Fálkinn - 14.08.1959, Qupperneq 3
FÁLKINN
3
^kemintíJtaíir bœjamxá
mest sóttir af utanbæjarfólki þessa dagana
Hinir ýmsu skemmtistaðir höfuð-
borgarinnar eru mikið sóttir af ut-
anbæjarfólki þessar vikurnar. Með-
an Reykvíkingar bregða sér út á
land í sumarleyfinu sækja utanbæj-
armenn okkur heim í sínu sumar-
leyfi. Bregða sér þá gjarnan í kvöld-
verð í Naustið, kíkja svo kannske
á barinn á Borginni áður en þeir
skreppa á dansleik í Þórscafé.
Gestkvæmt hefur verið mjög á
Hótel Borg á kvöldin, af bæjarbú-
um sem utanbæjargestum. Mun ein
höfuðástæðan fyrir hinni auknu að-
sókn þar vera sú, að Ragnar Bjarna-
son syngur þar með hljómsveit
Björns R. Einarssonar. En hljóm-
sveitin hefur verið endurskipulögð
og með aðstoð Ragnars orðin að
söngtríói ásamt aðstoðarmönnum,
því meirihluti laganna sem hljóm-
sveitin flytur eru sungin. Þeir Ragn
ar, Björn R. og Ólafur Gaukur sjá
um sönginn. Er þetta eitt af því
allra bezta, sem heyrst hefur til
hljómsveita hér á landi og svo
sannarlega þess virði, að þeir sem
gaman hafa af vel fluttri dansmúsík
bregði sér á Borgina kvöldstund, þó
ekki sé nema til að hlusta. Hins
vegar hefur Borgin alltaf verið við-
urkennd fyrir góðar veitingar.
Fyrst farið er að tala um söng má
geta þess, að Naustið, sem við
minntumst á í upphafi greinarinn-
ar, hefur nú ráðið til sín söngkon-
una Sigrúnu Jónsdóttur, en hún
var um árabil okkar kunnasta söng-
kona. Syngur hún með hljómsveit
Carls Billich fjögur kvöld í viku
og hefur henni í engu farið aftur,
nema síður sé. Er henni óspart
klappað lof í lófa að loknu hverju
lagi, enda ekki komið fram söng-
kona hér á landi er kemst með
tærnar þar sem Sigrún hefur hæl-
ana. Þjónusta hér á landi er hvergi
betri en í Nausti og staðurinn frá
fyrsta degi verið viðurkenndur fyr-
ir afburða vandaðar veitingar.
Aðrir staðir, hafa komið fram hér
í bænum, sem reknir eru með svip-
uðu sniði og fyrrgreindir tveir stað-
ir, þ. e. a. s. matur framreiddur og
danshljómlist leikin til kl. 11,30 e.
h. það eru Lidó og Röðull að ó-
gleymdum Þj óðleikhúskj allaranum,
sem reyndar hefur starfað í allmörg
ár. Lidó er stór og glæsilegur sam-
komusalur, sem líklegt er að verði
vinsæll er fram líða stundir, en það
getur tekið hina vanaföstu íslend-
inga mánuði og ár að átta sig á
nýjum veitingastað. í Lídó hefur
verið mikið úm erlendar söngkonur
allt frá því að staðurinn hóf göngu
sína, én flestar hafa þær haft það
Yvette Guy Leikhússkjallarans, iðandi af fjöri.
sameiginlegt að vera litlar sem eng-
ar söngkonur. Hefur hið misheppn-
aða val á þeim, kannske átt sinn
þátt í því, að alltof margir stólanna
eru oft auðir. Um þessar mundir
er þar amerísk söngkona, og líklega
í fyrsta sinn, sem amerísk söngkona
skemmtir í samkomuhúsi hér á
landi. Reynist hún vandanum vax-
in mun ekki þurfa að spyrja um
góða aðsókn, því góðir skemmti-
KK-sextettinn; Lengi getur gott batnað.
Hótel Borgar-þremenningarnir, Ólafur Gaukur, Ragnar
Bjarnason og Björn R.
Hún syngur allvel, en hæfileikar
hennar felast miklu frekar og fyrst
og fremst í því, að láta fólkið sjálft
skemmta sér, hún hefur viðkunn-
anlega framkomu, er síkát og dans-
andi af lífi og fjöri.
Svo er annar hluti samkomuhúsa
í höfuðstaðnum, sem rekinn er með
allt öðru sniði en fyrrgreind hús.
Það eru húsin þar sem dansleikir
eru haldnir frá kl. 9 á kvöldin til
kl. 1 eftir miðnætti og 2 ef það er
laugardagur. Þar ber að sjálfsögðu
hæst Þórscafé, sem opið er á hverju
kvöldi allan ársins hring. Þar ræð-
ur ríkjum KK sextettinn fimm
kvöld í viku og hefur sér til aðstoð-
ar söngvarana Elly Vilhjálms og
Guðberg Auðunsson, sem tók við
af Ragnari Bjarnasyni. Hljómsveitir
hér gerast ekki betri en KK sex-
tettinn og má snúa hinu gamal-
kunna máltæki við, „að lengi geti
vont versnað" og nota það um KK
sextettinn og segja, að lengi geti
gott batnað, því þessi skínandi góða
hljómsveit hefur orðið enn betri við
þær breytingar sem áhenni urðu
fyrir nokkrum vikum. Hinn nýi
söngvari hljómsveitarinnar, Guð-
bergur, er bráðefnilegur söngvari
og er ólíkt efnilegri byrjandi en
margir kunnir söngvarar voru er
þeir létu fyrst til sín heyra.
Utanbæjarfólk kemur gjarnan í
Þórscafé þegar það er á ferð hér
og þá er yngri kynslóðin í miklum
meirihluta.
Aðsókn er nokkur að Vetrai’garð-
inum, en þar hafa ýmsar hljóm-
sveitir leikið og ekki föst regla
komin á þau mál eftir að skipti
urðu á forstjórn staðarins fyrir
nokkru. Vetrargarðurinn er alls
ekki óþokkalegur skemmtistaður þó
stundum hafi þar verið sukksamt
á skemmtunum.
Góðtemplai'ahúsið, Framsóknar-
húsið og Tjarnarcafé starfa ekki yf-
ir sumarmánuðina og Sjálfstæðis-
húsið að mjög litlu leyti. Hins veg-
ar er Ingólfscafé og Breiðfirðinga-
búð opin seinni hluta vikunnar fyr-
ir dansleiki og þá helzt gömlu dans-
ana, sem alltaf eiga sinn stóra dans-
stígandi hóp og er unga fólkið í
miklum meiri hluta á þesskonar
dansleikjum, enda nokkur rækt ver-
ið lögð við að kenna gömlu dans-
ana undanfarin ár. Það hefur löng-
um einkennt gömlu dansa-dansleik-
ina, að di’ykkjuskapur er lítill á
þeim. Þangað kemur fólk til að
dansa og dansa aftur, enda skókaup
stór útgjaldaliður hjá gömuldöns-
endum!
Einn er sá staður, sem ekki hefur
kraftar draga að, hverrar þjóðar
sem þeir eru. Það sýnir aðsóknin að
Röðli, en þar hafa jafnaðarlega ver-
ið góðir skemmtikraftar og um leið
innlendir, þar sem þeir eru Haukur
Morthens og hljómsveit Ái'na Elf-
ars. Haukur er hinn ókrýndi kon-
ungur íslenzkra dægurlagasöngv-
ara. Honum vex ásmegin með
hvei'ju ári og vinsældir hans aukast
í jöfnu hlutfalli. Haukur er orðinn
allt annað og meira en venjulegur
dægurlagasöngvari. Hann bókstaf-
lega hefur það í hendi sér hvort
kvöldið heppnast eða ekki fyrir þá
sem sækja Röðul, því hann er lif-
andi á sviðinu, kynnir lögin af og
til á réttan og skemmtilegan máta
og fær fólkið til að taka undir söng-
inn — skemmta sér af lífi og sál.
Enda annað en gaman að fólk fai'i
óánægt út, eftir að hafa kannske
skilið eftir 4—5 hundruð krónur
fyrir kvöldverð og gómsæt vín. En
það þykir ekki ýkja stór upphæð
fyrir hjón að eyða á veitingastað.
Leikhúskjallarinn er nýbúinn að
fá til sín hina frönsku söngkonu
Yvette Guy, sem þar söng í fyraa
við fádæma vinsældir. Verður varla
við öðru að búast en að fullt verði
í Leikhúskjallaranum á hvei'ju
kvöldi, því engin erlend söngkona,
sem hingað hefur komið, hefur hrif-
ið hjörtu landans jafn augljóslega.
Framh. á bls. 15.