Fálkinn - 24.07.1963, Síða 36
ui' í en íyrrl myndin var „Summer
and Smoke“
Horst Bucholz leikur unga kommún-
istann. Næsta hlutverk sem hann lék
á undan þessu var „Sjö hetjur“. Hann
hefur hlotið nokkur verðlaun og er
spáð glæsilegri framtíð. Billy Wilder
hefur látið svo ummælt að Bucholz sé
bezti, ungi kvikmyndaleikarinn i
Bandaríkjunum nú sem stendur, og
gæddur öllum þeim hæfileikum sem
gerðu James Dean frægastan. Það
tafði nokkuð töku myndarinnar Einn,
tveir, þrír, að Bucholz lenti í bílslysi
meðan á tökunni stóð og varð að liggja
þrjár vikur á sjúkrahúsi.
Vaam slærðíræði
Framhald af bls. 15.
Þegar ofsóknirnar gegn gyðingum
mögnuðust, þorði Trachtenberg ekki
lengur að búa í Þýzkalandi sökum ótta
um örlög konu sinnar. Enn á ný var
hann flóttamaður — og hvert átti hann
að flýja? Hvar gæti hann notfært sér
þýzkuna, sem hann hafði nú lært?
Austurríki var eðlilegasti staðurinn, og
til Vínar komu þau hjónin árið 1934.
Aftur varð hann að byrja með tvær
hendur tómar, og enn reyndist auð-
veldast — þar sem mikið atvinnuleysi
ríkti meðal verkfræðinga — að skrifa
og gefa út bækur. En að þessu sinni var
hann þekktur, og brátt hófst hann sjálf-
ur handa um útgáfu tímarita og var
jafnframt tæknilegur ritstjóri. Hann gaf
út þrjú tímarit og margar bækur; hina
síðustu kallaði hann „Friðarráðuneyt-
ið“, og hún var verulega frábrugðin
fyrri ritum hans.
„Friðarráðuneytið var merkilegt verk,
ekki skáldsaga, ekki stefnuskrárrit.
Öllu heldur draumsýn um, hvað skeði
þann dag, sem leiðtogi þjóðar útnefndi
ráðherra friðarins í staðinn fyrir her-
málaráðherra. En greinilega skildist
við hvað var átt. „Friðarráðuneytið"
var svar við „Mein Kampf“ Hitlers, og
innihélt logandi háð um þýzka foringj-
ann og handbendi hans. Bókin var
þegar talin svívirðileg móðgun í aug-
um austurrískra nazista. Trachtenberg
fékk undarlegar símahringingar, og
hann hafði á tilfinningunni, að fylgzt
væri með ferðum hans. Föstudaginn 11.
marz 1938 var dyrabjöllunni hjá Tracht-
enberg hringt um kvöldið. Fjórir brún-
liðar í reiðstígvélum og með hakakross-
bindi um handlegginn vildu gjarna
„spyrja eftir hr. Trachtenberg.“ Hann
Var neyddur út úr íbúðinni og inn í
bíl, sem ók á brott. Daginn eftir réðist
Hitler inn í Austurríki. Frú Trachten-
berg hringdi í örvæntingu sinni til góð-
vinar fjölskyldunnar, menningarsögu-
ritarans Egon Friedells. Það var ekki
svarað í símann — Friedell hafði svipt
sig lífi.
HVÍLÍKAR þjáningar Trachtenberg
leið, megnaði hann aldrei að skýra frá.
Vramhald á bls. 38.
KVIKMVNUIII
Framh. af bls. 33.
vestan hafs séu á annarri skoðun.
Aðalforstjóri Coca Cola vestan hafs
sendir Berlínarforstjóranum dóttur
sína 17 ára lífsglaða og d*álítið ein-
falda stúlku. Hún hefur verið fjórum
sinnum trúlofuð en þær trúlofanir
hennar hafa slitnað á allt að því met-
tíma. Og þarna í Berlín kynnist hún
ungum kommúnista og það er ekki
að sökum að spyrja, þau giftast — á
laun — og þar með hefjast ævintýrin.
* er hröð og margir óvænt-
ir atburðir gerast.
Berlínarforstjórann leikur James
Cagney og þetta er sextugasta og
fyrsta hlutverk hans. Hann hefur á
löngum leikferli fengist við margs
konar hlutverk. Árið 1943 hlaut hann
Oscar verðlaunin fyrir leik sinn í
myndinni „Yankee, Doodle Dandy“.
Konu forstjórans leikur Arlenc
Francis. Hún hefur aðeins leikið í
tveimur myndum áður en hefur um
árabil verið ein af vinsælustu útvarps
og sjónvarps leikkonum í Bandaríkj-
unum.
Pamela Tiffin leikur dóttur aðal-
forstjóra Coca Cola. Hún er nítján ára.
Þetta er önnur myndin sem hún leik-
Sjón er sögu ríkani
Sjón er sögu
ríkari-þér hafiá
aldrei séó hvitt
Ifn jafn hvftt.
Aldrei séó litina
jafn skæra. Reynió
sjálf og sannfærizt.
OMO sþarar þvottaefnið
OMO er kröftugra en önnur þvottaefni, og
þar sem þér notió minna magn, er 0M0
notadrýgra. Reynió sjálf og sannfaerizt!
0M0
skilar
hvítasta
þvottinum!
KHOMO m/iosw
36
FALKINN