Fálkinn


Fálkinn - 13.02.1963, Blaðsíða 30

Fálkinn - 13.02.1963, Blaðsíða 30
LíkkislusmiAiiriiui Framhald af bls. 11. og velunnarar. Ég mun veita ykkur svo sem ég má af fátækt minni. Að svo mæltu gekk líkkistusmiSur- inn til hvílu og féll brátt í fastan svefn. Það var enn þá dimmt af nóttu, þegar Adrian var vakinn. Kaupmannsfrúin, Triuchina hafði látizt um nóttina, og ríðandi sendiboði hafði komið frá bók- haldara hennar til þess að flytja Adrían tíðindin. Líkkistusmiðurinn gaf sendi- manninum tíu kópeka til að kaupa sér fyrir þá brennivín, síðan klæddist hann í flýti og ók til Raskulja. Úti fyrir dyr- um hinna sáluðu stóð lögregluþjónn, og nokkrir kaupmenn voru þar á vakki eins og hrafnar, sem hafa veður af hræi. Hin látna hvíldi uppi á borði, andlit hennar var vaxgult, en ennþá óspillt af rotnun. Kringum hana þyrptust ætt- ingjar og nágrannar ásamt heimafólki hennar. Adrían snéri sér að bróðursyni Triuchinu, en það var ung kaupsspíra, klædd frakka eftir nýjustu tízku —- og fullvissaði hann um að kistan, kertin og líkklæðin og allt, sem til jarðarfarar- innar þyrfti, skyldi verða af beztu teg- und. Erfinginn þakkaði honum hrærð- ur í huga og lét þess getið að hann mundi ekki, á þessum stað eða stundu, þjarka um verð þessara hluta, heldur treysta í öllu fullkomlega á heiðarleik hans. Svo sem venja var líkkistusmiðs- ins, við samskonar tækifæri, sór hann þess dýran eið, að hann skyldi ekki taka einum eyri meira fyrir vörur sínar og fyrirhöfn en kostnaðarverð. En um leið og hann sagði þetta drap hann kankvís- lega tittlinga framan í bókhaldara frúar- innar sáluðu. Síðan flýtti hann sér burtu til að gera ýmsar nauðsynlegar ráðstafanir. Allan daginn var hann á þönum milli Raskulja og Nikitskyhliðs- ins. Þegar kvöld var komið og ráðstöf- ununum vegna jarðarfararinnar var lokið, hélt hann fótgangandi heim til sín. Kvöldið var mánabjart. Líkkistu- smiðurinn var kominn heilu og höldnu alla leíð að Nikitsyhliðinu. Hjá Upp- stigningarkirkjunni hafði Jurko vinur hans kallað til hans og stöðvað för hans, en þegar lögregluþjónninn sá, hver hann var, leyfði hann honum að halda óhindrað áfram. Nú var orðið mjög liðið á kvöldið. Þegar líkkistusmiðurinn nálgaðist hús sitt virtist honum einhver ganga á undan sér á götunni heim að húshliðinu, opna grindina og ganga inn fyrir. „Hvað er nú á seyði? hugsaði Adrían. „Hver þarfnast mín nú? Þetta er þó vonandi ekki þjófur, sem er að brjótast inn hjá mér? Eða máske ein- hver elskhugi sé nú að læðast inn til stelpnanna minna? Það væri nú ekki annað eftir.“ Líkkistusmiðnum flaug sem snöggvast í hug að kalla Jurko vin sinn til hjálpar. En rétt á sama augna- bliki kom einhver annar og nálgaðist hliðið í því augnamiði að fara inn um það, en þegar hann sá húsráðandann koma hlaupandi staðnæmdist hann og lyfti þríhyrnda hattinum, sem hann bar á höfðinu. Adrían fannst hálfvegis að hann bæri kennsl á andlit mannsins, en í flýtinum gaf hann sér ekki tíma til þess að athuga það nánar. — Viljið þér finna mig? spurði hann andstuttur. Gjörið svo vel að sýna mér þá virðingu að ganga inn. — Engar serimoníur, minn kæri vin- þeirra og háreysti, og hálfkæfður af röddinni. Gakk þú á undan og vísaðu gesti þínum leiðina. Adrían gaf sér ekki tíma til frekari samræðna. Hliðið stóð opið og hann gekk upp tröppurnar á undan gesti sín- um. „Hver þremillinn gengur nú hér á.“ hugsaði hann og flýtti sér inn.... Það lá við að fæturnir svikju hann. Herbergið var fullt af framliðnum mönnum. Máninn skein inn um glugg- ann og varpaði fölum bjarma á gular og bláflekkóttar ásjónur þeirra, inn- fallnar varir, brostin, hálflukt augu og hvöss nef.....Skelfingu lostinn þekkti Adrian hér fólk það, sem jarðsett hafði verið með hans aðstoð. Nú þekkti hann líka gestinn, sem orðið hafði honum samferða inn í húsið. Það var stórfylk- ishöfðinginn, sem grafinn hafði verið í regndembunni fyrir skemmstu. Fólkið, konur. og karlar, þyrptist allt utan um líkkistusmiðinn og heilsaði honum með bukti og beygingum. Einn fátækur ves- alingur, sem nýlega hafði verið grafinn ókeypis og fyrirvarð sig vegna tötra sinna, stóð þó kyrr úti í horni og þorði ekki að heilsa. Allir aðrir viðstaddir voru sómasamlega klæddir. Konurnar með húfur á höfði og flögrandi borða- skraut, embættismennirnir voru í ein- kennisbúningum sínum, en órakaðir, kaupmennirnir voru sparibúnir. —- Hér sér þú Prochorov, mælti stór- fylkishöfðinginn fyrir munn allrar hinnar æruverðu samkomu, — að við höfum tekið boði þínu og risið í kvöld. Heima liggja einungis þeir, sem nú eru allri orku þrotnir, og ekki eru lengur annað en sundurmolnaðar beinagrindur. En meira að segja einn, sem kalla má að þannig sé ástatt með, mátti ekki til þess hugsa að liggja heima, slík var löngun hans til að heimsækja þig. Um leið og stórfylkishöfðinginn mælti þetta, þrengdi smávaxin beinagrind sér gegnum hópinn og nálgaðist Adrían. Höfuðkúpan brosti vingjarnlega við lík- kistusmiðnum. Ritjar af grænu og rauðu klæði héngu utan á beinagrindinni, en fótleggirnir skröltu innan í stórum ridd- arastígvélum. — Þekkir þú mig máske ekki aftur, Prochorov, mælti beinagrindin. Manstu ekki eftir uppgjafa lífvarðarliðsforingj- anum, Pjotri Kurilkin, sem þú seldir fyrstu líkkistuna þína árið 1799? Hún var nú reyndar úr furu, þó þú fullyrtir, að í henni væri úrvalseik. Um leið og hinn framliðni mælti þetta, lyfti hann holdlausum handleggs- beinunum, í því augnamiði að faðma Adrían. En Adrían neytti allrar orku sinnar til þess að reka upp öskur og hratt um leið hinum dauða frá sér. Pjo- tur Kurilkin riðaði til falls og steyptist á gólfið og féll þar í mola. Óánægjuklið- ur fór um hina framliðnu, sem allir tóku upp hanzka fyrir félaga sinn og þrengdust umhverfis Adrian með ávít- um og hótunum. Lamaður af hrópum þeirra og háreysti, og hálfkæfður af ódaun þeim, sem gestunum fylgdi, féll hann ofan á leifarnar af fótum lífvarð- arforingjans. Sólin var búin að skína langan tíma inn í rúmið til líkkistusmiðsins, þegar hann loksins opnaði augun og sá vinnu- konuna, sem var önnum kafin að fást við samovarinn. Með skelfingu minntist hann atburða síðastliðins dags. Mynd- um Triuchine kaupmannsfrúar, stór- fylkishöfðingjans og Kurilkins lífvarð- arforingjans brá fyrir í huga hans. Hann lá þögull í rúminu og beið þess, að vinnukonan vekti máls á atburðum liðinnar nætur. — Það mætti segja að þú værir búinn að sofa yfir þig faðir góður, sagði As- kinja um leið og hún rétti honum morgunsloppinn. Klæðskerinn, granni okkar, og lögregluþjónninn litu báðir inn áðan og gátu þess að veiðiformað- urinn ætti afmæli í dag. En þú svafst svo vært að ég tímdi ekki að vekja þig. — Hefur enginn komið að spyrja eftir mér vegna Triuchine sálugu? — Sálugu? — Er hún nú farin? — Þú ert asni. Hjálpaðir þú mér ekki fl BORGFIRÐINGAR, eldri og ymgri / 50 ára afmælisrit U.McS-B., sem gefið var út á s.l. ári, fæst hjá Jóni A. Guðmundssyni c/o afgreiðshi Vikubl. FÁLKANS, Ingólfsstræti 9 B. U.M.S.B. 30 FÁLKINN

x

Fálkinn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fálkinn
https://timarit.is/publication/351

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.