Fálkinn


Fálkinn - 06.06.1962, Blaðsíða 7

Fálkinn - 06.06.1962, Blaðsíða 7
Fyrsta fegurðarsamkeppnin. ------Þegar ég leit yfir ykkar ágæta aukablað og sá alla dýrðina, sem Einar Jóns- son var að sýna, þá datt mér í hug að spyrja, hvort þið vissuð hvenær fyrsta fegurð- arsamkeppni á íslandi fór fram. Mér hefur verið sagt, að hún hafi verið haldin 1930, en því miður var ég ekki fæddur þá og svo rengi ég líka þá, sem mér sögðu þetta. Drabbari. Svcir: ÞaS mun rétt vera, að fyrsta feguröarsamkep'pnin hafi veriö lialdin 1930. Voru myndirnar þá af stúlkunum í sígarettupökkum. Kölluöust þeir Teofani og álmennt er þessi keppni kölluö Teofani keppni. Smásögur. ------Ég vil fá meira af smásögum, sem eru að gæðum eins og Villt á eyðimörk eða þá gamansögurnar hans Willy Breinholts. . . U. Svar: Viö munum hér eftir sem hingaö til kappkosta aö hafa sem beztar smásögur í blaöinu, bæöi gamansögur og sögur álvar- legs efnis. Úrklippusafnið. Fálkinn, Reykjavík. — Hjá- lagt sendi ég ykkur úrklippur, sem ég hef safnað saman. Annars gleymi ég oftast að klippa út það, sem vekur at- hygli mína, þar til ég upp- götva að blaðinu hefur verið fleygt. .. Ég má til með að hrósa ykkur fyrir myndirnar af fegurðarskvísunum. Þar slóguð þið hinu vikublaðinu við, því að prentunin tókst mun betur hjá ykkur. Beztu óskir um velgengni í framtíðinni. E. G. Svar: Viö þökkum allar úrklippur„ sem okkur liafa veriö sendar, en vissulega er ekki unnt aö birta þær állar. Ef blaöiö meö úrklippunni kemur ekki til yöar þá skuluö þér bara láta vita og viö munum reyna aö bæta úr því. Knattspyrna. Fálki góður. — Ég er einn af þeim, sem fer daglega á völlinn, þ. e. a. s. ef nokkur leikur er. Samt þykir mér það ekki nóg, mér finnst, að þið ættuð að birta myndir og skrifa greinarkorn með um knattspyrnu og knattspyrnu- menn. Ég veit, að það eru þúsundir, sem hafa áhuga á þessum málum. Æ. Þ. Svar: Þetta er állt á leiöinni, því aö þegar bréfiö birtist munu myndir og upplýsingar um ein- stáka leikmenn í þeim félögum, sem senda liö í 1. deild Islands- mótsins hafa birzt. Fyrsta grein- in 'af þessu tagi var um Vál en síöan munu hin félögin veröa tekin fyrir smátt og smátt. Krossgátan. Kæri Fálki. — Ég er ein af mörgum, sem kaupi þig, og mér finnst gaman að lesa sög- urnar þínar, og ráða kross- gáturnar, en sá er ljóður á ráði þínu, að venjulega er einhver saga á baksíðu gát- unnar, svo að ég get ekki sent hana, þar sem ég held saman blöðunum í mörg ár og tími ekki að skemma blaðið með því að senda ráðningu, ég hef heyrt, að gátan sé ekki tekin til greina, ef hún er tekin nið- ur á annað blað. Er það rétt? Svaraðu mér vinsamlegast við fyrsta tækifæri. Svo þakka ég þér fyrir skemmtilegar stund- ir, og óska þér góðs gengis í framtíðinni. L. E. Svar: ViÖ tökum viö krossgátulausn- um, þótt þær séu skrifaöar wpp á blaö. Gott viðtal. — -— Ég verð endilega að hrósa blaðinu fyrir að hafa birt svo gott viðtal eins og viðtalið við Sigurð Berndsen. Ég held að það sé ekkert orð- um aukið, að þetta er bezta viðtal, sem ég hef lengi lesið. M. -----Ég skil ekkert í ykkur að vera hafa svona viðtal við fjárplógsmenn. Er ekki nóg svínaríið, þótt þið farið ekki að auglýsa það. Að vísu verð ég að viðurkenna, að viðtalið var gott og vel tekið og ein- kenni mannsins sem rætt var við komu vel fram, en ég held, að blöðin ættu ekki að vera auglýsa þessa menn .. . S. jJteiHJ KURLASH PLOKKSKÆHI, nýtízku augnabrúna plokkari með fingra gripi, hefir alla þessa kosti: Rennur ekki. Gefur fullkomna yfirsýn. Þér náið auðveldlega öruggu taki. Grípur örugglega örsmá hár. Kynnið ykkur KURLASH augnsnyrtivörurnar. Heildsölub. H. A. TULINIUS Mfjóöiö 11* #* ti o l p #* e vetkamiö9 off kveöjiö vatnsfötuna I Húsmæður, sem fylgjast með tímanum, eru löngu hættar að nota vatnsfötu og kúst við gluggaþvottinn. Þær nota hið vinsæla Windolene. Rúðan verðnr lirein og í'íii með ©11© FÁLKINN 7

x

Fálkinn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fálkinn
https://timarit.is/publication/351

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.