Fálkinn - 28.03.1962, Blaðsíða 10
i
F'erwningargjöfin i ar
STÓRA ALFRÆÐIORÐABÓKIN
NORDISK KONVERSATIONS LEKSIKON
sem nú kemur út að nýju á svo
ótrúlega lágu verði ásamt svo hag-
stæðum greiðsluskilmálum, að allir
hafa efni á að eignast hana.
Verkið samanstendur af:
8 stórum bindum í skrautlegasta
bandi sem völ er á. Hvert bindi er
yfir 500 síður, innbundið í ekta
„Fab-lea“, prýtt 22 karata gulli
og búið ekta gullsniði. Bókin er öll
prentuð á fallegan, sléttan og
ótrénaðan pappír, sem aldrei guln-
ar. í henni er fjöldi mynda auk
litmynda og landabréfa, sem
prentuð eru á sérstakan list-
prentunarpappír. í bókina rita
um 150 þekktustu vísindamanna
og ritsnillinga Danmerkur, og
öllum mikilvægari köflum fylgja
bókmenntatilvísanir.
Nú, á tímum geimferðanna, er
það nauðsynlegt, að uppdrættir
af löndum og borgum séu stað-
settir á hnattlíkani þannig að
menn fái raunverulega hugmynd
um, hvað er að gerast umhverfis
þá. Stór, rafmagnaður Ijóshnöttur
með ca 5000 borga og staðanöfn-
um, fljótum, fjöllum, hafdjúpum,
hafstraumum o. s. frv., fylgir bók-
inní, en það er hlutur, sem hvert
heimili verður að eignast. Auk
þess er slíkur ljóshnöttur vegna
hinna fögru lita hin mesta stofu-
prýði.
VIÐBÆTIR: Nordisk Konversa-
tions Leksikon fylgist ætíð með
tímanum og því verður að sjálf-
sögðu framhald á þessari útgáfu.
AFHENDING: Áætlað er, að bindi
bókarinnar komi út með fjögurra
mánaða millibili. — Hnattlíkanið
er þegar hægt að afhenda, ef
gerð er í það pöntun tafarlaust.
VERÐ alls verksins er aðeins kr.
4.800,00, ljóshnötturinn innifalinn.
GREIÐSLUSKILMÁLAR:
Við móttökubókarinnar skulu
greiddar kr. 400,00, en síðan kr.
200,00 mánaðarlega, unz verkið
er að fullu greitt. Gegn stað-
greiðslu er gefinn 20% afsláttur,
kr. 960,00.
Bókakið NORÐRA,
Hafnarstræti 4, sími 14281.
Fatakaup.
Kæri Fálki. -— Ég ætla að
skrifa nokkrar línur um föt,
sem ég keypti nýlega.
í haust. sem leið keypti ég
í búð tweed jakka, úr því
bezta tweedi sem hægt var að
fá, þ. e. a. s. Harris Tweed.
Jakki þessi hefur reynzt mér
prýðilega, efnið er mjög gott
og það sér ekki á því, en jakk-
inn er saumaður hér og það
eru saumarnir og fóðrið, sem
er farið að láta sig. Það sagði
mér saumakona, sem saumað
hefur mikið í ákvæðisvinnu,
að það væri ekki nokkur
mynd á því, hvernig gengið
væri frá saumum og öllu smá-
vegis hér. Hún hefur saumað
mikið erlendis á saumastofum
og sagði, að slíkri vinnu væri
venjulega hent í saumakon-
urnar aftur. Ég held, að ég
verði að taka undir þetta, því
að ég keypti buxur úr hinu
víðfræga efni, terrelyne í
haust og virtist efnið vera
mjög gott enda voru buxurn-
ar rándýrar, en fyrstu vikuna
fóru saumarnir að láta sig og
rifnaði t. d. alveg út úr buxna-
vösunum. Til samanburðar
átti ég danskar buxur úr
sama efni og entust þær þá
þriðja ár, án þess að nokkurn
tíma rifnaði út úr saumi.
Hvernig víkur þessu við?
Halda íslenzkir iðnrekendur,
að þeir geti komizt upn með
svona óvandaða framleiðslu.
Virðingarfyllst,
S. T.
Svar.
Þér cettuð að snúa yður til
neytendasamtakanna eöa snúa
yöur beint til viðkomandi verzl-
unar og reyna aö fá lilut yöar
réttan.
Einkennileg Ijósmynd
. . . Ég verð að segja, að mér
fannst hún svolítið einkenni-
leg myndin af Ásgeiri Stefáns-
syni í Hafnarfirði. Ég trúi því
varla, að um ljósmynd hafi
verið að ræða.
N. N.
Svar.
Þér eruö athugull maöur, því
að um Ijósmynd af málverki var
að ræöa.
Dægurlagatextar.
Kæri Fálki. — Ég ætla að
spyrja þig, hvort sé ekki hægt
10 FÁLKINN