Fálkinn - 06.03.1963, Blaðsíða 21
þeir sem sóttu þennan starfsfræðslu-
dag voru fróðleiksfús ungmenni.
Þeir sem landið erfa.
Hvað mesta athygli vakti deild
landhelgisgæzlunnar, enda var þar
rnargt að sjá. Þar var fyrir frosk-
maðúr og svo neðansjávarsjónvarp
að ótöldum fjölda af allskonar tækj-
um. Og uppi í tuminum á húsinu
hafði gæzlan komið fyrir radar og
miðunarstöð og þar var mikil að-
sókn.
Þá var og skemmtilegt að koma
í deild Fiskifélagsins og J)ar komum
við auga á Jón Jónsson fiskifræðing
umkringdan af strákahóp, og liann
var að útlista fyrir þeim leyndar-
dónia tækja við fiskirannsóknir: Þar
kenndi sá eldri þeim yngri og kannski
voru þarna væntanlegir fiskifræð-
ingar.
Auk þess, sem þarna var að sjá í
Sjómannskólanum, gátu menn farið
í heimsóknir í ýmis fyrirtæki. Fyrst
var það vélahús Vélstjóraskólans og
ekki alllítið að sjá. Þá var Vélsmiðja
Sigurðar Sveinbjörnssonar, Fisk-
verkunarstöð Júpiters og Marz á
Kirkjusandi, togari á Reykjavíkur-
höfn og fleira.
Starfsfræðsla sem þessi er nauð-
synlegur þáttur í uppeldismálum,
því velferð einstaklinganna i lífinu
hyggist á réttu stöðuvali.
Miðunarstöð og radar var komið fyrir í turni Sjómannaskólans á vegum Land-
helgisgæzlunnar. Áhugi fyrir radarnum var geysimikill eins og sjá má á
myndinni (efri mynd). Kafarabúningur vakti óskipta athygli drengjanna í
deild Landhelgisgæzlunnar. Froskmaðu r var einnig til staðar í fullum her-
klæðum og hafði úr mörgum spurningum að leysa. Sömuleiðis var til sýnis
neðansjávarsjónvarp, hin mesta furðusmíð' (neðri mynd).