni, þegar rafstraumi er hleypt á
hana, ef hún skyldi springa, eða blossi myndast í
henni.
Einnig er það góð regla og raunar sjálfsögð, að
snúa andlitinu frá, eða halda hönd fyrir augu, þeg-
ar vartappi er skrúfaður í, því að við óhagstæð skil-
yrði (skammhlaup) getur myndast mjög skær
blossi í vartappanum um leið og hann nemur við
botn í varhúsinu, þegar hann er skrúfaður í.
Rafmagnseftirlit ríkisins.
NORMA DAN,
33 ára frú í Sydney, Ástralíu, liefir
fengið skilnað vegna þess að maður-
inn hennar, sem er kolbrjálaður af
afbrýði, hafði ekki aðeins stráð kláða-
dufti í nærfötin liennar heldur lika
borið sýrur í kjólana hennar, svo að
þeir duttu í flygsum utan af henni
þegar hún fór að klóra sér.
<o>
Gúndi litli var syngjandi úti á götu,
og gömul kona mætir honum og spyr
hvers vegna hann sé svona glaður.
Hann svarar að það sé vegna þess að
liann sé að eignast bróður. Gamla
konan spurði hvernig hann vissi að
það væri bróðir, sem hann mundi
eignast, og þá svarar Gúndi: „Hún
mamma hefir tvisvar legið veik og
þá eignaðist ég systur i bæði skiptin.
En nú liggur liann pabbi veikur!“
<o>
Síðasta nýtt frá New York eru
glæpasögur, sérstaklega gerðar til
þess að lesa meðan maður liggur i
baði. Þær eru prentaðar á pappír,
sem ekki drekkur í sig vatn, og er
svo léttur að hann flýtur í vatninu.
<o>
HUSMÆÐUR:
Besta og ódýrasta húshjálpin er tvímælalaust að losna
við þvottadaginn.
Mesta erfiðið á heimilunum er á þvottadaginn.
Við leysum vandann, allir dagar eru þvottadagar
hjá okkur.
§l>líkj aþvottnr,
30 slj’klci af sléttu taui Jivegin og frágengin
(rulluð) fyrir kr. 85,50 -f- söluskattur. 2,85 livert
stykki ef þau eru fleiri. — f stykkjaþvott getið
þér sent allt tau sem liægt er að rulla og sjóða,
t. d. sængurver, lök, koddaver, handklæði, diska-
þurrkur, dúka, bómullarnærfatnað o. fl. o. fl.
Blantþvottur,
er ódýrasta þjónústan sem þvottahús veita, og i
blautþvott er liægt að senda allt tau nema utan-
yfirfatnað og ullarfatnað. Blautþvotturinn er
þveginn og þurrkaður. Verðið er kr. 6,00 -j- sölu-
skattur hvert kílógramm.
Frágfangjsþvottnr,
1 frágangsþvott er liægt að senda allt tau sem á
annað borð er hægt að þvo. — Verðið er sam-
kvæmt verðskrá þvottahúsanna.
Skyrtur,
eru venjulega afgreiddar samdægurs.
liiiiiuíatnadnr.
Sérstök áhersla er lögð á fljóta afgreiðslu á livers
konar vinnufatnaði.
Kcmisk fatahrcinsnn
»Sf pressnn
Við höfum l'ullkomna efnalaug og hreinsum og
pressum livers konar fatnað.
Við sækjum heim og sendum um allan bæ, einnig
í Kópavog og Hafnarfjörð.
Reynið viðskiptin.
Látið okkur þvo.
BORCARÞYOTTAHUSID H.(.
Borgartúni 3.
Símar 1-72-60 — 1-72-61 — 1-83-50.