Fálkinn - 28.03.1962, Page 40
sagt 4000—5000 manns. For-
sætisráðherra var viðstaddur
fyrir hönd stjórnarinnar á-
samt frú sinni og dóttur svo
og borgarstjóri og frú hans.
Þegar Balbo steig á land í
Vatnagörðum kynnti umboðs-
maður ítölsku stjórnarinnar,
Tomassi konsúll hann forsæt-
isráðherranum, en dóttir hans
færði Balbo blóm, en síðan
kynnti forsætisráðherra hann
öðrum viðstöddum. Lék Balbo
á als oddi, en gat þess þó, að
veðrið hefði verið „terrible"—
hræðilegt. Er ráðherrann
hinn vasklegasti maður, ör í
hreyfingum og glaðlegur.
Komu nú ítalirnir í land hver
eftir annan, en mannfjöldinn
hrópaði húrra fyrir þeim,
bæði er þeir komu í land og
eins er þeir komu niður að
Hótel Borg, en þar hafði
fjöldi safnast fyrir utan. ítal-
irnir eru allflestir ungir menn
og hinn fríðasti hópur.
(1933).
Sveitasæla
Frh. af bls. 21
ingur með fyrstu morgunlest-
inni.
Sorphrúgan var horfin. Það
var eins og kraftaverk hefði
gerzt. Og afleiðingin varð sú,
að Ágústa varð kyrr.
En skrifstofustjóranum var
áhugamál að frétta um afdrif
kassans. Hann var hálfhrædd-
ur um, að hann yrði endur-
sendur, þó vitanlega hefði
hann ekki tilgreint réttan
sendanda á fylgibréfinu.
Honum hægði nokkru síðar,
er hann las í blaði nokkru
auglýsingu frá járnbrautinni
um, að stór kassi hefði komið
til Hansens nokkurs í Moss
og kassinn yrði seldur fyrir
áföllnum kostnaði á opinberu
uppboði, ef viðtakandi gæfi
sig ekki fram innan átta daga.
Þar fær einhver góð kaup,
hugsaði skrifstofustjórinn.
ÍSLANDSFÖR
Framhald af bls. 14.
Dana og franska herskipinu
Pollux, að ógleymdum Lind-
bergshjónunum. í því sam-
kvæmi skemmtu þau María
Markan og Pétur Á. Jónsson
með söng og einnig var dans-
að%
Áður en ríkiserfingi steig á
skipsfjöl kom hann heim til
forsætisráðherra, sem afhenti
honum gjöf frá landinu, svipu
eina prýðilega búna, til minn-
ingar um heimsóknina. Þrátt
fyrir kalsaveður var fjöldi
fólks staddur úti við skip, er
það fór, sjálfsagt um 3000
manns. Þar söng flokkur þjóð-
sönginn að skilnaði, en fyrr
um daginn hafði ríkiserfingi
hlýtt á söngfólk Sigfúsar Ein-
arssonar, þann er söng á mót-
inu í Kaupmannahöfn forð-
um og stjórnaði þar sjálfur
þjóðsöngnum.
Framarnr
Framh. af bls. 15.
hafa verið frá byrjun: Pétur
M. Hoffmann, Gunnar Hall-
dórsson, Arboe Clausen, Gunn-
ar Thorsteinsson, Friðþjófur
Thorsteinsson, Tryggvi Magn-
ússon og Stefán Pálsson.
Myndin sýnir kappliðið frá
1914, eins og það var fyrir 18
árum og sýnir myndin marga
kunna Reykvíkinga á þeim
árum: Talið frá vinstri: Pét-
ur M. Hoffmann, Ágúst Ár-
mann, Kjartan Ólafsson,
Brynjólfur Kjartansson,
Gunnar Halldórsson, Hinrik
Thorarensen, Gunnar Thor-
steinsson, Haukur Thors,
Magnús Björnsson, Tryggvi
Magnússon, Geir H. Zoéga,
Gunnar Kvaran, Sigurður
Lárusson, Karl Magnússon
og Ólafur Magnússon.
(1928).
★
40
FALKINN