Fálkinn - 24.04.1959, Síða 6
6
FÁLKINN
Þann 21. sept. 1945 varð Henry
Ford II. yfirforstjóri Fordsmiðjanna,
aðeins 28 ára gamall.
Nœstti fimrn árin eyddi hann 500
milljón dollurum í alls konar breyt-
ingar og stækkanir og betri vélar, og
framleiðslan óx svo aS nú varS Ford
annar stærsti bilaframléiSandinn,
næst eftir General Motors.
En breytingarnar sem hann gerSi
á samvinnunni viS starfsfólk fyrir-
tækisins voru kannske enn meira
virði. Skömmu eftir aS hann var orS-
inn aSalforstjóri tókst lionum aS af-
stýra með friðsamlegu móti háska-
legri vinnudeilu,'með svo mikilli lip-
urS, aS fulltrúar starfsmannanna
köliuðu hann „diplomat iðnmálanna".
Hann var enn að leita að nýjum
leiðum í félagsmálum og það vakti
fyrir honum að komast að því marki,
sem margir félagsmálafræðingar hafa
sett sér: að efla friðinn i heiminum.
Henry Ford II. fékk gott tækifæri
til að koma hugsjónum sínum i fram-
kvæmd, ekki aðeins í skipulagningu
i'nnan Fordsmiðjanna heldur líka
með stofnun „Ford Foundation“, sem
í dag er mesta „hjálparhönd i heimi“.
Ford Foundation var stofnsett 1936,
en hafði lengst af verið ofurlítill fjöl-
skyldusjóður, sem veitti milljón doll-
ara í styrki á ári. Henry Ford I. og
F'.dsel Ford höfðu í erfaskrám sínum
tekið frá gífurlegar fjáruppliæSir, sem
renna skyldu til þess að „auka velferð
mannkynsins". Þarna var verkefni,
sem var Henry Ford II. að skapi og
hann gekk aS því með mikilli rögg-
semi.
Hann skipaði nefnd til að rann-
saka hvað það væri sem mannkynið
fyrst og fremst þyrfti til að geta lifað
mannsæmandi lífi. Og nefndin skilaði
þvi áliti, að undirstaða þess væri sú,
að halda frið i veröldinni. Margir
höfðu lialdið því fram áður aS erfið-
léikar vorra tíma stöfuðu af því að
véltæknin hefði ekki verið samræmd
við þarfir mannkynsins. En nefndar-
álitið hélt því fram að vandamálin
slöfuðu af úlfúð mannanna millum.
Lykillinn að þvi, sem Ford Founda-
tion reynir að gera felst í þessari
setningu:
Að efla alþjóðlega sáttfýsi og frið,
styrkja lýðræðislegar stofnanir og
bæta starfsaöferðir þeirra, efla efna-
hag almennings, auka og bæta alþýðu-
menntun og efla þau vísindi, sem geta
aukið kynnin af mönnunum.
Þetta starf skyldi liafið með 500
milljón dollara stofnfé, og 1. sept.
1950 gat hin nýja, aukna Ford
Foundation tekið til starfa.
Henry Ford I. varð forseti Ford
Foundation árið 1953. Árið 1956 var
hann kjörinn „viðskiptakóngur árs-
ins“ af „The Saturday Revie\v“. Það
var fyrsta skiptið sem þetta kunna
blaö sæmdi nokkurn þessu heiti, og
liað var tvennt, sem Henry II. hafði
gert, sem blaðið lagði áherslu á: að
hann hefði breytt Frodsmiðjunum í
félag, sem almenningur átti. Þetta
var gert með því móti að mestur hluti
hlutabréfanna var hafður til sölu á
frjálsum markaði. — Hitt var gjöfin
mikla 1955, er Fordsmiðjurnar gáfu
500 milljón dollara til skóla og sjúkra-
lnisa. Það var stærsta gjöfin, sem gef-
in hafði verið í heiminum.
Henry Ford II. — þessi sex feta,
kringluleiti og vinalegi maður, er að-
éins fertugur. Hann er mjög amerísk-
ur í útliti, vill helst ganga í vaðmáls-
fötum, en konan lians er talin ein af
tíu smekklegast klæddum konum í
U.S.A. — Þau lifa rólegu heimilislifi
Kartmennirnir í Fordfjölskyldunni. Efst t. h. mynd af stofnandanum,
Henry Ford I. og til vinstri af Edsel Ford. Henry Ford II. stendur bak
við bræður sína Benson (t. v.) og William (t. h.).
4. G R E I N .
FORD
— konnngsfftt bílasmiðooim
í Detroit og eiga þrjú börn. Dæturnar,
Charlotte og Anne eru kringum ferm-
ingu, en sonurinn, Edsel er niu ára.
HIN SYSTKININ.
Henry II. finnur til ábyrgðar sinn-
ar, sem höfuð fjölskyldunnar og
forstjóri Fordsmiðjanna. Hann er hlé
drægari i framkomu en bræður hans,
og hefir tamið sér að athuga fólk ítar-
lega áður en hann kynnist þvi nánar.
Benson bróðir lians, sem er 38 ára
þykir hins vegar grallaralegur við
alla, enda er hann talinn vinsælastur
bræðranna.
Konan hans, Edith, er ljóshærð og
blátt áfram og ekki formföst fremur
en Benson. Faðir hennar var sölu-
stjóri fyrir Cadillac-bilanna, og áður
en hann flutti til Grosse Pointe Slior-
es voru Benson og Edith grannar í
Indian Village í Detroit og voru á
sama leikvellinum. Henry II. og Anne
umgangast fólk eins og hertogahjónin
af Windsor, Gary Cooper, Winston
Guest og Peter Lawford, en Benson
og Edith eru ekki nærri eins mikið
fyrir ,,háheitin“ og sjást sjaldan nefnd
í fjölskyldulífsdálkum blaðanna. Þau
skreppa stundum til New York til
þess að hitta Elbu og Jerry McGold-
rich. Jerry er sölustjóri Lincoln og
Mercury-bílanna í New York City og
þeir Benson eru kunningjar síðan
þeir unnu saman í flugliernum.
Henry II. spilar oft golf og það
gerir William líka — eða Billy, sem
hann er oftast kallaður. Þegar þeir
sýna sig á golfvöllunum í Southamp-
ton eða Maidstone i East Hampton,
er Benson oftast nær norður við
Vötnin miklu. Þar hvilir hann sig um
borð i 58 fcta skemmtisnekkju, sem
heitir Onika, eftir húsbát föður síns,
en það var um borð í honum, sem
hann bað konunnar sinnar. Gert er
ráð fyrir þriggja manna áböfn á bátn-
um, en Benson ræSur vanalega aðeins
einn inann, en vinnur sjálfur sjó-
mannsstörfin ásamt konu sinni. Oft-
ast bjóðum við tveimur sálum með
okkur, segir Benson. — Það er ekki
rúm fyrir fleiri. Eins og flestir báta-
eigendur í Detroit, siglir hann bát
sinum suður Erieskurð til Florida á
haustin.
Benson og Edith eiga tvö börn,
Benson 7 ára og Lynn, 5 ára.
Josepliine er eina dóttir Edsels
Ford, kölluð Dodie. Hún er minnst
kunn allra af Fordsættinni. Það eru
yfirleitt eklci margir utan Grosse
Pointe Shores sem vita, að Ford-
bræðurnir eiga systur. Þó hún hefir
sig ekki frammi á almannafæri er þvi
ekki til að dreifa innan fjölskyldunn-
ar, segja bræður liennar. — Hún er
bráðfjörug, segir Benson og hefir allt-
af eilthvað fyrir stafni. Hún er mjög
falleg, 33 ára og þó hún sé gift og
eigi fjögur börn hefir hún ekki breytt
nafni en heitir ennþá Ford. Hún er
nefnilega gift iðnmálaráðunaut, sem
lieitir Walter Bugl Ford, en er þó ó-
skyldur Fordunum.
Josephina og Billy umgangast mest,
vegna þess að kona Billys, Martha
dóttir Harvey Firestone, er besta vin-
kona liennar. Þegar Firestoneauður-
inn er meðtalinn eru þau Billy og
Martha sennilega ríkust allra í Ford
ættinni. Harvey Firsestone eldri- afi
Mörthu, var einn af fáum vinum
gamla Fords. Þeir voru oft saman í
útilegum ásamt Edison og John
Burroughs náttúrufræðingi. Þá var
Ford alltaf að hrekkja þá. Til dæmis
lét hann tréspæni í stað brauðs í
tómatsúpu Harveys.
Billy er ósveigjanlegastur og bjart-
sýnastur allra bræðranna. Ilann læt-
ur sig miklu skipta útlit bíltegunda,
sem sendar eru á markaðinn. Hann er
kunnur íþróttamaður, einkum fyrir
golf og tennis.
Þegar Billy var 14 ára lét faðir
lians setja ökuliraðahemil á litla bíl
inn lians, svo að Iiann kæmist ekki
hraðar en 60 km. Hemillinn var ræki
lega festur, en samt hafði Billy tekist
að ná honum af daginn eftir. En öku-
gikkurinn er bólcabéus lika. Ilann
safnar sögum og minjum frá borgara-
styrjöldinni og alls konar skot-
vopnum.
Síðustu ]irjú árin hefir Billy átt í
rifrildi við Henry bróður sinn um
útlitið á hinni nýju, dýru Continental-
gerð. Henry vildi liafa vagninn í
fútúristastíl, en Billy vildi láta liann
líkjast vönduðum bílum í Evrópustíl.
Billy vann og liann var sá fyrsti sem
fékk að reyna bílinn. Hann settist
inn og ræsti, en bíllinn stóð kyrr.
Bafgeymirinn hafði óvart tæmst.
Allir bræðurnir jirír eru iengstum
i skrifstofum sinum í Detroit. Henry
II. kemur kl. 9 og fer sjaldan heim
fyrr en kl. 18. Honum er ekið til
skrifstofunnar í Lincolnbíl, sem er
með sams konar lestrarlampa og i
fiugvélum, og hann les oft póstinn
sinn á heimleið eða að heiman. Á
morgnana ekur hann Edsel II. syni
sinum i skólann í Grosse Pointe.
Hann raðar skjölunum í þrennt,
segir bílstjórinn hans. — Því sem
skiptir litln máli fleygir hann i aftur-
sætið. ÞaS sem liann þarf að hugsa
um lætur liann í hurðarvasann. En
því sem mest er áríðandi stingur liann
í vasa sína. En annars tölum við um
basa-ball á leiðinni. Hann kann allar
reglur og þekkir fjölda af leikmönn-
um. Hann hefir líka áhuga á hockey
og oft horfir hann á knattspyrnuleiki
— ef hann fer þá ekki i golf.
Hjónaskilnaður hefir aldrei komið
fyrir í Fordfjölskyldunni, segir gam-
all húsvinur, — og ég skal veðja um
að enginn þaðan hefir nokkurn tima
spurt sálsýkisfræðing ráða. Svo að ég
á bágt með að skilja allt þetta rugl
um óhamingjusama auðkýfinga!
Ungi Ford umgengst sjaldan hina
forstjórana i Ford Motor Company.
Vinir hans, sem hafa séð hann livíla
sig segja, að þá sé hann annar mað-
ur en í skrifstofunni. — Þar er liann
kuldalegur og hlédrægur, og á kvöld-
in þegar liann er kominn heim til
sín lætur hann eins og órabelgur,
segir einn vinur hans. í samkvæmi
heima hjá honum urðu gestirnir
liissa er þeir sáu á veggjunum skrípa-
myndir af sjálfum sér. Henry II.