Fálkinn


Fálkinn - 08.03.1961, Page 10

Fálkinn - 08.03.1961, Page 10
HVAD BORÐUM VIÐ MIKINN FISK ? Það hefur mikið verið rætt og ritað um fisk. Á hverjum morgni arka hús- mæður, börn og gamalmenni í fiskbúð og flestir spyrja: „Áttu ekki nýja ýsu?“ ,,Nei, því miður en ég á hérna . . .“ Það hlýtur stundum að vera afar erf- itt að vera fisksali og einnig hlýtur stundum að vera erfitt að vera húsmóð- ir í leit að nýrri ýsu. Það var einn morgun að fréttamaður Fálkans gekk til eins fisksala hérna í bænum og ætlaði að fá viðtal og mynd. — Nei, farðu bölvaður, sagði fisksal- inn. Nei, nei, ég get ekkert sagt þér. Ég veit ekkert um þetta — ég hef ekki ver- ið við þetta nema í 3 ár. — Hvað fólk étur af fiski? Ja, líklega ein 30 tonn að jafnaði á dag. Það eru sko ekki eingöngu Reykvíkingar — það eru líka þeir sem búa í Kópavogi, Smá- löndum og víðar. — Eruð þið ekki uppi fyrir allar ald- ir? — Jú, jú. Við förum á fætur klukkan hálf sjö til sjö á mánudagsmorgnum, en það er aðalfiskidagurinn, til að snapa eftir fiski. -— Þurfið þið að ná í fiskinn í bátana? — Nei, það er Fiskmiðstöðin sem læt- ur okkur fiskinn í té. Þar vinna menn nótt og dag. Þennan umrædda morgun átti fisk- salinn á boðstólum einar 10 tegundir af fiski, en engan nýjan. Einstaka, sem komu að kaupa, hættu við, þar sem nýr fiskur var ekki til, en hinir keyptu fros- inn, reyktan og siginn fisk eða saltaðan. Ein frúin sagði: — Hvað áttu ekki nýjan fisk? Og fisksalinn brá á leik, sagði nokk- ur gamanorð, m. a. að þeir væru nú að grafa eftir nýjum fiski inn hjá Kletti o. fl. í þeim dúr. Það þýðir ekki annað en að hafa húmorinn í lagi þegar mað- ur er fisksali og hefur ekki séð nýjan fisk í marga daga. — Þú ert góður í dag, sagði frúin brosandi um leið og hún tók á móti pakka af frosnum fiski. — Góður? Ja, ég er nú hálf hjart- veikur! Fisksahnn var afskaplega feginn þeg- ar fréttamaðurinn fór. ★ Fiskmiðstöðin er niður við Granda- garð. Þar var heldur dauflegt um að litast er fréttamaður kom þangað eftir rabbið við okkar ágæta fisksala. Gunnlaugur Kristjánsson er þarna forsvarsmaður og hann fræðir frétta- mann á því að Fiskmiðstöðin kaupi all- an þann fisk, er hún kemst yfir hverju sinni, og skipti við um 33 fisksala í Reykjavík og annað slagið við fisksala í Hafnarfirði. Aðrir stórir fiskkaupend- ur og fiskseljendur eru Fiskhöllin og Sæbjörg. Gunnlaugur sagði að þeir væru nú byrjaðir á að aka fiskinum í búðir og 10 FÁLKINN

x

Fálkinn

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Fálkinn
https://timarit.is/publication/351

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.