Fálkinn


Fálkinn - 01.05.1959, Page 11

Fálkinn - 01.05.1959, Page 11
FÁLKINN 11 LITLA SAGAN. L3MPTNN Diana Bólan forstjórafrú var að versla í Vöruhúsinu. Hún liafði lofað manninum sínum með sér, og hann tók upp budduna og borgaði ánægð- ur, þegar frúin sá eitthvað, sem hún þurfti endilega að kaupa, vegna þess að hún gat ekki neitað sér um það! En það var nóg af seðlum í veski for- stjórans, og þegar svo er ástatt cr iitill vandi að kaupa. Nei, við skulum ekki öfunda þau strax. Peningarnir eru ekki allt. Bólan forstjórafrú átti lika leið um lampadeildina. Hún liafði eiginlega ekki 'hugsað sér að kaupa neitt þar, en allt í einu kom hún auga á litinn livitan postulínslampa með Ijósrauðri Iilif. „Ó, en Iivað hann er töfrandi!“ and- varpaði hún og fór að skoða hann. „Hvað kostar hann, fröken?“ „Áttatíu og sjö og fimmtíu, frú!“ „Þökk fyrir — ég ætla að kaupa hann.“ „Nei, þú gerir það ekki,“ sagði Ból- an forstjóri og færði sig nær. Frú Díana leit á liann og andlitið varð stórt spurningarmerki. „Hvers vegna ekki, Gvöðmundur? Þetta er ljómandi fallegur lampi. Hann á svo vel við litla mahogni- horðið í horninu hjá slaghörpunni. „Ég sagði nei og ég meinaði nei!“ Það var farið að siga i forstjórann. „Hann kostar ekki nema . . .“ Forstjórinn var orðinn rauður í framan. „Þú færð hann ekki!“ rumdi i hon- um, svo hátt að glamraði í lömpun- um. „Þú verður að segja mér hvers vegna þú vilt hann ekki . . .“ Og forstjórinn sagði: „Síðast þegar ég fór út með þér og keypti lampa var nítján hundruð þrjátíu og átta,“ sagði hann ergileg- ur, „og það var einmitt svona krili eins og þetta þarna. Þá kostaði svona lampi að visu ekki nema hálfa þrett- ándu krónu, en það kemur nú í sama stað niður . . . Við vorum svo lil ný- gift þá, og ég lét þig fá lampann. Þú ættir að vita hve oft ég liefi iðrasl cftir ])að. Þegar þú komst heim og settir hann á borðið, kom það á dag- inn að í birtunni af honum sýndist áklæðið á sófanum og stólunum enn slitnara og snjáðara en áður. Og ]iess vegna varð ég að kosta upp á nýtt áklæði, og þegar það var komið sýndist gólfábreiðan svo slitin, og ég varð að borga nýja gólfábreiðu. Undir eins og lnin var komin á gólfið upp- götvaðir þú að veggfóðrið væri svo iipplitað að ekki vær hægt að nota það degi lengur. Svo fengum við nýtt veggfóður, og þá uppgötvaðir þú að við þyrftum málverk á þilin lika, dýr málverk i breiðum gullumgerðum áttu það að vera, því að annars var það ekki „í stíl“ sem þú kallaðir. Til þess að hafa efni á þessu öllu varð ég að vinna yfirvinnu í skrifstofunni, og þegar húsbóndinn minn uppgötvaði hve lúsiðinn ég var, gerði hann mig að skrifstofustjóra. Og þegar mér loksins gafst tækifæri til að sýna að töggur voru í mér var ég skipaður varaforstjóri, af því að ég var svo áhugasamur, og þegar sá gamli hætti Tískuhöfundunum til ánægju eru margar konur sem koma fram í fínustu skrautklæðum jafn eðlilega og frjáls- mannlega eins og þær væru í sínum venjulega hversdagsbúningi. Hér sjáum við þrjár hverja annarri fallegri. Til vinstri crepe-kjóll, í miðið úr tyl og pallúttum og til hægri mjög fínn kjóll sem er styttri að framan en aftan. ÚR ANNÁLUM. Framhald af bls. 7. líf, en hann vildi ekki þiggja fyrst þeir væri af teknir og hann skyldi ekki láta þess hefna. — Síra Björn var mjög sorgfullur vegna sinna barna, og hann bar sig næsta illa, og fékk ekki lif þó liann bæði þar um og lofaði aldrei að hefna. — En Ari var glaður, og sá lítið eða ekki á hon- um. Það er sögn manna ,að þá sein- ustu nótt er Ari lifði hafði hann alla nóttina gengið um gólf með söngv- um og lestrum, og fallið á bæn þess á millum, og um dægramót hafi albjart orðið í stofunni og ljós skinið innan uni hana alla. varð ég forstjóri. Og síðan hefi ég orðið að þræla eins og púlhestur allan sólarhringinn, til að halda öllu gang- andi, og aldrei liaft frið hvorki nótt eða dag ... Og allt þetta get ég þakk- að óþverrans lampanum. Ég var þús- undfalt hamingjusamari þegar ég var venjuleg undirtylla og átti með mig sjálfur undir eins og skrfistofutiminn var úti og klukkan sló fjögur. Og þess vegna, Díana mín: Þú færð ekki lamp- ann! Heldurðu að ég vilji eiga það á hættu fyrir einn vesælan lampa að verða skipaður aðalforstjóri!" Vitið þér...? að ýmsir veiða við neðansjávar- ljós? Aðferð þessi hefir verið fundin i Miðjarðarhafi, en nú er farið að nota liana í Indlandshafi með góðum ár- angri. — Veiðin er stunduð frá móð- urskipi, sem liefir tvo litla báta í för með sér. Litlu bátunum er lagt við stjóra með nokkru millibili, og frá þeim er rennt streng með rafljósum niður á hæfilegt dýpi. Fiskurinn rennur á Ijósið. Og þegar torfunnar verður vart leggur móðurskipið neti milli hennar og Ijósanna. hvaðan orðið „grog“ — heitt rommtoddy — stafar? Þegar enski aðmirállinn Vernon þóttist sjá, að sterka rommið, sem dát- arnir fengu á hverjum degi, hefði slæm áhrif á þá, fyrirskipaði hann, um 1740 að rommið skyldi borið fram í heitu vatni. Þessu var illa tekið fyrst i stað, en þegar frá leið likaði dátunum ronunið betur svona, og skirðu drykkinn í höfuðið á Vernon aðmírál, sem jafnan gekk undir nafn- inu „Capitain Grog“. COLA DPyKKUR (Spur)

x

Fálkinn

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Fálkinn
https://timarit.is/publication/351

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.