Fálkinn - 28.08.1959, Qupperneq 15
FÁLKINN
15
hvítt, svipurinn harður og augun
starandi.
Hún stóð þarna í tvær sekúndur
eftir að hióð var farið að renna nið-
ur nefið á henni. Svo hneig hún
niður í sandinn.
Hinir uppreisnarmennirnir gáfust
upp. Stóðu grafkyrrir og réttu upp
hendurnar.
Flutningabílalestin lagði af stað
til aðalstöðvanna. Læknar skoðuðu
lík Raymonde Peschard og það var
grafið daginn eftir. En daginn eftir
hafði vélbyssa verið lögð á leiði
hennar — tilkynning frá uppreisn-
armönnunum um að andstaða þeirra
væri ekki buguð þó „Engillinn“
væri fallinn.
☆
KONUNGHOLLUR HÖFÐINGI. —
Obi Oksi, valdsmaður í Onitsha í
Nígeríu var konunglega klæddur,
er hann tók á móti hertogahjónun-
um af Gloucester fyrir nokkru. —
Kóróna hans var alsett hermelin-
bjórum, í skikkjuna voru ofnar
myndir af Elizabeth drottningu. Og
á bringunni dinglar Order of the
British Empire, scm drottningin
heiðraði hann með 1 fyrra.
>f
£krítlur
Gömul ekkja var oröin leið á Reykjci
vík og vildi kaupa sér hús upp í
sveit. En hún var elcki ánœgð meö
það, sem fasteignasalinn hafði að
bjóða henni.
— Nei, ekki líst mér á þennan stað,
sagði liún. — Eg hef heyrt að það
rigni svo mikið þar.
— Það er nú eitthvað annað, frú
mín. Ég á kunningja þar, sem rekur
aligœsabú, og gœsirnar hafa ekki
einu sinni lært aö synda.
— Fyrirtœkið mitt er svo smátt,
að ég annast allar bréfaskriftirnar
sjálfur, sagði maðurinn. — Konan
mín er svo dýr í rekstri að ég hefi
ekki efni á að hafa vélritunarstúlku.
— Það skil ég vel, sagði einn sem
á hlustaði. — Eg þekkti einu sinni
mann, sem hafði svo dýra vélrit-
unarstúlku að hann gat ekki leyft
sér að hafa eiginkonu.
Milljóníus forstjóri œtlar að kaupa
reiðhest lianda konunni sinni og er
að skoða gœðinga hrossakaup-
mannsins.
—• Haldið þér að þessi tryllingur sé
heppilegur kvenhestur? spyr for-
stjórinn, sem er hikandi í valinu.
— Já, ég get vel hugsað mér að
sumt kvenfólk ráði við hann. En
hitt er annað mál, að ég kœrði mig
ekki um að vera giftur svoleiðis konu.
— Mamma, sagöi Gunna litla, —
hún frú Hansen kom hingað áðan
og œtlaði að óska þér til liamingju
með afmœlið. En af því að enginn
var heima nema ég skrifaði hún
kveðjuna sína í rykið á kommóðunni.
— Það er alv&g ástœðulaust að
kvíða fyrir þessu, sagði hjúkrunar-
konan til að hugga sjúkling, sem
átti að fara að skera. — Yfirlœknir-
inn hefur séð nákvcemlega þennan
uppskurð í sjónvarpinu.
SOL GRJON efla hreysti
e§ heilbrigði
eggjahvítuefni.
*
Kaupmenn - Kaupfélög
Haíið þér reynt hinar vinsælu sælgætisvörur frá
NÝJU SÆLGÆTISGERBINNI H*F
Mjög íjölbreytt úrval.
Söluumboð:
m)MJW waraaim
UMBOÐS- & HEILDVERZLUN
Grettisgötu 3. — Sími 10483.