Fálkinn - 24.07.1959, Page 2
2
FALKINN
I»að er sennilegt að innan
skamms hverfi öll sólarsmyrsl og
-olíur úr sögunni. Því að nú er farið
að framleiða pillur, sem gera hör-
undið brúnt, jafnvel þó að það
njóti alls ekki háf jallasólar og mik-
illar útiveru.
Það er í Bandaríkjunum, ,sem
farið er að gera tilraunir með þess-
ar pillur, og það er ríkisstjórnin
sjálf, sem gengst fyrir því og hef-
ur borgað manninum, sem gerði
þær fyrstur, 72.000 dollara til þess
að hann geti haldið tilraununum
áfram. Eru þær gerðar í háskólan-
um í Oregon. Hefur háskólinn aug-
lýst eftir ungum stúlkum, Ijós-
hærðum eða rauðhærðum, því að
þeim hættir mest við að sólbrenna.
Hafa tvö búsund verið valdar til
þess að gera tilraunirnar á. Þær
gátu ekki tekið sólbað án þess að
sólbrenna illa — fá blöðrur eða
flagna — en nú eru þær látnar taka
pillurnar og bolir hörundið þá sól-
ina vel og verður brúnt svo að segja
undir eins.
Efnið í þessar undrapillur er
unnið úr illgresi sem vex víða í
Austurlöndum, meðal annars á Níl-
árbökkum. Hefur jurt þessi verið
kunn síðan á 13. öld og notuð sem
Iyf við sjúkdómi einum, sem lýsti
sér þannig, að fólk fékk hvítar
skellur á hendurnar. Það var til-
viljun að menn tóku eftir að jurtin
var einnig gegn sólbruna. Á lækna-
máli lieitir hún „8-Meroxypsoral“.
Hún verkar ekki á yfirborð hör-
undsins eins og sólarolíurnar held-
ur koma áhrifin innan að, og hör-
undið brúnast miklu fljótar en af
olíum. Eru áhrifin fljótust að koma
í ljós ef pillan er tekin tveim tím-
um áður en maður sólbakar sig, og
þarf ekki nema dauft sólskin til
að hörundið brúnist.
Fyrstu tilraunirnar voru gerðar á
föngum í Arizona-ríkisfangelsinu.
Þeir fengu 5 dollara hver fyrir að
taka pillurnar og fara svo í sólbað.
Sumir fengu blöðrur á bak og axl-
ir, en það kom af því að skammt-
urinn var ekki mátulega stór. Pill-
urnar eru dýrar ennþá. — 15 cent
stykkið — en 'þegar farið verður
að framleiða þær í stórum stíl verð-
ur hægt að lækka verðið mikið.
Firmu, sem framleiða sólarolíu bú-
ast við að sú vara hverfi úr sög-
unni, og bjóðast nú til að taka að
sér framleiðslu og sölu á pillunum
í staðinn.
★
— Gefðu mér shilling, pabbi. Eg
ætla að kaupa mér epli.
—■ Þú mátt ekki vera svona
eyðslusamur, segir faðirinn, sem
er Skoti. — Gefðu eplasölukonunni
langt nef og rektu út úr þér tung-
una, og þá hendir hún í þig epli.
pegar veöri6 er rakt og kalt þarfnast
húð yðar sérstakrar umönnunar. Nivea-snyrt
huð helst æskufrísk og silkimjúk, einnig þott
veður se slæmt. Nivea-krem inniheldur
Eucerit, þessvegna smígur pað djúpt inn í
húðina og gerir hana silkimjúka og stælta.
lh(| Gegn hrjufri hú<b.
Ný glæsileg kjörbúð.
Fyrir nokkrum dögum var opnuð
ný verzlun nyrzt í Laugarásnum,
þar sem upp er risið stórt og mikið
íbúðarhverfi og á líklega eftir að
stækka, því áætlað er að þarna
komi nokkrir íbúða-„skýjakljúfar“
í viðbót við þann eina, er þarna
blasir við himinn, innan um falleg
ibúðarhús.
Eigendur hinnar nýju verzlunar
eru þeir Hreinn Sumarliðason og
Sigþór J. Sigþórsson, sem um ára-
bil hafa verið verzlunarstjórar í
sinni hvorri Kiddabúðinni, og ættu
það að vera talsverð meðmæli, því
Kiddabúðirnar hafa jafnan þótt
bera af öðrum verzlunum með
vöruvöndun og lipra afgreiðslu.
Hinir ungu kaupmenn hafa kom-
ið öllu fyrir einkar smekklega í
verzlunarhúsnæði sínu. Hvergi of
og hvergi van, enda innréttingar
hinar smekklegustu og geymslu-
pláss mikið og gott.
Mega því íbúar þessa hverfis vera
ánægðir með þessa nýju verzlun í
hverfi sínu, „hverfi, sem þegar er
orðið stærra en sum kjördæmin úti
á landi“, eins og einhver komst að
orði er fréttamönnum var boðið að
líta á verzlunina.
M0T0IMP0RT
Foreign Trade Enterprise
Warzawa, Przernyslowa 26, Poland
P. O. Box 365
Símnefni: MOTORIM WARSZAWA
Vér bjóðum yður:
FSO „Warszawa" — 5 farþega vagn með rúmgóðri
geymslu til langra ferðalaga.
Ennfremur:
„Nysa“, lítinn strætisvagn fyrir 10 farþega,
„Nysa“ sjúkrabifreið, sem flytur tvo sjúklinga, all-
ir með yfirbyggingu af gerðinni FSO ,,Warszwa“.
Gjörið svo vel og leitið nánari upplýsinga hjá
GÍSLI JÓNSSON & CO., Ægisgata 10, Reykjavík.