Fálkinn - 24.07.1959, Blaðsíða 14
14
FALKINN
. . . Og fjórar brennivín —
Framh. af bls. 5.
að það var verið að gifta á Hóli, já,
og skíra ... já, ertu ekki hissa og
okkur ekki boðið, eigum við ekki
bara að fara .. . ha, já, ég kem til
þín á eftir . . . ha, rabbabarann . . .
æ, heldurðu að ég hafi ekki. .. Nei,
allt í lagi, ég skal senda hann Steina
með hann .. . bíddu aðeins ... já,
Brún, hérna er Reykjavík fyrir
Gunnar, hann hefur þá ekki verið
hátt uppi í fjalli... halló, mamma,
.. . já, það er aldrei friður ... já-já,
jæja, ég kem upp úr sjö. Ha? hvað
segirðu, nýi presturinn ... já, hvað
heldurðu að ég hafi heyrt, nei, ég
get ekki sagt þér það í símann. Já-
já, blessuð mamma mín. Já, hann
verður áreiðanlega ekki lengi hér
. . . og á hann ekki tvö börn vestur
á fjörðum? ... Bless elskan ... Hóll
... halló, Hóll... Hvað er með
þennan Þorstein? ... finnst ekki. ..
Já, hver ætlar þá að taka skilaboð-
in? Já, jú-jú . .. gjörðu svo vel.
Nú hlýtur röðin að koma að mér,
hugsa ég og rétt á eftir heyri ég
afgreiðslustúlkuna gefa Reykjavík
upp númerið, sem ég bað um. Enn
bíð ég nokkra stund og þá segir hún
mér, að það svari ekki.
Ég þakka fyrir og fer. Geng út
úr þorpinu. Það tekur mig ekki
nema fimm mínútur og þegar ég
fer framhjá húsi kaupfélagsstjór-
ans þá sé ég hvar hann stendur við
gluggann með svarta þverslaufu og
hátt söðulbakað nef í laginu alveg
eins og rassinn á keramíksbjörnun-
um hans Guðmundar frá Miðdal.
Það er sem sé búið að draga hansa-
gardínurnar upp því sólin er komin
í hvarf og þó hún fegin vildi, þá
gæti hún ekki gert útskornu arm-
stólunum með gefjunaráklæðinu
hið minnsta mein.
-k Skrítlur
Skozkur bóndi sem bjó við
vatn, verslaði við kaupmann, sem
bjó fyrir handan vatnið. Hann not-
aði bát á sumrin, en á vetrin var
vatnið á ís og þá var konan látin
fara til kaupmannsins.
Svo var það einn dag að vori, að
farið var að hlána og ísinn var ekki
traustur. Bóndinn skrifaði á seðil
allt það, sem konan átti að kaupa,
og bætti svo við neðst á blaðið:
„Vegna þess að ísinn er ekki trygg-
ur, sendi ég peningana fyrir þetta
í póstinum.“
★
Gömul kona er á knattspyrnu í
fyrst skifti, og spyr þann, sem hjá
henni situr: — Hvers vegna hafa
þeir þetta net á markstöngunum?
— Þeir gera það til þess að flug-
urnar bíti ekki markvörðinn.
Konan spyr læknirinn, sem er að
skoða manninn hennar:
— Er hann dáinn, læknir?"
— Já, hann er líklega að skilja
við, segir læknirinn.
—- Þá rumskar maðurinn og
segir: — Nei, ég er lifandi.
— Hvað ertu að þvaðra, Run-
ólfur, segir konan. — Heldurðu að
læknirinn viti þetta ekki betur en
þú?
★
— Ég vona að við fáum ekki tvær
brúðkaupsgjafir af sömu tegund,
því að það er svo leiðinlegt, sagði
hún viku fyrir brúðkaupið.
— Segðu það ekki, svaraði hann.
— Hann pabbi hefur lofað mér tíu
þúsund krónum, og mér þætti ekki
verra þó hann pabbi þinn gerði
eins.
★
Trúlofunarskeiðið er tímabilið,
sem stúlkan notar til þess að rann-
saka, hvort hún geti fundið nokk-
urn betri.
Afgreiðsla FÁLKANS er flutt að Vesturgötu 3
HrcAAcfáta 'JálkanA
Lárétt skýring:
1. Kvelja, 5. Fyrirgefning, 10.
Gyðjur, 11. Rölta, 13. Tónn, 14. Mál-
helta, 16. Valdi, 17. Samhljóðar, 19.
Stafur, 21. Óðagot, 22. Kjúku, 23.
Málmur, 24. Rösk, 26. Hangsa, 28.
Mynni, 29. Þrep, 31. Ask, 32. Nýj-
ung, 33. Refsaði, 35. Karlmanns-
nafn, 37. Ólíkir, 38. Fangamark, 40.
Ferma, 43. Rangt, 47. Hímir, 49.
ílát, 51. Tæpt, 53. Ýtt, 54. Kvenn-
heiti, 56. Litla, 57. Verkur, 58. At-
viksorð, 59. Ótta, 61. Vond, 62.
Fangamark, 63. Órækt, 64. Bit, 66.
Forskeyti, 67. Frægðarverk, 69.
Jafningjar, 71. Merki, 72. Smávik.
Lóðrétt skýring:
1. Tónn, 2. Upphrópun, 3. Fugl,
4. Hrafnaspark, 6. Hrúður, 7. Lægð,
8. Sunds, 9. Samhljóðar, 10. Hrút-
ur, 12. Sláturfé, 13. Kjassa, 15. Full,
166. Málmur, 18. Einkar, 20. Renn-
ingur, 23. Smábrellur, 25. Grein,
27. Tveir eins, 28. Sendiboði, 40.
Kjánar, 32. Léttir, 34. Þrír eins, 36.
Dýr (þf.), 39. Norðurlandabúi, 40.
Úrþvætti, 41. Flokkur, 42. Gjörsam-
lega, 43. Hvatning, 44. Lofttegund,
45. Gælunafn, 46. Bás, 48. Káma,
50. Líkir, 52. Litar, 54. Keipa, 55.
Stjórnsemina, 58. Deyfð, 60. Vaxa,
63. Forsetning, 65. Þrir eins, 68.
Tveir eins, 70. Fangamark.
LAUSN Á SÍÐUSTU KROSSGÁTU.
Lárétt ráðning:
1. Gauka, 5. Skata, 10. Flaga, 11.
Erill, 13. SN, 14. Alma, 16. Lafa, 17.
ÚB, 19. Kæn, 21. Ský, 22. ísur, 23.
Hlass, 26. Bóas, 27. Mar, 28. Snoð-
inn, 30. MNN, 31. Líkan, 32. Nóann,
33. Ýl, 34. TU, 36. Salli, 38. Risna,
41. Lán, 43. Auðkennt, 45. Sök, 47.
Afar, 48. Rimma, 49. Skrá, 50. Gár,
53. All, 54. DT, 55. Gegn, 57. Ausa,
60. ÁK, 61. Trega, 63. Naumt, 65.
Ósink, 66. Garri.
Lóðrétt skýring:
1. Gl, 2. AAA, 3. Ugla, 4. Kam,
6. KEA, 7. Arfi, 8. Tia, 9. AL, 10.
Fnæsa, 12. Lúkan, 13. Skíma, 15.
Adlon, 16. Lúsin, 18. Býsna, 20.
Nurl, 21. Sónn, 23. Hnallur, 24. AÐ,
25. Snótina, 28. Skýla, 29. Naust,
35. Flagð, 36. Snar, 37. Iðinn, 38.
Remma, 39. Aska, 40. Skálk, 42.
Áfátt, 44. LM, 46. Örlát, 51. Legi,
52. Ósar, 55. Ges, 56. Gan, 58. Una,
59. Aur, 62. Ró, 64. Mi.