Fálkinn


Fálkinn - 28.08.1959, Page 15

Fálkinn - 28.08.1959, Page 15
FÁLKINN 15 hvítt, svipurinn harður og augun starandi. Hún stóð þarna í tvær sekúndur eftir að hióð var farið að renna nið- ur nefið á henni. Svo hneig hún niður í sandinn. Hinir uppreisnarmennirnir gáfust upp. Stóðu grafkyrrir og réttu upp hendurnar. Flutningabílalestin lagði af stað til aðalstöðvanna. Læknar skoðuðu lík Raymonde Peschard og það var grafið daginn eftir. En daginn eftir hafði vélbyssa verið lögð á leiði hennar — tilkynning frá uppreisn- armönnunum um að andstaða þeirra væri ekki buguð þó „Engillinn“ væri fallinn. ☆ KONUNGHOLLUR HÖFÐINGI. — Obi Oksi, valdsmaður í Onitsha í Nígeríu var konunglega klæddur, er hann tók á móti hertogahjónun- um af Gloucester fyrir nokkru. — Kóróna hans var alsett hermelin- bjórum, í skikkjuna voru ofnar myndir af Elizabeth drottningu. Og á bringunni dinglar Order of the British Empire, scm drottningin heiðraði hann með 1 fyrra. >f £krítlur Gömul ekkja var oröin leið á Reykjci vík og vildi kaupa sér hús upp í sveit. En hún var elcki ánœgð meö það, sem fasteignasalinn hafði að bjóða henni. — Nei, ekki líst mér á þennan stað, sagði liún. — Eg hef heyrt að það rigni svo mikið þar. — Það er nú eitthvað annað, frú mín. Ég á kunningja þar, sem rekur aligœsabú, og gœsirnar hafa ekki einu sinni lært aö synda. — Fyrirtœkið mitt er svo smátt, að ég annast allar bréfaskriftirnar sjálfur, sagði maðurinn. — Konan mín er svo dýr í rekstri að ég hefi ekki efni á að hafa vélritunarstúlku. — Það skil ég vel, sagði einn sem á hlustaði. — Eg þekkti einu sinni mann, sem hafði svo dýra vélrit- unarstúlku að hann gat ekki leyft sér að hafa eiginkonu. Milljóníus forstjóri œtlar að kaupa reiðhest lianda konunni sinni og er að skoða gœðinga hrossakaup- mannsins. —• Haldið þér að þessi tryllingur sé heppilegur kvenhestur? spyr for- stjórinn, sem er hikandi í valinu. — Já, ég get vel hugsað mér að sumt kvenfólk ráði við hann. En hitt er annað mál, að ég kœrði mig ekki um að vera giftur svoleiðis konu. — Mamma, sagöi Gunna litla, — hún frú Hansen kom hingað áðan og œtlaði að óska þér til liamingju með afmœlið. En af því að enginn var heima nema ég skrifaði hún kveðjuna sína í rykið á kommóðunni. — Það er alv&g ástœðulaust að kvíða fyrir þessu, sagði hjúkrunar- konan til að hugga sjúkling, sem átti að fara að skera. — Yfirlœknir- inn hefur séð nákvcemlega þennan uppskurð í sjónvarpinu. SOL GRJON efla hreysti e§ heilbrigði eggjahvítuefni. * Kaupmenn - Kaupfélög Haíið þér reynt hinar vinsælu sælgætisvörur frá NÝJU SÆLGÆTISGERBINNI H*F Mjög íjölbreytt úrval. Söluumboð: m)MJW waraaim UMBOÐS- & HEILDVERZLUN Grettisgötu 3. — Sími 10483.

x

Fálkinn

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Fálkinn
https://timarit.is/publication/351

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.