Fálkinn


Fálkinn - 06.06.1962, Blaðsíða 35

Fálkinn - 06.06.1962, Blaðsíða 35
ÍSABELLA Kven-sokkar eru viðurkenndir fyrir endingu og úílitsfegurð Fást í verzlnnnm ISABELLA lækkar sokka- kostnaðinn * tízknlitum landallt i 11 m * Heildsölubirgðir: Þórður Sveinsson & Co. h.f. Hrútsmerkið (21. marz—20. apríl). Hamra skal járnið meðan heitt er, segir máltækið og það á einmit.t við núna. Verið samt ekki of fljót- fær og íhugið allt vel, sem þér ráðist í þessa dagana. Færizt ekki meira í fang, en þér getið annað. Nautsmerkið (21. apríl—21. maí). Þaö dugar ekki að lifa í eintómum draumórum. Þér verðið að sýna meiri sigurvilja, ef þér eigið ekki að verða undir í samkeppninni, sem ríkir á öllum sviðum mannlífsins. Verið raunsærri, ef þér viljið ná takmarki yðar. Tvíburamerkið (22. maí—21. júní). Einhverjir erfiðleikar verða í sambandi við heim- ilislífið, en þeim getið þér vísað frá með vingjarn- legu brosi og léttri lund. Það verður sitthvað um að vera og yður skal ráðlagt að hafa augun hjá yður. Krabbamerkið (22. júní—22. júlí). Þér hafið staðið í erjum, sem sennilega verða úr sögunni strax í byrjun vikunnar. Þér munuð fá viður- kenningu, sem þér áttuð alls ekki von á, en mun ylja yður mjög um hjartaræturnar. Vikan krefst mikillar vinnu., Ljónsmerkið (23. júlí—23. ágúst). Þér hafið margvíslegar fyrirætlanir á prjónunum, sem yður ætti að heppnast að framkvæma, ef þér athugið málin með nægilega mikilli rósemi. Eitt.hvað mun rætast úr fjárhagsvandræðum yðar. Jómfrúarmerkið (2k. ágúst—23. september). Eftir aðstöðu stjarnanna ætti rólegur tími að fara í hönd. Látið ekki starfslöngunina leiða yður út í ógöngur, en reynið að njóta þess að eiga rólega og náðuga daga nú um skeið. Vogarskálarmerkið (24. september—23. október). Ef þér einbeitið yður að þeim verkefnum, sem þér hafið nú undir höndum, mun árangurinn verða mun betri en þér haldið. Fullkominn friður og samræmi í einkalífi er nokkuð, S'em yður er mikils virði, ekki sízt nú. Sporðdrekamerkið (24. október—22. nóvember). Þeir, sem fæddir eru undir þessu merki munu þurfa á hæfileikum sínum og dómgreind að halda 1 vikunni, þar sem þeir munu standa andspænis erfiðu vali. Föstudagurinn verður happasælastur. Bogamannsmerkið (23. nóvember—21. desember). Manneskja, sem vill yður vel, mun bjóða yður upp á einhvers konar samstarf, og þér ætt-uð að hugsa yður um tvisvar, áður en þér hafnið því. Yður hættir til að vera stirður í umgengni. Steingeitarmerkið (22. deseber—20. janúar). Þér fáið allt í einu tækifæri til þess að koma í framkvæmd þeim áformum, sem þér hafið lengi haft í huga. í sambandi við það þurfið þér á reynslu yðar og talsverðu fjármagni að halda. Vatnsberamerkið (21. janúar—19. febrúar). Það getur oft verið erfitt að taka ákvarðanir, þegar um tvo ólíka kosti er að ræða. Látið innsæi yðar ráða, því að ekki er víst að þér veljið betur, þótt þér athugið málið gaumgæfilega. Fiskamerkið (20. febrúar—20. marz). Látið ekki slæmt skap og svartsýni ná tökum á yður og draga úr yður allan mátt. Skapsmunirnir geta valdið yöur óþægindum og yður hættir t.il að láta smámuni setja yður út af laginu. FÁLKINN 35

x

Fálkinn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fálkinn
https://timarit.is/publication/351

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.