Fálkinn - 04.09.1959, Síða 13
FÁLKINN
13
Gordon tók undir handlegginn á henni og leiddi
hana út að bílnum. Hún var gift Goroon. Hún
leit auðmjúklega til hans út undan sér. Hann
var ekki eins fallegur og Glen, en nú gerði hún
sér ljóst, að hún hafði aldrei séð jafn karlmann-
legan mann. Þrótturinn geislaði frá honum og
hún fann sig örugga í návist hans. Hún vissi að
hún gat treyst honum. Samt var henni svo und-
arlega órótt. En hún sagði við sjálfa sig að það
kæmi af því, að þetta hefði borið svo óvænt að.
Hún hafði verið að halda brúðkaup sitt. Og
marga komandi mánuði, kannske heilt ár eða
meira yrðu örlög hennar háð Gordon Westwood.
Hún varð að temja sér að tala um hann sem
manninn sinn. Og allt í einu óskaði hún þess að
Gordon en ekki Glen væri faðir barnsins, sem
hún gekk með. Hún varð hrædd við þessa til-
hugsun. Hún mátti ekki hugsa svona. Gordon
elskaði Aline del Monte. Anna einsetti sér að
gleyma því aldrei að þetta hjónaband var ekki
annað en viðskiptasamningur. Það var barnið,
sem Gordon vildi eiga. Ekki hún sjálf.
„Ertu þreytt?“ spurði hann allt í einu.
„Nei — ekki mjög,“ svaraði hún hikandi.
„Mér datt í hug að við gætum borðað dálítinn
kvöldverð eða síðla miðdegisverð eða hvað mað-
ur á að kalla það,“ sagði Gordon í léttum tón.
„Við verðum að drekka skál fyrir brúðkaupinu
okkar. Það er ástæðulaust að gera þetta að leið-
inda-atburði, eða finnst þér það, Anna?“
„Nei,“ svaraði Anna og hló, og henni fannst
sjálfri hláturinn óþarflega innilegur. „Það er
víst venjan að borða saman þegar viðskipti hafa
verið gerð,“ bætti hún við. En það vakti furðu
hennar að svipur Gordons breyttist í einni svipan
við þessi orð, og hún fór að velta fyrir sér, hvort
Framh.
FÁLKINN — VIKUBLAÐ MEÐ MYNDUM. —
Afgreiðsla: Vesturgötu 3, Reykjavík. Opin kl.
10—12 og 1^/2—6. Sími 12210.
Ritstjóri: Skúli Skúlason.
Félagsprentsmiðjan h.f.
-K-K -K-K 9< 9<
>f >f >f * * >f >f *
-X i< i< j< 1< i< 1< 1<
>f>f>f>f>f>f>f>f>f>f>f>f>f
an
Bráðum byrja skólarnir og
telpunum þykir mikið undir
því komið að vera í laglegum
kjólum þegar þær setjast á
skólabekkinn aftur eftir sumar-
leyfið. Héma eru þrjár fyrir-
myndir til athugunar, og von-
andi finnur einhver þeirra náð
fyrir augum vandlátu stúlkn-
anna. Til vinstri er jerseykjóll,
einlitur með röndóttri treyju,
hæfilegur á 15—16 ára stúlku.
— f miðju kjóll úr köflóttu
efni, með breiðu leðurbelti, sem
sama efni og í kjólnum er dreg-
ið gegnum. — Kjóllinn til
hægri er úr terylene. Hann er
með gylltum hnöppum og belt-
ið með stórri sylgju. Mikið
fleginn, svo að ágætt er að nota
prjónapeysu með honum í kuld-
anum.
>f>f>f>f>f>f>f>f
-x -x -X -x -X -X -X -X
Skattskrá Reykjavíkur
árið 1959
er til sýnis í Skattstofu Reykjavíkur, Alþýðuhúsinu
við Hverfisgötu, frá laugardegi 29. ágúst til föstu-
dags 11. september, að báðum þeim dögum með-
töldum, alla virka daga frá kl. 9—16, nema laugar-
daga kl. 9—12.
f skattskránni eru eftirtalin gjöld:
Tekjuskattur, eignarskattur, námsbókagjald,
kirkjugjald, kirkjugarðsgjald, tryggingargjald,
slysatryggingariðgjald atvinnurekenda, íðgjald til
atvinnuleysistryggingarsjóðs og skyldusparnaðar-
gjald.
Innifalið í tekjuskatti og eignarskatti er 1 % álag
til Byggingarsjóðs ríkisins.
Kærufrestur er tvær vikur og þurfa kærur að vera
komnar til Skattstofu Reykjavíkur, eða í bréfakassa
hennar, í síðasta lagi kl. 24 föstudaginn 11. septem-
ber.
Reykjavík, 29. ágúst 1959.
Skattstjórínn í Reykjavík.
wuvvvwwwvwvwvvuwvvv
Import-Export Agency
SKORIMPEX
Lodz, 22 Lipca 74, Poland.
Símnefni: Skórimpex Lodz.
Vér mælum með og seljum:
Hráar, blautsaltaðar SVÍNSHÚÐIR með burst.
Pólsk matsvara, öll fita vandlega hreinsuð burt.
Vigt allt að 2,5 kg.
Vigt frá 2,5 til 3 kg.
Vigt frá 3 kg. og 'þar yfir.
Flatarmál frá 50 til 55 fer-dcm.
Hrá BIFURSKINN — þurrkuð, fláð með sérstakri
„sack“ aðferð, hárið hvort heldur út- eða innhverft.
S t æ r ð i r :
Frá 55 til 60 cm. lengd
Frá 60 til 70 cm. lengd
lengri en 70 cm.
Sundurliðuð tilboð send þeim sem þess óska.
Gjörið svo vel að leita fyllri upplýsinga hjá
!§>endírá«li Pólska Alþýðulýðvcldisius,
Holsvallagötu 55, Reykjavík.