Fálkinn - 28.03.1962, Blaðsíða 39
undir forustu Cagna kapteins
sendir hingað í fyrravor til
þess að athuga lendingarstaði.
Og yfrir þremur mánuðum
kom hingað flokkur manna
til að undirbúa flugið, því
upphaflega var gert ráð fyrir
að flogið yrði fyrr, jafnvel
seint í maí. Völdu þeir Vatna-
garða við Viðeyjarsund fyrir
flughöfn og gerðu þar ýmsar
endurbætur, komu upp loft-
skeytastöð í varðarhúsinu
þar og fullkomnu viðgerðar-
verkstæði í flugvélaskálan-
um. Forustu þessarar undir-
búninssveitar hefir Altomare
flugkapteinn, en í sveitinni
eru verkfræðingar, loftskeyta-
menn og veðurfræðingar.
Rúmar áttatíu lestir af flug-
vélabezíni voru fluttar þang-
að handa vélunum, enda þarf
hver vél að bæta á sig þremur
smálestum undir flugið til La-
brador.
Vélarnar, sem notaðar eru,
heita Savoia- Marchetti og eru
stórir flugbátar með tveimur
800 hestafla hreyflum.
Fljúga þær með 220—40
km hraða á klukkustund.
Fjórir menn eru í hverri vél,
flugmaður og stýrimaður, sem
skiptast á um stjórnina, vél-
fræðingur og loftskeytamað-
ur. En auk þess er sérstakur
yfirforingi í þriðju hverri vél,
því að þrjár vélar mynda
eina heild. í hverri deild eru
því 13 menn og því í leiðangr-
inum 104 menn, því að deild-
irnar eru átta — 24 flugvél-
ar. Til Amsterdam voru þær
25, ein aukavél með ýmsa
varahluti. Sú vél var tekin
inn í flugsveitina, eftir að
vél nr. 17 eyðilagðist í lend-
ingunni í Amsterdam.
Hver vél hefir bæði sendi-
tæki og viðtæki og getur
skipzt á orðsendingum við
stöðina hér og ein sín á milli.
Á laugardaginn var, 1.
júlí, var lagt af stað frá Or-
betello, ítölsku flugherstöð-
inni skammt frá Róm kl.
5.44 og flogið yfir til Milano
og Alpafjöll, Zurich, Basel,
Strassbourg og Köln og komið
til Amsterdam kl. 11.45 eða
eftir sex tíma. Leið þessi er
nálægt 1200 km og hafa vél-
arnar því farið með 220 km
meðalhraða á klukkustund. í
Amsterdam vildi það óhapp
til í lendingunni að ein vélin
stakkst á nefið og kollveltist,
drukknaði vélamaðurinn í
henni en hinir fjórir meidd-
ust. Er mistökum foringjans
kennt um þetta leiða slys.
Daginn eftir var haldið af
stað kl. 7.27 áleiðis til Lon-
donderry. Flaug sveitin yfir
Amsterdam nokkrum sinnum
og síðan var haldið á haf út
og flogið norður með austur-
strönd Englands og þaðan
vestur yfir Skotland sunnan-
vert við Londonderry. Er sá
bær við ána Foyle í Norður
írland, skammt þar frá, er
hún fellur út í flóann við
Lough Foyle. Viðbúnaður var
ekki eins mikill þar og í
Amsterdam, þar sem 60 flug-
vélar höfðu hafið sig á loft
til þess að taka á móti ítölun-
um. Eftir fimm tíma og 11
mínútna flug settust flugvél-
arnar við Lough Foyle ár-
mynnið og tók Clark Hall
flugmarskálkur þar á móti
flugsveitinni. Var ráðgert að
halda förinni áfram samdæg-
urs á sunnudag, en vegna
óhagstæðs veðurs var þó hætt
við það, en afráðið að fljúga
hingað snemma á mánudags-
morgun vegna þess að veður
mundi bi’eytast til hins verra
síðari hluta mánudags. En
sú breyting kom fyrr en varði,
því að hér rigndi allan mánu-
daginn og stormur var tals-
verður í hafinu og á móti.
Var því ekki flogið á mánu-
dag.
Þriðjudaginn var enn hald-
ið kyrru fyrir 1 Londonderry
en um hádegi á miðvikudag
barst það út um bæinn, að
flugmennirnir væru lagðir
af stað. Hafði Balbo látið í
loft kl. 10.45 eftir íslenzkum
tíma, en síðasta vélin 22 mín-
útum síðar. Fyrstu tvo tímana
fengu vélarnar gott og bjart
veður og vindinn á eftir, en þá
tók við þokubakki um 350
km og var flogið undir hon-
um í 150 metra hæð, en í 200
metra hæð varð að fljúga
gegnum þykknið blindandi.
Þegar nálgaðist ísland birti
nokkuð en þó var skyggni
ekki gott. Flugmennirnir
höfðu fyrst landsýn af Vest-
mannaeyjum, en suðurströnd-
ina sjálfa sáu þeir ekki fyrr
en þeir voru komnir inn yfir
land og sáu strandlínu beint
undir sér. Til Reykjavíkur
komu flugmennirir kl. 5 og
lenti Balbo ráðherra fyrstur
að vanda og síðan hver vélin
af annarri, þrjár og þrjár
saman. Síðasta vélin kl. 5V2
Gekk lendingin prýðilega.
Flugið hingað , 1400 km leið,
hafði tekið rúmar sex stund-
ir og leiðin verið farin með
245 km meðalhraða á klukku-
stund og er það mesti meðal-
hraði ítalanna, það sem af er
fluginu.
Inni í Vatnagörðum hafði
fjöldi fólks safnast saman til
þess að sjá lendinguna, sjálf-
SKRIFBORÐ — SNYRTIBORÐ — KOMMÓÐA
SkattholiS okkar leysir vandann á fjöl-
mörgum heimilum því það gegnir hlut-
verki 3 gagnsamra muna sem hver um
sig er næstum ómissandi á hverju heim-
ili, en færri geta vegna plássleysis, veitt
sér að hafa alla. Skattholin frá Skeifunni
eru með spegli og 3 skóffum og notast
sem kommóður, skrifborð og snyrtiborð.
SKEIFAN
Kjörgarði Laugavegi 67 —• Sími 16975
1—3
skatthol
sparar
ræstingu
peninga
pláss
FALKINN
39