Fálkinn - 28.03.1962, Page 46
A
Vsl. framkvæindamenn
Framhald af bls 42.
hægt er að auka fjölbreytni í ullarfram-
leiðslu okkar. íslenzka ullin er afburða
vel fallin til vinnslu, jafnvel svo góð
að gæðaflokkurinn er of hár til þess að
almennur útflutningur á framleiðslu-
vörum borgi sig.
Ásbjörn Sigurjónsson er einn þeirra
ungu athafnamanna í íslenzku þjóðfé-
lagi sem margir binda einna mestar
vonir við. Hér skal engu um það spáð
hversu lengi hann dugir og hve hátt
hann treystist til að spenna bogann. En
almenningur fylgist með slíkum mönn-
um og því verða þeir að gera sér að
góðu þótt ekki sé fjallað um þá í af-
mælisgreinastíl.
Ásbjörn Sigurjónsson hefur stundum
verið nefndur goðinn á Álafossi. í þeirri
nafngift felst ekki aðeins viss viður-
kenning, heldur ákveðin mannlýsing.
Hann hefði vel sómt sér í litklæðum
fornmanna, svo fremi þau væru ofin
að Álafossi. Hann hefur alltaf haft yndi
af skepnum og sennilegt að hann hefði
riðið um héruð á ólmum gæðingum,
sem ekki gæfu eftir Dodge-bílum nútím-
ans. Hann er íþróttamaður góður og er
það skemmtileg tilviljun að hann skuli
einmitt leggja helzta stund á þær
íþróttir er fornmönnum voru bezt að
skapi: hestamennsku, sund og knatt-
leika. Hann er vel failinn til mannafor-
ráða og drenglundaður í viðskiptum,
lætur þó aldrei hlut sinn við hvern
sem er að skipta. Hann hefði sómt sér
sem höfðingi á Sturlungaöld og hefði
þá hvergi unað nema í fylkingarbrjósti.
En Ásbjörn er nútímamaður þótt
lundarfar og atgerfi hefði sómt goðum
fornaldar. í stað vígaferla og landvinn-
inga leggur hann alla stund á friðsam-
lega framleiðslu og markaðsleit. í stað
þess að hlaða valköstu og efla ófrið,
skapar hann verðmæti og stuðlar að
því að hefja lífsnauðsynlega atvinnu-
grein til vegs og virðingar.
Ásbjörn hefur eitt sinn komizt svo
að orði í samtali við kunningja sinn
er rætt var um hinn umfangsmikla
verksmiðjurekstur á Álafossi, að hann
fyndi ekki til þess að hann væri þar
forstjóri fremur en hver annar sem við
fyrirtækið starfaði. Hann kvaðst líta
á hlutverk sitt og starf sem millilið
fjármagns og vinnuafls, hann væri
fulltrúi eiganda fyrirtækisins, ráðinn til
að annast reksturinn fyrir þá. Ekkert
fyrirtæki byggðist á einum manni,
maður kæmi ávalt í manns stað.
Ásbjörn hefur líka oftar en einu sinni
látið svo um mælt, að styrkasta stoð
verksmiðjunnar væri hið ágæta starfs-
fólk, sem sumt er búið að vinna þar
á fjórða áratug og sumir lengur, vinna
verk sitt af kunnáttu og trúmennsku
í senn.
Margt af eldra starfsfólkinu man Ás-
björn sem óþekktarorminn á Álafossi,
en þjónar honum með sömu trúmennsku
og föður hans, því Ásbjörn reynir að
gera þannig við sitt fólk að engum þyki
miður.
Það munu flestir mæla að hæfur
maður sitji forstjórastólinn á Álafossi
og lykillinn að heppni hans og farsæld
liggur ef til vill í því hugarfari sem lýsir
sér í hans eigin orðum: ,,Á Álafossi er
enginn sendisveinn nema ég.“
— Jökull.
LITLA SAGAN
Framhald af bls. 35.
Málið kom fyrir rétt og komst svo
langt, að kviðdómurinn kom saman til
þess að fella sinn úrskurð.
Það leið ein klukkustund. Kviðdóm-
urinn kom ekki fram í salinn. Önnur
klukkustund leið og ekki gengu kvið-
dómendur í salinn.
Jói rauðnefur Callahan iðaði órólegur
á ákærendabekknum og Hickman lög-
fræðingur forðaðist að mæta augnaráði
hans.
Enn leið ein stund og loks þá gengu
kviðdómendur í salinn. Formaður kvið-
dómsins stóð upp og tilkynnti úrskurð-
inn.
— Morð af annarri gráðu.
Og dómararnir kváðu upp hinn end-
anlega dóm, 60 ára betrunarhúsvinna í
ríkisfangelsi Illinois.
■— Var erfitt að sannfæra þá, þar sem
þetta tók svona langan tíma? spurði
Hickman formann kviðdómsins, þegar
hann stakk að honum með leynd þeim
fimmtíu þúsund dollurum, sem hann
hafði lofað.
— Mjög erfitt, sagði formaðurinn, það
er ekki rétta orðið. Ég átti í fjandans
miklu stríði við að fá þá til að sam-
þykkja morð af annarri gráðu. Allir
hinir vildu nefnilega sýkna hann.
BOSC
KÆLISKÁPAR
Mismunandi gerðir af hinum vinsælu BOSCH kæli-
skápum eru nú fyrirliggjandi.
Vinsældir BOSCH kæliskápanna liggja einkum í
sérstakri nýtingu alls geymslurýmis.
4,5 cub. ft. (120 lítrar) kr. 7.500.00
5 — — (140 iítrar) — 8.200.00
6.4 — — (180 lítrar) ný gerð — 12.990.00
8.5 — — (240 lítrar) . — 14.980.00
7,8 — — (220 lítrar)
sjálfv. affr. frystihólf 33 1. kr. 18.890.00
GREIÐSLUSKILMÁLAR — 5 ÁRA ÁBYRGÐ.
Höfum einnig sjálfvirkar þvottavélar með þeytivindu.
BOSCH LC.K zlo
Bræðurnir Ormsson hf.
Vesturgötu 3, Reykjavík, sími 1 14 67.
46
FÁLKINN