Fálkinn - 28.03.1962, Qupperneq 8
PANDA DG LANDKGNNUÐURINN MIKLI
Þrátt fyrir að vélin skrölti öll, var hún samt kyrr í
loftinu, og enda þótt fjöldamargar skrúfur féllu af og
til úr skrokk flugvélarinnar virtist það engin áhrif
hafa á gang flugvélarinnar. Panda var mjög ánægður.
„Þetta var raunveruleg landkönnun“, hrópaði hann
hrifinn. „En hvað það var fallegt af sölumanninum að
láta þig hafa þessa vél í staðinn fyrir gamla jeppann.“
„Jeppinn minn var alls ekkert gamall“, leiðrétti land-
könnuðurinn Panda“, ég held að hann verði ekki eyði-
lagður. „En hann hafði rangt fyrir sér. Fornsalinn var
að ljúka við að eyðileggja jeppann og hann notaði
Aloysius frænda til þess..“ ,,Ó, stanzið", hrópaði Aloy-
sius frændi, „ég vissi ekki, að þetta væri þinn jeppi,
ég skal hafa við þig kaup.“
Þar sem Aloyisius frændi var ekki aðeins fús til þess
að bæta tjónið, sem hann hafði gert, heldur keypti
einnig hraðfleyga þotu ásamt nokkrum sandpokum,
komst .sölumaðurinn aftur í gott skap. „Allt í lagi“,
sagði hann og brosti ánægjulega um leið og hann taldi
seðlana, sem hann var að fá. „En ... en . . . hvað ætl-
arðu að gera við sandpokana?“ „Ég ætla að fara með
þá í eyðimörkina“, svaraði Aloysius frændi dularfullur
á svip. Án þess að útskýra þetta nánar, lyfti hann
pokunum um borð og þaut af stað. Þotan var ekki
lengi að ná rokki landkannaðarins, en landkönnuður-
inn átti í erfiðleikum við að halda sinni vél á lofti.
Panda var líka niðursokkinn í þetta starf, svo þeir tóku
ekki eftir þotunni.
Einmitt þegar landkönnuðinum hafði tekizt að halda
henni á lofti, þaut eitthvað fyrir ofan þá. „Hvað er
þetta?“ spurði Panda hræddur. „Þrýstiloftsvél“, sagði
landkönnuðurinn rólega. „Hvað skyldi hún vilja?“
Það kom brátt í ljós. Þegar hún fór yfir rokkinn, greip
Aloysius frændi sandpoka og kastaði þeim yfir vél
þeirra Panda. Og vél landkannaðarins var hulin sand-
skýjum. „Sandstormur .. . etsh ...“, sagði Panda og
greip fyrir vitin.
8
FÁLKINN