Fálkinn


Fálkinn - 01.05.1959, Page 8

Fálkinn - 01.05.1959, Page 8
8 FÁLKINN „Við ætlum að giftast - “ Eiríkur lagði bílnum við gatnamót- in, tabbaði upp stíginn og nam stað- ar við húsið með livíta hliðinu. Hann gekk inn í garðinn og beint yfir gras- flötina, framhjá úthúsinu. Hann drap fingrinum á eldhús- gluggann um leið og hann gekk hjá honum og fór svo inn um bakdyrnar. Edít var að enda við að þvo upp eftir borðhaldið. Þau liöfðu verið að borða, hún og faðir hennar. Hún leit við þegar Eiríkur kom inn, en sneri sér undan þegar Eiríkur ætl- aði að kyssa hana. — Lokaðu dyrunum, sagði hún. Hann ýtti hurðinni hljóðlega að stöfum. — Á ég að hjálpa þér? sagði hann. — Ég er að verða búin, sagði hún og fór að raða diskunum í hillurnar. Hann horfði aðdáunaraugum á hana um stund. Edít var há og ljóshærð, en Eiríkur var hálfu höfðu hærri, og axlirnar á honum svöruðu til hæð- arinnar. Andlitið var hraustlegt og frítt, augun skær og hrein, og urðu enn skærari er hann horfði á Edít. Hann settist á eldliússtólinn og sagði: — Ég hefi verið að skoða liús. — Jæja, sagði Edít og hélt áfram við uppþvottinn. — Maður getur fengið það fyrir slikk. Og það verður tilbúið til að flytja í það eftir þrjá mánuði. — Er það satt? — Það mundi verða á alveg réttum tima . . . heldurðu það ekki? — Jú, kannske, sagði Edit. — Ilefirðu talað við hann pabba þinn? — Nei. — En liann er heima. Er það ekki? — Jú, hann situr inni i stofu og er að lesa blöðin. Þögn. — Þú getur farið inn til hans núna, sagði hún. Eiríkur kiknaði í hnjánum er hún leit á liann og hjartað sökk niður í botnlanga. — Finnst þér nokkur þörf á því, Edít? muldraði hann. — Já, sagði hún fastmælt. — Þú verður að fara til hans og spyrja hann hvort þú megir giftast mér. Hvað hef- irðu á móti þvi? Eiríkur ræskti sig hvað eftir annað. — Mér finnst það svo gamaldags. Þegar ungt nútímafólk er sammála um að giftast, þarf það ekki að spyrja foreldrana um leyfi. Það segir blátt álram við þau: — Við ætlum að gift- ast! Og svo geta þau sagt hvað sem þau vilja. — Þetta verður nú eins og ég liefi sagt. — Mér finnst það fram úr hófi ó- sanngjarnt að . . . — Nei, það er ails ekki ósanngjarnt og það Veistu mæta vel. Pabbi hefir ekki neinn nema mig, síðan Páll og Jörgen giftust. Þú veist hver einstæð- ingur liann verður þegar ég fer. — En við getum ekki biðið alla okk ar ævi eftir því að hann sætti sig við tilhugsunina um að verða einstæðing- ur. Og varla er liann svo singjarn að hann vilji svifta þig frjálsræði til ævi- loka. —- Hver segir það? Honum hefir aldrei dottið það í liug. En ég vil að þú farir til hans og segir honum þetta og fáir hann til að skilja, að hann verði að sjá af mér. Ég get ekki hugs- að til þess að fara frá honum þannig að honum finnist að ég hafi brugðist sér, og að hann verði einn síns liðs og ergi sig yfir því í elli sinni. — En hún Amalía frænka þín? Þú hefir sagt mér sjálf að liún sé fús til að koma og sjá um heimilið fyrir liann. — Já, hún er fáanleg til þess. En ég giftist ekki fyrr en ég veit að hon- um pabba er það ekki móti skapi. — Geturðu ekki spurt hann sjálf? — Nei, þú verður að gera það. — Jæja, þá það . . . iSannleikurinn var sá að Eirikur var i vanda. Hann hafði aldrei beðið föður um dóttur hans fyrr. Þetta var í fyrsta skipti. Þegar liann var að selja bíla var munnurinn á honum fyrir neðan nefið. En talfærin fóru í baklás þegar hann var kominn inn i stofuna til gamla skrifstofustjórans. — Hérna er hann Eiríkur, sagði Edít. — Hann segist þurfa að tala við þig um eitthvað . . . Hún ýtti lionum á undan sér inn gólfið og færði sig svo fram að dyr- unum. Þótt hún vildi ekki kannast við það var henni ekki rótt innan- brjósts heldur. Eiríkur vætti þurrar varirnar og byrjaði hikandi og stamandi. — Ja, þér verðið að afsaka, herra skrifstofustjóri . . . Skrifstofustjórinn lagði frá sér blaðið og skaut gleraugunum upp á ennið. Hann virtist ekki vera í sem bestu skapi Honum var illa við að fá lieimsóknir án þess að gesturinn gerði boð á undan sér, og þóttist ekki vera í vafa um hvert erindið væri. Ég veit hvað hann vill þessi gleið- gosi! — Heldurðu að ég viti ekki hvert erindið er? sagði hann livass. — Ég er svo sem ekkert hissa á því. Þú hefir komið hingað hvað cftir annað. Og loksins ætlar þú að stynja upp erindinu! Hann var vanur að þúa Eirík. Hann liafði þekkt hann frá því að hann var smápatti og hljóp upp götuna fimm minútum áður en skólinn átti að byrja, með töskuna hoppandi á bakinu. Og auk þess lá þannig á hon- um þessa stundina, að hann hefði þú- að hvern sem vera skyldi, jafnvel kon- unginn sjálfan. — Það stendur þannig á, sagði Eiríkur, — að við Edít höfum talað um að . . . — Já, en það kemur ekki til nokk- urra mála! urraði gamli maðurinn. — Við höfum líka hugsað okkur, stamaði Eiríkur, — að þér gætuð feng- ið einhvern annan . . . — Ég kæri mig ekkert um neinn annan! Eg kemst vel af svona. Hvers vegna má ég, ganrall maðurinn, ekki ráða þess lconar sjálfur. — Jú, en . . . þá þýðir kannske ekki . . . — Nei, tók gamli maðurinn fram í. — Við höfum ekki meira að tala um. í guðs friði. Eiríkur hörfaði skelkaður aftur á bak út að dyrunum. — Lokaðu hurðinni eftir þér. Eiriki féllst alveg hugur við siðustu kveðjuna. Hann ráfaði út að bilnum sinum og settist í hann og beið eftir að Edít kæmi. Honum hafði ekki get- ist að augnaráðinu hennar þegar hún heyrði hvernig samtalið snerist. Skrifstofústjórinn hagræddi sér í stólnum. Hann var ánægður yfir hve skýr svör hann hafði gefið strákn- um. Hann lét nú ekki svoleiðis kóna fara með sig í gönur. Hann gat svarað fyrir sig ennþá, heilabúið var í lagi. Hann teygði úr sér og fór að hugleiða livort hann væri eiginlega ekki allur í lagi. Jú, sprækur eins og lamb á stekk. Hann sá að Edít gekk niður garð- inn, og heyrði að bíllinn ók á burt. Hann hafði kannske gert of mikið úr því að hann væri orðinn gamall. Og kannske var þeim vorkunn, ungl- ingunum. En þeir liöfðu nú gott af því að lieyra sannleikann við og við. Hann gekk út í garðinn og náði i hrífu. Hann byrjaði á því að hreinsa til uiidir ávaxtatrjánum. Og það gekk svo fljótt að hann afréð að raka gang- ana líka, úr því að liann var kominn hingað á annað borð. Og þegar það var gert var kappið orðið svo mikið í honum að liann náði í skóflu og fór að pæla kartöflubeðin. Meðan þessu fór fram óku Edit og Eiríkur hægt út með sjó. Þau höfðu þagað óhugnanlega lengi. En allt í einu tók Edít til máls. — Mér er ráðgáta hvernig þú get- ur selt bíla. En þú kannt samt lagið á því. Verðurðu ekki alltaf klumsa þegar ])ú kemur innan um ókunnugt fólk? — Ég hefi selt marga bila, en ég hefi aldrei farið í bónorðsför, sagði Eiríkur. Hún lét sem hún heyrði ekki þessa ógáfulegu athugasemd. Þau óku áfram og þögðu enn. — Og þetta er svo ljómandi fallegt hús, sagði Eiríkur loksins.

x

Fálkinn

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Fálkinn
https://timarit.is/publication/351

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.