Fálkinn - 01.05.1959, Síða 13
t
FÁLKINN
rutt nýjar brautir í leikritagerð með
þessum leik, en að vísu orkar það tvi-
mælis livort honum hafi tekist vel eða
hvort leikurinn sé gallaður. Það liefir
verið rifist afar mikið um „Túskild-
ingsóperuna“ siðan hún kom fram, og
vitanlega hefir það verið hoilt fyrir
aðsóknina að henni.
Það er vandi að setja leik þennan
á svið, ekki síst þegar sviðið er ekki
stærra en i Iðnó. í fljótu bragði verð
ur ekki annað sagt en Gunnari Eyj-
ólfssyni hafi tekist það vel. Þarna
þarf að skipta níu sinnum um leik-
svið, allt frá búningsherbergi betlar-
anna og til aftökuklefans í Old Baily,
frægasta glæpamannafangelsi Lund-
úna. Og' á þessum sviðum lirærast nær
30 manneskjur, sem skipta má í ýmsa
flokka. í fyrsta flokki er götusöngvar-
inn (Steindór Hjörleifsson), Peachum
hjónin (Br. Jóhannesson og Nína
Sveinsdóttir), Polly dóttir þeirra (S.
Hagalín) og „tengdasonur“ (Jón Sig-
urbjörnsson). Þá kemur fjögra manna
bófaflokkur, fimm betlarar og fjórar
skækjur o. fl. o. fl.
Leikurinn gekk hratt og létt, sviðs-
útbúnaðurinn frumlegur og lýsti mik-
illi hugkvæmni. Sumar „typurnar“
verða ógleymanlegar, þó hlutverkin
væri ekki stór. Lög Kurt Weills
(hljómsveitarstjóri Carl Billich) nutu
sín ágætlega og yfirleitt var svo mikið
klappað í Iðnó, að ekki var um að
villast að fólkið skemmti sér.
Til hægri:
Nína Sveinsdóttir,
Sigríður Hagalín og
Brynjólfur Jóhann-
esson.
Uon*-l4lií Itharnir
Forseti alþjóðasambands Lions-
kiúbha (Lions International), sem
telur 000 þúsund félaga í 90 þjóð-
löndum innan sinna vébanda, Mr. L.
Simms, kom nýlega til Beykjavíkur
frá Kaupmannahöfn. Hann kemur
hingað i opinbera heimsókn til Lions-
klúbbanna á íslandi.
Lionsklúbbarnir hér á landi eru nú
13 talsins, þar af 8 utan Reykjavíkur
á eftirtöldum stöðum: Siglufirði, Ak-
ureyri, ísafirði, Hafnarfirði, Akranesi,
Keflavík, Borgarnesi og Njarðvíkum.
Tala félagsmanna í öllum Lionsklúbb-
unum hér á landi er nú 380.
Þór Guðjónsson, veiðimálastjóri. nú-
verandi umdæmisstjóri Lionsklúbb-
anna á íslandi, tók á móti Mr. Simms
við komuna og með lionum voru
nokkrir forvigismenn Lionsklúbbanna
hér, þar á meðal allir þrir fyrrverandi
umdæmisstjórar, þeir Magnús Kjaran,
stórkaupmaður, Guðbrandur Magnús-
son, forstjóri og Einvarður Hallvarðs-
son, skrifstofustjóri. Mr. Simms hafði
hér aðeins sólarhrings viðstöðu og
mun hafa ærið að starfa þennan stutta
tíma. Ilann heimsótti forseta íslands
og borgarstjórann í Reykjavík. Mr.
Simms er fyrsti forseti alþjóðasam-
bands Lionsklúbba, sem heimsækir
Island.
Sögu sína eiga Lionsklúbbarnir að
rekja til Bandaríkjanna, en þar var
fyrsti klúbburinn stofnaður árið 1917.
Hreyfingin breiddist fyrst hægt út um
Bandaríkin og siðan til annarra landa.
ísland var 32. landið ,sem tekið var
upp í alþjóðasambandið, en í dag eru
starfandi yfir 14.000 Lionsklúbbar i
heiminum, og er félagatala um 600.000.
Fyrsti Lionsklúbburinn á íslandi
var stofnaður í Reykjavík fyrir tæp-
um átta árum. Aðal’hvatamaður að
stofnun hans var Magnús Kjaran, stór-
kaupmaður, en hann var einnig fyrsti
formaður. Framkvæmdastjóri Lions-
klúbbanna á Norðurlöndum, Hadar
Wahrenby, varð fyrstur manna til þess
að kynna markmið þeirra og starf-
semi hér á landi. Hann hefir oftsinn-
is heimsótt ísland og var nú i fylgd
með Mr. Simms.
Lionshreyfingin á íslandi hefir vax-
ið hröðum skrefum undanfarin ár,
enda er nú svo komið, að þessi starf-
sem er talin standa með meiri blóma
liér en víða annars staðar i heimin-
um. Fyrsti klúbburinn utan Reykja-
víkur var stofnaður á Siglufirði árið
1954.
Ekki liðu nema tæp fimm ár, þar
til ísland var gert að sérstöku um-
dæmi innan Lionslireyfingarinnar
með sömu réttindinum og umdæmin
í hinum stóru þjóðlöndum. Fyrsti um-
dæmisstjóri hér á landi var kjörinn
Magnús Kjaran.
Lionsklúbbar um víða veröld starfa
allir með svipuðum liætti, þótt nokk-
uð gæti þjóðlegra sérkenna. Þeir
vinna hver um sig og stundum margir
saman að framgangi margs konar
mannúðar- og félagsmála. Sem dæmi
um starfsemina hér á landi má nefna
aðstoð við blinda í samstarfi við
blindravinafélögin, styrki til öryrkja,
ekkna og munaðarlausra, og stuðning-
ur við krábbameinsfélög, barnaheim-
ili og sjúkrahús, svo eitthvað sé nefnt.
Mr. L. Simms.
Mikið og náið samstarf er milli
Lionsumdæma víða um heim, og cinu
sinni á ári liverju er efnt til sam-
eiginlegs ársþings alþjóðasambands
Lionsklúhbanna, og verður jiað að
þessu sinni haldið i New York í júní
næstkomandi.
Framhald á bls. 14.
ADAMS0N
Myndhöggvari.