Fálkinn - 13.11.1959, Qupperneq 6
6
FÁLKINN
„Ég hef
enga rödd.“
Bing þolii’ ekki deilur og illyndi.
Hann er afar viðkvæmur. Auk þess
hefur hann leikið golf, og það orðið
til þess að hann umgengst mest
ákveðna manntegund, ekki aðeins
í Ameríku heldur líka í Evrópu.
Hann hefur þreytt golf við AJi
Khan suður við Miðjarðarhaf og
í Englandi hefur hann umgengist
heimafólkið í Buckingham Palace.
Hann kann ekki við sig þar sem
fólk tíðkar óvandað orðbragð og
ruddaskap. Þá verður hann ger-
samlega varnarlaus.
Hann hefur látið í ljós svo ekki
verður um villst, að hann hafi misst
trúna á sjálfan sig. Einhverntíma
sagði hann í viðtali: — Talaðu
ekki við mig um að ég sé duglegur,
eða að fólk geri sér háar hugmynd-
ir um mig. Ég er viss um að hver
sá sem sér kvikmyndirnar mínar
eða heyrir mig á grammófónplötu,
er sannfærður um að hann geti
leikið og sungið engu miður en ég,
sérstaklega ef hann syngur í bað-
kerinu. Og þetta er ofur eðlilegt,
ég hef engar sérstakar tiktúrur, sem
lærðir söngvarar temja sér, og þeg-
ar á allt er litið hef ég nærri því
enga rödd.
Samt varð ýmislegt til að gefa
honum trúna á sjálfan sig aftur.
Meðal annars það að hann kynntist
Buddy Bregman, en hann stjórnar
úrvals hljómsveit. Buddy kom til
hans með uppkast að samningi við
annað en grammófónfirma.
Fyrst vildi Bing ekki skrifa undir,
en Buddy gat sannfært hann um að
hann væri sannur listamaður, en
ekki venjuleg „stjarna“. Hann hefði
of lengi lagt sig í líma til þess að
fannst hún vera goðborin mann-
eskja, og jafnan var hún með hon-
um við hátíðleg tækifæri. Hún lá
veik þegar Bing veitti Oscar-verð-
launum sínum viðtöku, og hann
gaf sér varla tíma til að taka við
heiðursgripnum en flýtti sér heim
til Dixie.
Framsækin
stúlka.
En lífið gengur sinn gang og Bing
er sæll í nýja hjónabandinu með
Kathy, sem er þrjátíu árum yngri
en hann.
Kathy heitir réttu nafni Olive
Kathryn Grandstaff. Hún er yndis-
leg kona, 25 ára, bráðgáfuð og sér-
lega atorkusöm.
Ættingi hennar einn segir, að í
Robston í Texas hafi hún verið
næst besti nemandinn í skólanum
og langiðnust allra. Hún sá um út-
gáfu skólablaðsins, var tennismeist-
ari sveitarinnar, vann allar fegurð-
arsamkeppnir og dansaði á skemmti-
sýningum skólans. — Hún hefur
alltaf haft sjálfstraust, segir ann-
ar. — Hún hræddist aldrei neitt.
Hún var eiginlega eins og strákur
í hugsunarhætti.
Þó að frú Crosby síðaii hafi leik-
ið í 19 kvikmyndum á hún fáa vini
meðal kvikmyndaleikaranna. —
Hún er svo gáfuð, að þeir eru
hræddir við hana, segir reyndur
leikari í Hollywood.
Þegar maðurinn hennar er að
tala um að leggja árar í bát, leggur
hún allt kapp á að afla sér meiri
kunnáttu og menntunar. Hún hafði
lokið prófi í listsögu og bókmennta-
sögu í háskólanum í Texas, en hélt
áfram námi þrjú ár eftir það, þang-
að til hún giftist Crosby. Þá fór hún
á húsmæðraskóla.
— Ég var farin að fá samvisku-
bit, segir hún, — því að allar vin-
< s <> :
:
\ , :
i
.
Kathy og Bing koma á kvikmyndar-frumsýningu í Iiollywood.
Æ' í-í:. • .
* V '%
i
oromn uv'eiLur
ftur ?
þóknast smekk almennings, en ætti
nú að fara að gefa sig að æðri list.
Bing var sjálfur ættaður úr Missis-
sippidalnum, en þar er paradís
jazzins, að áliti Ameríkumanna. —
Bregman sagði honum að hann ætti
að breyta til og taka sér stil Louis
Armstrong og Bix Beiderbecke til
fyrirmyndar. — Þegar samtalinu
lauk var Bing orðinn sannfærður
og byrjaði nú að syngja á ný.
Og svo gerðist annað sem hristi
hann og vakti hann af sinnuleysinu,
sem hann hafði verið í síðan hann
missti konuna. Hann afréð að gift-
ast aftur.
Hjónaband hans og Dixie Lee
hafði verið með afbrigðum farsælt.
Hann giftist henni árið 1920, og er
einn af þeim fáu í Hollywood, sem
aldrei var bendlaður við framhjá-
tökur eða „hliðarhopp‘“ í hjúskapn-
um. Hann var stoltur af Dixie og
stúlkur mínar giftust og fóru að
eiga börn. Mig fór að langa að verða
húsmóðir,
Nú hefur hún eignast barn sjálf,
en áður lærði hún hjúkrun í spítala
í Los Angeles og stundaði jafnframt
nám í læknisfræði, efnafræði og sál-
arfræði í háskólanum þar.
Kathryn Crosby vill læra allt
SIBÞAIU UttEfN
rækilega. Hún byrjaði hjúkrunar-
nám sitt með því að gera hreint í
skurðstofunni.
— Þeir voru að skera mann við
krabbameini og ég horfði á. Ég
fór út, kastaði upp morgunmatnum
og fór svo inn aftur og hélt áfram
að þvo.
Jafnvíg Bing.
Hvers vegna leggur hún allt þetta
á sig í stað þess að eiga náðuga
daga í 14 herbergja íbúð Bings í
Beverley Hills, eða sumarhúsinu í
Palm Desert, á búgarðinum í Nev-
ada eða veiðistað Bings við Hayden
Laæe í Idahó?
— Það er miklu betra að vinna
en að sitja og hlusta á kerlingar
hafa að segja, segir hún. — Með
þessu móti læri ég að þekkja hlut-
ina sjálf.
Þannig talar kona Bings, film-
dísin og augasteinn mannsins síns
— en hann giftist í fyrra skiftið
þremur árum áður en hún fæddist.
Heldur hún áfram að leika í
kvikmyndum? Hún segist láta Bing
ráða því, en hann segist ekki amast
við því að hún haldi áfram að leika.
Leikur hún golf við Bing? Hún
segist ekki vilja gera það fyrr en
hún geti haft nokkurnveginn við
honum. Hún leggur mikla stund á
þessa íþrótt og stundar hana með
vísindalegri nákvæmi eins og allt
annað. — Syngur hún með Bing?
— Þegar hann syngur ætla ég að
vera heima og sjóða títberjamauk,
segir hún. — Ég vil ekki troða mér
inn á hans verksvið. Það væri gam-
an að vinna með honum; en ég vil
heldur ryðja mínar brautir sjálf.
Olive Kathryn Grandstaff Crosby
hefur rutt braut sína sjálf síðan
hún kom til Hollywodd 1953. Þá
var hún óþekktur og hugdjarfur
unglingur, sem kom í filmborgina
beina leið frá Texas, en þar er