Fálkinn - 27.11.1959, Page 15
FÁLKINN
15
tÍuÉ'Mtisáiytt —
Framh. af 7. síðu.
til útlanda. Sumarið 1954 fór hann
til ítalíu og svo til Spánar nokkr-
um árum síðar. Hann vann sjálfur
fyrir peningunum, sem hann þurfti
í þessar ferðir, því að. hann var
næturvörður á K.F.U.M.-gistihús-
inu.
Stig var fálátur, þegar hann var
harn, en hann varð mannblendn-
ari með aldrinum og aldrei þegj-
andalegur eða stuttur í spuna. —
Hann var alltaf kurteis og vin-
gjarnlegur, líka hérna heima. Hann
í-eifst aldrei við neinn og kunni illa
við fautalegt fólk.
— Hvernig sýndi hann ykkur al-
úð hérna heima? Gældi hann við
ykkur?
— Nei, honum var illa við gælur.
En hann hrinti mér ekki frá sér
þó ég klappaði honum eða kyssti
hann á kinnina. En það var líkast
og hann legði kapp á að vera harð-
ur. Samt gældi hann við Ingu —
unnustuna sína — líka þó að við
værum nærstödd. Kannske var
hann enn ^blíðari við hana síðasta
missirið.
— Var honum grátgjarnt?
— Ég man ekki til að ég hafi
nokkurn tíma séð hann gráta, síð-
an hann var smákrakki. En hann
tók sér nærri og varð daufur í dálk-
inn, þegar eitthvað gekk honum á
móti.
— Dagbókin?
— Já, Stig hélt dagbók í mörg ár,
en svo eyðilagði hann hana. Hann
var mjög vanafastur í öllu, sem
hann tók sér fyrir hendur — jafn-
vel of nákvæmur. Auðvitað fengum
við aldrei að sjá dagbókina hans.
— Tókuð þér eftir að hann
breyttist snögglega — allt í einu?
— Ekki get ég sagt það. Hann
var alltaf í jafnvægi. Hann hafði
stundað laganám í tvö ár, en ekki
tekið próf nema í heimspekinni og
félagsfræði. Hann vann hjá mála-
flutningsmanni tvo tima á dag, og
á sumrin tók hann að sér vinnu á
hótelum. Hann kynntist útlending-
um á K.F.U.M.-hótelinu og stóð í
bréfaskiptum við marga þeirra . ..
ik
ROKBLÁSTUR. — „Varlega!“
stendur á kassanum, en hin unga
þýzka dansmær, Maria, fer alls
ekki varlega. Hún blæs í stóra
lúðurinn af svo miklum krafti,
að nóturnar hjá hljómsveit-
inni þyrlast eins og í ofsaroki.
SVISS I WALL STREET. — I
kauphallargötunni Wall Street í
New YORK heyrðust fyrir nokkru
sjaldgæfir tónar. Þar var kominn
svissneskur kvartett, sem blés í
alpahorn og jóðlaði. Stjórnaði
honum „Miss Bergmál 1959“ og
þátttakendurnir voru sonur henn-
ar, faðir og afi. Hún er meistari
í söngli'st þeirri, sem nefnist jóðl,
en hinir blása alpahorn. Kvart-
ettinn var fenginn til Ameríku til
að láta sjá sigogheyraí sjónvarpi.
Keisarinn er blankur
Hirohita Japanskeisari er blank-
ur og hefur áhyggjur af því. Sam-
kvœmt breytingunum, sem gerðar
voru á ýmsu, honum viðvíkjandi
eftir stríðið —• þar á meðal keisara-
mötunni — fœr hann ekki nema sem
svarar 2.5 milljón íslenzkum krón-
um á ári. Nú hefur hann beðið um
launaviðbót, sem svarar 40% af
þessum launum. — Fyrir stríðið
fékk hann sem svarar 5 milljón
dollurum í árslaun.
;! S
Ertu góöur í
þefuri j* |
Svokölluð ilmvatnssamkvœmi 5
eru nú komin í tízku í New York. 1
Hver stúlka, sem kemur í sam- í
kvœmið hefur með sér glas með i
lögg af ilmvatninu, sem hún hef- >|
ur notað, þegar hún var að búa 5
sig, og afhendir glasið húsfreyj- Í
unni í samkvcéminu. Hún útbýtir i
svo glösunum meðal piltanna, i
I> sem koma, og þeir eiga að „þefa S
;! sig fram“ til stúlkunnar, sem 5
;! glasið á. Mikil er smekkvísin! v
VVWUWJV^JWWJ^^V^JWWwi
FYRSTIATÖMKAFBÁTUR ENG-
LANDS. Nýlega var hafin smíði
fyrsta atómkafbáts Englands og
lagði Philip prins hönd að því
verki'. Myndin sýnir hluta úr kaf-
báti þessum, um 10 m. í þvermál.
Trúlofunarhringir
ljósir, rauðir. — Steinhringar fyrir dömur og herra. —
Hálsmen, armbönd, gull og silfur. — Borðbúnaður, silfur,
plett. — Úr fyrir dömur og herra, gull og stál.
Tegundir: Marvin, Dames, Tissot, Gertina, Eterna.
Laugavegi 50. — Reykjavík.
Biá.t 0M0
skilar yður
HVÍTASTA ÞVOTTI
í HEIIHI —
CiHHty bejt fyrit4 \niAlitaH