Fálkinn - 29.05.1959, Side 15
FÁLKINN
15
SÓL GRJÓH efla hreysti
0| heilbrigði
eggjahvítuefni.
Trúlofunarhringir
ljósir, rauðir. — Steinhringar fyrir dömur og herra. —
Hálsmen, armbönd, gull og silfur. — Borðbúnaður, silfur,
plett. — Úr fyrir dömur og herra, gull og stál.
Tegundir: Marvin, Dames, Tissot, Certina, Eterna.
Laugavegi 50. — Reykjavík.
Mtita Haywarth
slœr sér upp
Þangað til fyrir tíu árum var
æfi Ritu Hayworth samanhang-
andi dans á rósum. Enginn var
dáðari en hún og milljónagróði á
hverri einustu mynd, sem hún lék
í, syngjandi og dansandi. En svo
steðjaði hver ógæfan að henni ann-
arri verri. Hún lenti í giftinga-
braski — fyrst átti hún Holly-
wood-bankastj órann Edward Jud-
son, síðan leikarann Orson Welles,
þá Ali Khan og loks söngvarann
Dick Haymes. Og ný og ný hneyksl-
ismál urðu í hverju hjónabandi.
Leikvinsældir Ritu köfnuðu í öllum
hneykslunum og kvikmyndafélögin
hættu að bjóða henni ný hlutverk.
Og svo lagðist hún í veraldarflakk
með dætur sínar, Yasmin og Re-
beccu, til þess að reyna að ná sætt-
um við annanhvorn hinna afdönk-
uðu eiginmanna sinna: Orson Well-
es eða Ali Khan.
En nú er Rita endurfædd í enn
fullkomnari mynd en áður. Hún
syngur og dansar einsog fyrr, og
er líka orðin allra besti leikari, en
leikþróski hennar þótti ekki á
marga fiska áður. í kvikmynd sem
nýlega er farið að sýna leikur Rita
það sem hún er: fertuga konu, og
tekst það með svo miklum ágætum
að gagnrýnendurnir hafa hrifist og
hefja hana til skýjanna. Þeir segja
að hún sé endurfædd og að lífið
byrji um fertugt. Sá sem mestan
á heiðurinn af þessari endurfæð-
ingu hennar er fimmti maðurinn
hennar, kvikmyndastjórinn James
Hill, sem fékk hana til að byrja að
leika aftur og hefur séð um töku
hinnar nýju myndar.
Og svo var það fylgdarmaðurinn,
sem sagði: — Þið verðið að fara
varlega hérna og ekki detta í ein-
stiginu, því að fyrir neðan er 400
metra þverhnýpi. En ef þið skylduð
vera svo óheppin að detta, þá skul-
uð þið líta til hægri, því að annað
eins útsýni og þar er ekki til í öllu
landinu.
★
Beta: — Er maðurinn þinn alltaf
jafn skotinn í þér?
Kata: — Já, hann hefui' aldrei
verið skotnari. Hann segir svo
margt fallegt við mig upp úr svefn-
inum, en það er skrítið að hann
kallar mig alltaf Betu.
★
— Jæja, Óli litli, geturðu sagt
mér hver var fyrsti maðurinn í
veröldinni.
— Já, það var hann Ingólfur
Arnarson, kennari.
— Nei, taktu nú á betur. Það var
hann Adam.
— Já — ef maður á að telja út-
lendinga með.
TÓMATOSTUR
HANGIKJOTSOSTUR
KJARNAOSTUR
RÆKJUOSTUR
SCHWEITZEROSTUR
BRAUÐOSTUR
GÓÐOSTUR
GRÆNN ALPAOSTUR
KÚMEN OSTUR
GOUDAOSTUR
öéi'ar-ct/ Am/ðiAaám
fWWVWWb
*
LA€ASG.inálið
Framh. af bls. 5.
og fór að safna myndum eftir
Utrillo og Renoir og var auk þess
Parísarfréttaritari „Ladies Home
Journal“. Hún þekkti hvern kjaft
í samkvæmisheiminum, stjórnmála-
menn, listamenn og fjármálamenn,
og á hátíðasýningu í Óperunni, í
tilefni af heimsókn Grikkjakon-
ungs, 8. júní 1956, sást hún með
Domenicu Walter, Jean Lacaze og
Lacour lækni. En nóttina eftir dó
frú Biddle úr hjartaslagi.
Síðan k om á daginn að frú
Biddle og síðari maður Domenicu
Walters þekktust — höfðu kynnst
á málverkauppboðum. Ennfremur
að frú Biddle átti fjölda hlutabréfa
í Zellidjanámunum. Domenica og
bróðir hennar segjast ekki hafa hitt
frú Biddle nema fám sinnum, en nú
er verið að rannsaka hvort þau segi
það ekki ósatt. Ennfremur á að
grennslast betur eftir dánarorsök
frú Biddle. Hún var aðeins fimm-
tug og var talin stálhraust.
Það brestur því mikið á að þetta
mál sé upplýst. En komandi vikur
og mánuði verður það enn mesta
umræðuefni almennings í París.
-♦-
Ég skil ekki hvernig þú getur
sagt að þú fáir alltaf sama matinn.
Á mánudaginn fékkstu pönnuegg,
þriðjudaginn eggjahræru, miðviku-
daginn eggjaköku og í dag færðu
soðið egg.