Fálkinn - 13.11.1959, Síða 7
FÁLKINN
7
móðir hennar enn kennari í einum
skólanum.
Kathy fékk von bráðar samning-
inn við Paramount og skrifaði blöð-
um í Dallas og Houston kvikmynda-
fréttir. Crosby var einn af þeim,
sem hún skrifaði viðtal við, og hann
bauð henni með sér á veitingastað
-á eftir. Hún var aðeins tvítug og
hann var Bing Crosby. En þann
dag í dag man hún að þetta gerðist
24. júní og að þá var rigning, og að
jhún var í kjól úr rauðgulu tafti.
Árið 1955 fóru blöðin að tala um
þ>au og orða þau saman einkum
eftir að Bing hafði boðið henni með
sér í eitt meiriháttar samkvæmi.
Og árið 1956 tók hún þaþólska trú
(Bing er kaþólskur), keypti sér
brúðarkjól og flaug til Hayden
Lake. Og svo var lýst til hjónabands
—en Kathy kom ein síns liðs til
Hollywood aftur. Þau hafa hvorugt
vilja gefa skýringu á hvernig á því
stóð. En svo giftust þau allt í einu
í október 1957.
Crosby hefur jafnan verið orðfár
um sjálfan sig. En það hefur vitn-
ast gegnum Kathy, að hann er góð-
ur heimilisfaðir þó hann sé nokkuð
strangur.
Einu sinni fór Kathy með hann
heim til foreldra sinna í West Col-
umbia.
Þangað kom fjöldi fólks til að sjá
hann og tala við hann, segir hún.
— Mamma varð að fara í skólann
á hverjum degi, svo að nágrannarnir
undirbjuggu að öllu leyti móttök-
urnar heima. Bing varð að standa
og taka í höndina á fólki tímanum
saman, og hann fór í skólann og
söng fyrir nemendur móður minn-
ar.
Einu sinni keypti hún þröngar
buxur handa sér.
— Karlmennirnir hafa allt aðra
skoðun á fötum en við kvenfólkið,
segir hún. — Ég keypti mér nær-
skornar toreadorbrækur, en mann-
inum mínum líkuðu þær ekki. Hann
sagði að þær gætu komið til mála
eg ég sæti og væri að skrifa bréf
inni í herberginu mínu, en alls
ekki hæfar til að koma í þeim út
fyrir dyrnar. Honum finnst sjálfsagt
líka, að „shorts“ nái að minnsta
kosti niður á hnén.
Bing er ennþá lítið um öll blaða-
skrif. Fyrir nokkru voru hjónin
viðstödd golfkeppni í Palm Springs.
Bing sagði við áfjáðan ljósmynd-
ara: — Ég vil alls ekki láta taka
mynd af mér! En konan hans tók
þessu öðru vísi. Hún benti ljós-
myndaranum og sagði: — Hann
skipar mér að fara heim, ef þér
haldið áfram að reyna að ná mynd
af okkur. Viljið þér ekki lofa mér
að sjá keppnina?
— ★ —
George Morgan, 31 árs, frá Lan-
caster í New Yorkríki komst nýlega
í blöðin. Það var bílasali nokkur,
sem hafði kœrt hann fyrir lögregl-
unni fyrir að hafa stolið frá sér bíl.
Loks kom Morgan í leitirnar. Hann
hafði þá ekið bílnum 8000 kíló-
metra. Fyrir rétti neitaði hann að
játa sig sekan. Hann sagði, að bíla-
salinn hefði boðið sér að reyna bíl-
inn áður en hann keypti hann, en
ekkert minnzt á, hve langt hann
mœtti aka honum % þessari prófun-
arferð.
Frá Páli biskupi Jónssyni
Páll Jónsson, Loftsson í Odda, og
Ragnheiður systur Þorláks biskups
helga, Þórhallarsonar, vra uppi 1155
—1211 og biskup í Skálholti frá
1195 til dauðadags. Fyrir nokkrum
árum fannst steinkista hans með
beinum hans og bagli er verið var
að grafa fyrir hinni nýju Skálholts-
kirkju. Hér fer á eftir hrafl úr sögu
hans; tekið eftir Biskupasögum:
PALL var sonur Jóns, ins göfug-
asta manns, Loftssonar, Sæmundar-
sonar hins fróða. Móðir Jóns var
Þóra, dóttir Magnúss konungs ber-
fætts, en móðir Páls var Ragnheiður
Þórhallsdóttir,systir Þorláks bisk-
ups ins helga. Páll var fæddur upp
í Odda með Jóni, föður sínum, ok
lagði hann sjálfr ok svo aðrir því
meiri virðing á hann sem hann varð
eldri.
Páll var vænn áliti, fagreygur ok
fasteygr, hrokkinhárr ok fagrhárr,
limaðr vel ok lítt fættr, tilbjartr ok
hörundsljóss, meðalmaðr at vexti
ok manna kurteisastr. Hann var
næmr ok vel lærðr þegar á unga
aldri ok hagr at hvívetna, því er
hann gerði, bæði at riti ok at öðru.
Hann kvángaðist ungr ok fekk Her-
dísar Ketilsdóttur, vænnar konu ok
vel að sér át hvívetna, því er kven-
menn mátti prýða.
En er þau höfðu fá vetr saman
verit, þá fór Páll utan ok var á
hendi Haraldi jarli í Orkneyjum, ok
lagði hann mikla virðing á hann.
En síðan fór hann suður til Eng-
lands ok var þar í skóla ok nam þar
svá mikið nám, at trautt váru dæmi
til at nökkur maðr hefði jafnmikit
nám numit né þvílíkt á jafnlangri
stund. Ok þá er hann kom út til ís-
lands, þá var hann fyrir öllum
mönnum öðrum at kurteisi lærdóms
síns, versagerð ok bókalist. Hann
var ok svá mikill raddmaðr ok söng-
maðr, at af bar söngr hans ok rödd
af öðrum mönnum, þeim er þá váru
honum samtíða. Hann fór þá enn
til vistar í Odda ok hafði þá enn gott
yfirlæti, sem vert var.
En litlu síðar gerði Páll bú í
Skarði, ok var margs til fyrst fátt,
þess er hafa þurfti, en svá kom skör-
ungsskapr þeira beggja hjóna ok
góðvild vina í hald, at þau áttu ærit
hvervetna skamms bragðs, ok urðu
þau þó fyrir inum stærstum fjár-
sköðum, ok báru þau hann vel ok
prúðlega, enda var svá sem ekki
gerði af því, og þá óxu fé þeirra,
sem sær gengi á land. Páll var raun-
góðr ok fályndr ok þýðr við alla
vini sína ok alla góða menn, en
hann var stirðlyndr við vánda
menn, þjófa ok illmenni. Stjórnar-
maðr mikill var hann um alla hluti
í sinni sveit ok örr tilfara alls stað-
ar þar, er þurfa þótti til tilkvámu.
Páll var goðorðsmaðr, ok helt hann
svá alla sína þingmenn til allra
réttra mála, at hvergi varð þeira
hlutr undir. Páll átti fjögur börn,
þau er ór barnæsku kómust, við
Herdísi, konu sinni, sonu tvá ok
dætr tvær. Synir hans hétu Loftr
en Ketill, en dætr hétu Halla og
Þóra. Þau váru öll væn at áliti ok
vel at sér, þegar þau óxu upp.
Þorlákr biskup, móðurbróðir Páls,
lagði á hann mikla virðing ok unni
honum mikit ok bauð honum oft
til sín. En þótt nökkurir höfðingjar
væri andstreymir Þorláki biskupi,
þá var Páll honum því traustari
frændi ok fulltrúi sem aðrir gengu
meir undan. En þá Þorlákr biskup
andaðist, þá sýndi Páll enn sína ást-
ligri frændsemi en flestir allir hans
göfgir vinir.
☆
Ungur maður var að leita sér at-
vinnu og talar við stjórann í ein-
hverju stórfyrirtækinu.
— Reykið þér?
— Nei.
— Drekkið þér?
— Nei-Nei.
Þá heldur stjórinn áfram í spaugi:
— En þér hafið kannske gaman af
að vera með stúlkum?
Ungi maðurinn hristir höfuðiö:
— Nei-nei-nei.
— Ætlið þér að segja mér, að þér
hafið engan löst?
— Ojú, segir ungi maðurinn. —
Ég er lyginn.
—o—
Gamli maðurinn hafði setið lengi
í biðstofu lœknisins og var orðinn
óþolinmóður. Loks stendur hann
upp, gengur til dyra og segir: —
Ég held ég verði fremur að fara
heim og deyja eðlilegum dauðdaga.
£kritlur
Læknirinn var að tala við leik-
konuna frægu og sagði henni að
hún mætti ekki taka svefnpillur á
hverju kvöldi, því að það gæti kom-
izt upp í vana.
— Hvaða bull er þetta, sagði hún.
— Ég hef tekið þessar pillur á
hverju kvöldi í tólf ár og það er
ekki komið upp í vana ennþá.
•—- Tókstu eftir, hvernig þessi
kvenmanngála deplaði augunum
framan í þig?
Svíakonungur var á elgsveiðum
ásamt fríðu föruneyti. Lars Erik
skrifar kunningja sínum um þetta:
„Kongurinn kom og margir fínir
menn með honum, og kongurinn
skaut tvo . . .“
Afríkönsk útilega.
— Hvað verður hann sonur yðar
svo, þegar hann hefur lokið nám-
inu?
— Það eru mestar horfur á, að
hann verði gamall maður.