Fálkinn - 04.12.1959, Side 5
FALKINN
5
sjón — dómararnir gátu ekki efast
um, að þetta var sonur konungsins.
ÁST, REFJAR OG AFBRÝÐI.
Mircea Carol Gregoire af Hohen-
zollern-Sigmaringen er fæddur 8.
janúar 1920 í Búkarest. Móðir hans,
Jeanne Lambrino, oftast kölluð Zizi,
gat rakið ætt sína til hinna gömlu
höfðingja, sem á sinni tíð settu prins
af Hohenzollern-Sigmaringen (grein
af prússnesku Hohenzollernættinni)
í hásætið í Rúmeníu. Faðir Zizi var
hershöfðingi, og af því að hún var
aðalsmær og hershöfðingjadóttir
kom hún oft í samkvæmi hirðarinn.
ar. Nokkrum mánuðum áður en
fyrri heimsstyrjöldin hófst hélt fað-
ir hennar dansleik í Búkarest. Þar
var meðal gesta Carol, hinn ungi
erfðaprins. Hann dansaði, en ekki
sérlega vel. En hann dansaði við
Zizi, og það er aðalatriðið. Síðan
sáust þau oft saman — á veðreiðum,
í veiðiferðum, óperunni og skemmti-
ferðum.
Um þær mundir var að sjóða upp
úr í Evrópu. í Sarajevo myrti bosn-
iskur þjóðernissinni, Gavrilo Prin-
cip Franz-Ferdinand erkihertoga
Austurríkis og um leið skall stríðið
á. Carol var kvaddur í herinn og
bráðlega fór Zizi á vígstöðvarnar
eftir honum. Eins og Scarlet O’Hara
í „Gone with the Wind“ bauð hún
öllum hættum byrginn og hafði
stefnumót með elskhuga sínum. Þau
útlendri konungsætt. Zizi var rúm
ensk og engin prinsessa og nú dæmdi
hirðrétturinn hjónaband hennar ó-
gilt og marklaust. Síðan var Carol
sendur í siglingu kringum hnöttinn
til að gleyma raunum sínum. Hann
sendi Zizi sinni eldheit ástarbréf úr
hverjum viðkomustað og sagðist
alltaf skyldu telja hana konuna
sína, og lofaði henni fullri uppreisn
er hann kæmist til valda sjálfur.
En tryggðin var bláþráðótt í Car-
ol og hann var hverflyndur. Zizi
fékk brátt að kenna á því. Þegar
Mircea litli fæddist minntist enginn
á það í Búkarest. Hins vegar voru
allir að tala um brúðkaup Carols
og Helenu Grikkjaprinsessu. Þetta
var sárt fyrir Zizi, því að réttu lagi
átti þetta nýfædda barn hennar að
erfa hásæti Rúmena sem Carol III.
En í staðinn var Mircea ritaður í
kirkjubækurnar með nafni móður
sinnar, en „Faðirinn ókunnur". —
Þann 10. maí var brúðkaup Carols
og Helenu haldið í Aþenu, og 25.
október eignaðist hún son, sem
skírður var Michael. Rúmenar voru
montnir af nýja ríkiserfingjanum og
kölluðu hann „Mihatza" — Litla
Mikjál. En enginn skipti sér af Mir-
cea.
Zizi Lambrino fór til útlanda með
drenginn. Það var gert samkvæmt
skipun Ferdinands konungs, og þeim
leið vel — að minnsta kosti fyrst
í stað. Peningar komu mánaðarlega
Carol konungur. Mircea sonur hans er svo likur honurn, að enginn getur
efast um að hann sé rétt fe'Sraður.
RÚMENAPRINS
höfðu heitið hvort öðru eilífri tryggð
og svarið, að ekkert skyldi geta skil-
ið þau að.
Þegar leið að stríðslokunum fóru
þau á laun yfir landamærin til Rúss-
lands og létu gefa sig saman í grísk-
kaþólsku kirkjunni í Odessa. Það
var 31. ágúst 1918. Rússneski erki-
biskupinn Meleti Charoffsky gaf
þau saman, og vinir Carols úr hern-
um voru svaramenn. Nýgiftu hjón-
in voru afar sæl. En þegar þau komu
til Rúmeníu skömmu síðar, var
prinsinn tekinn fastur sem lið-
hlaupi. Það var gert samkvæmt
skipun föður hans. Ferdinand kon-
ungur og María drottning voru æf
yfir giftingu sonar þeirra. Töldu
hana hreint og beint brjálæði, og
sama sinnis voru flestir Rúmenar,
því að það er aðeins í æfintýrunum,
sem Öskubuska má eignast prins.
Carol er ekki einn því til sönnunar.
Hertoginn af Windsor og Leopold
Belgíukonungur hafa reynt það.
TVÖ KGL. „BABIES“. Zizi fékk
aldrei að gera hátíðlega innreið í
Búkarest, sem brúður erfðaprinsins.
Hún var ein og yfirgefin og maður-
inn hennar sat í fangelsi. Það var
látið heita svo, að hann hefði feng-
ið herfangelsi fyrir að hafa farið
úr þjónustu í leyfisleysi. Og svo
fannst grein í lögum, sem kvað svo
á, að enginn rúmenskur erfðaprins
mætti giftast rúmenskri stúlku,
heldur yrði hann að fá konuefni af
frá hirðstjóranum í Búkarest. En
þegar Ferdinand dó í júlí 1927 hættu
peningarnir að koma. Carol var orð-
inn konungur og hirti ekkert um að
sjá fyrir konunni sinni og barninu,
sem hann hafði átt með henni. Hann
Michael, fyrrverandi konungur, nú
flugskólastjóri og framkvæmdastj.
í Geneve og heitir Michael Leroy.
lét sem Zizi hefði aldrei verið til.
Og hann lét sem hann vissi ekki af
annarri konunni sinni heldur —
honum var alveg sama um Helenu.
Því að nú var ný kona komin í spil-
ið — rauðhærða frúin Lupescu.
Zizi bjargaði sér um stund með
því að selja skartgripina, sem Carol
hafði gefið henni meðan allt lék í
lyndi. En þar kom, að hún hafði
ekki meira að selja. Þegar síðari
heimsstyrjöldin skall á, átti hún og
sonur hennar í miklum bágindum.
Þau áttu heima í París, og hann
var að læra bókbandsiðn, í Auteuil.
Einhvern veginn slámpaðist þetta
þó af öll stríðsárin, en svo kom það
á daginn, að Zizi var haldin ólækn-
andi sjúkdómi. Hún dó 11. marz
1953. Tuttugu dögum síðar dó Carol
II. í Estoril í Portúgal. Síðustu orð
hennar voru „Carol. . . Carol!“ Eng-
inn vissi hvort það var maður henn-
ar eða sonurinn, sem hún átti við,
því að hún kallaði soninn aldrei
Mircea heldur Carol. En hún elsk-
aði konunginn til dauðadags og tók
jafnan svari hans og reyndi að af-
sáka hann er honum var álasað.
FRÁ SORG TIL GÆFU.
Móðurmissirinn varð Mircea þung-
bær. Hún hafði verið honum allt,
alla hans æfi> — allt gott, sem hann
hafði lifað var frá henni. Nú var
hann einn eftir með Paul son sinn,
tveggja ára. Hann hafði minningu
móður sinnar í heiðri á litla heimil-
inu í Auteuil. Á stofuveggjunum
voru margar myndir af henni og
undir gamalli rúmenskri krists-
mynd logaði alltaf ljós, til minning-
ar um hana. Svona leið tíminn fram
að hinu minnisverða aðfangadags-
kvöldi, þegar hann hitti amerísku
stúlkuna, sem var svo lík móður
hans og hét sama nafni og hún.
Jeanne Williams varð ekki aðeins
til að skrifa æfisögu hans, hún varð
hollvættur hans. Henni má þakka,
að hann náði rétti sínum og getur
nú — 38 ára gamall — kallað sig
það sem hann er: prins Carol af
Rúmeníu.
Og svo verður ekkja föður hans
og hálfbróðir hans að skipta kon-
ungsarfinum með honum. Það er
fullyrt, að Carol II. hafi verið einn
af ríkustu mönnum í heimi þegar
hann dó. Og það var Hitler, sem
lagði grundvöllinn að auðæfum
hans með því að kaupa steinolíu í
Rúmeníu. Meðan Carol var við völd
1930—1940, hafði hann næg tæki-
færi til að koma peningum sínum
fyrir erlendis. En frú Lupescu held-
ur því fram, að ekki sé mikið eftir
af auðnum í reiðu fé. Málaflutnings-
menn Mircea vilja samt ekki trúa
henni, og ferðast nú land úr landi
til þess að tala við bankastjóra í
Sviss, Tanger, Bandaríkjunum og
Suður-Ameríku. Fasteignir kon-
ungsins getur frú Lupescu hins veg-
ar ekki falið, og Mircea hefur feng-
ið sinn hlut í tveimur höllum í
Frakklandi: Cousmet við París og
Fabron í Nizza.
Spurningin um ríkiserfðirnar í
Rúmeníu er enn óleyst, enda mun
það ekki skipta miklu máli. En ef
svo færi, að landið yrði konungs-
ríki aftur, eru biðlarnir tveir: Mic-
hael, sem þegar hefur verið kon-
ungur tvívegis (fyrir og eftir föður
Framh. á 14. síðu.