Fálkinn


Fálkinn - 14.06.1961, Blaðsíða 29

Fálkinn - 14.06.1961, Blaðsíða 29
4É Járnbrautarstöðin í Peking.ípuBoiBJj So bjjáu ;seuioj[ Skrautlýsing byggingarinn- ar speglast í regninu. — Búizt þið við mikilli þátt- töku í þessari ferð? — Nei, þetta er dýr ferð, svo að við getum ekki gert ráð fyrir mörgum. Hins vegar er eitt af markmiðum okkar að velja nýjar leiðir, svo að við lögðum áherzlu á að opna þessa leið. — Standið þið í sambandi við margar erlendar ferða- skrifstofur? — Enn sem komið er höf- um við mest samband við æskulýðsferðaskrifstofur, og fyrir þeirra tilstilli getum við gefið ungu fólki kost á ódýr- um ferðum, til dæmis vinnu- ferðum, sem hafa farið mjög í vöxt hin síðari ár, bæði í Austur- og Vestur-Evrópu, t. d. í Frakklandi. Annars höfum við samband við ferðaskrif- stofur víða erlendis, bæði fyrir austan tjald og vestan. Kína- förin er til dæmis í sambandi við finnska ferðaskrifstofu. — Eruð þið ekki vongóðir um, að þessar nýju leiðir verði vinsælar. — Jú, ég reikna fastlega með því. Erlendis hafa ferðir til þessara landa aukizt mikið undanfarin ár, t. d. til Balkan- landanna. Það er nú svo kom- ið, að fólk, sem ferðast eitt- hvað að ráði, er þegar búið að fara til þessara helztu staða, eins og Frakklands, Ítalíu, Spánar, Þýzkalands o. fl., og þykir þess vegna veigur í að staða. Oll fyrirgreiðsla ferða- manna í löndunum fyrir aust- an tjald hefur farið mjög batn- andi, svo að ef ferð hefur á annað borð verið skipulögð, þá stendur allt, sem hefur verið ákveðið, og engin hætta á neinni röskun. — Finnst þér ekki mörgu ábótavant í ferðamálum okk- ar? -— Jú, það er bágborin að- staða hér til að taka á móti erlendum ferðamönnum. En vissulega verður að taka tillit til hvers konar ferðafólk er lögð áherzla á að fá hingað. í sambandi við þá, sem vilja ferðast ódýrt, til dæmis ungt fólk, þá vantar hér tilfinnan- lega gistiheimili. Hins vegar er svo ferðafólk, sem er vant fyrsta flokks þægindum og fyrirgreiðslu á öllum sviðum, og fyrir þetta fólk getum við sáralítið gert enn sem komið er. Það er til dæmis ótækt að bjóða fólki upp á að ferð- ast um landið og gista í tjöld- um! En þetta verða útlending- ar sætta sig við, ef þeir vilja kynnast landinu, því að ekki er um annað að ræða. Sælu- húsin bæta raunar aðeins úr á hálendinu, en hrökkva skammt. — Eru ferðaskrifstofurnar nokkuð orðnar of margar? — Þær eru raunar orðnar nokkuð margar. Og mér finnst að þær gætu frekar skipt með sér verkum og unnið saman, heldur en að keppa ákaft hver Framh. á bls. 32. Áætlunarbílar í Dubrovnik í Júgóslavíu Við Vesturvatn í Kína. Shanghai, stærsta borg í Kína.

x

Fálkinn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fálkinn
https://timarit.is/publication/351

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.