Fálkinn


Fálkinn - 24.04.1959, Page 3

Fálkinn - 24.04.1959, Page 3
FÁLKINN 3 Nýjasta mynd af Karlakór Reykjavíkur. Söngstjórinn í miðju í fremstu röð. Karlakór Reykjavíkur syngur Sem næst á hverju kvöldi alla síð- ustu viku lét Karlakór Reykjavikur til sin lieyra í Reykjavík. Aðdáenda- og vinahópur þessa ágæta kórs er nú orðinn svo stór, að hann fyllir húsið kvöld eftir kvöld. Er þetta eftirtektar- vert, því að ágætis kórar í margfalt stærri horgum mundu tæplega geta haldið meir en 2—3 hljómleika. Ber þetta vitni bæði hæfni kórsins og sönglistaráhuga Reykvíkinga. Það hefir stundum verið orðlak um Karlakór Reykjavíkur, er hann lætur til sín heyra eftir nokkurt hlé, að hann liafi „aldrei sungið betur en nú“. Þetta sannast og á þessum síð- ustu hljómleikum. Sjaldan eða aldrei hefir lieyrst fágaðri og skennntilegri söngur né jafn fjölbreytt söngskrá. Þar voru sex íslensk lög og jafnmörg útlend og tvær erlcndar aríur að auki (úr „Cavaileria Rusticana" Mascagnis og „Don Carlo“ Verdis), sem hin unga söngkona Sigurveig Hjaltested söng. Söngskráin hófst auðvitað með Söng- heilsan Björgvins Guðmundssonar, þá kom Heiðlóarkvæði Emils Thorodd- sens, í harmanna helgilundum eftir dr. Pál ísólfsson (eins. Guðm. Jóns- son), Rímnadanslög eftir Jón Leifs, Sólarlag eftir Kaldalóns og Formanns- vísur söngstjórans Sigurðar Þórðar- sonar. Sumt af þessu er nýjung á hljómleikum hér, en öruggt um vin- sældir. Útlendi flokkurinn hófst með sænskum þjóðdans eftir Alvén, þá kom „Ævi hallar“ eftir Danks (ein- söngvari Guðm. Guðjónsson), Vorljóð eftir Dvorák, Hljómurinn eftir Sulli- van (eins. Guðmundur Jónsson), Vögguvísa eftir Gjerström og loks klykkti kórinn út með hinum dillandi völsum úr „Wein, Weib und Gesang eftir Johan Strauss. Og vitanlega heimtaði fólkið meira. Hjá Karlakór Reykjavikur fer sam- an gott raddval hinna 37 söngmanna og umfram allt mikil vandvirkni, smekkvísi og elja hins ágæta söng- stjóra Sigurðar tónskálds. Hefir hann nú stjórnað kórnum í hálfan fjórða áratug og aldrei linað sóknina í þá átt, að „aðeins það hesta sé nógu gott“. Hann er ótrúlega samlientur söngvurum sínum, sem sumir hverjir hafa fetað ævibraut K.R. með honum, og um leið svo nærgætinn við sitt mikjá „hljóðfæri“ að allir tónarnir elska liann og virða. Og slaghörpunnar gætir Weisshappel alltaf með sama snilldarbrag. Sá sem þessar línur skrifar hefir átt kost á þvi að heyra erlenda áheyr- endur dá Karlakór Reykjavíkur, en hann er sá, sem víðast hefir farið um lönd, bæði austan hafs og vestan. Á N'orðurlöndum er almenn ósk um það, að Karlakór Reykjavíkur komi sem fyrst í lleimsókn á ný, og gagnrýnend- ur hafa fest það á prent að margir góðkórar Norðurlanda liafi ótal margt af honum að læra. Nú mun förinni heitið til Vestur- heims á næsta ári, og verður það löng ferð og ströng. En vel sé þeim, sem leggja á sig erfið ferðalög, ókeypis starf og stundum bein peningaútlát til þess að sýna umheiminum að söng- menning sé til á íslandi. Nýjung við þurrkun saltfisks Framíéiðsla okkar íslendinga or einhæf, sem best sést á því að yfir 90 prósent útflutningsafurðanna er fiskur eða fiskafurðir. Þessu verður trúlega ekki breytt svo neinu nemi og þvi eru nýjungar og framfarir er snerta*' sjávarútveginn okkur mikil- vægar og vekja verðskuldaða athygli. Á þetta er minnst hér nú vegna þess að nýlega var tekin liér í notkun ný aðferð við saltfiskþurrkun. Hér er utn að ræða íslenska uppfinningu, sem Benedikt Gröndal verkfræðingur, framkvæmdastjóri Hamars h.f., á hug- myndina að. Fer þurrkunin fram í sérstökum klefum, og hafa þeir fyrstu þeirra verið útbúnir í Sænsk-íslenska frystihúsinu við Skúlagötu. Eftir að fiskurinn hefir verið sett- ur í klefann til þurrkunar þarf ekki nærri honum að koma fyrr en liann er fullverkaður, hvort sem uin er að ræða fullþurrkaðan fisk fyrir Brasilíu- markað, hálfþurran fisk fyrir Spán- armarkað eða aðrar verkunaraðferð- ir. Vegna þess að þurrkunin er sjálf- Starfsstúlkurnar leggja fisk í skúffurnar, sem siðan er rennt inn í skáp. Benedikt Gröndal verkfræðingur skoðar saltfisk ásamt einum af verkstjór- um Sænsk-íslenska frystihússins. virk sparast mjög mikil vinna við umstöflun. Þá er fiskurinn fullþurrk- aður á tveimur og hálfum sólarhring, sem er miklu skemmri tími til þurrk- unar en hér licfir áður þekkst. Bencdikt Gröndal skýrir svo frá, að hann hafi í febrúar 1958 fengið rannsóknarstofu Fiskifélags íslands til þess að gera nokrar tilraunir með þurrkun á saltfiski og voru þær fram- kvæmdar undir umsjá dr. Þórðar Þor- bjarnarsonar og Björns Bergþórsson- ar, efnaverkfræðings. Þessar tilraunir leiddu i ljós, að liér var þurrkunar- aðferð, sem var margfalt fljótvirkari en aðrar þær aðferðir, sem hingað til hafa verið notaðar. Sótti Gröndal þá um fjárveitingu úr Fiskimálasjóði til þess að láta smíða lítið reynslutæki, sem ynni með sama hætti og stórt tæki, er ætlað væri til fullra afkasta. Fiskimálasjóður varð við þeirri beiðni og tækið var siðan smíðað og reynt i einum af þurrkklefum Bæjarútgerðar Reykjavikur. Árangurinn varð mjög áþekkur því, sem fram kom við til- raunir Fiskifélagsins. Varð það til þess að Sænsk-islenska frystihúsið ákvað að láta smiða eitt þurrktæki, sem afkastaði um einni lest af fiski á sólarhring. Fiskimálasjóður veitti 200 l)ús. kr. lán til þeirra fram- kvæmda. Áætíunin um afköst virðist Framhald á bls. 14.

x

Fálkinn

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Fálkinn
https://timarit.is/publication/351

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.