Fálkinn - 07.08.1963, Blaðsíða 17
jf n P*;_. ,
pii- - * |g
-f- á Jf:i r-
roskna enska konu. Það hefði glatt hana
að heyra þetta, því að hún dáist að
Englendingum og fyrsta sinn, sem hún
sýndi sig opinberlega, var á enskri
tízkusýningu í Moskvu.
Nina gengur á flatbotna skóm og er
lítil sundurgerðarmanneskja í klæða-
burði.
Krustsjov á við sín vandamál að
stríða. En hann er harður í horn að
taka, duglegur, snjall og margt fleira.
Kona hans hefur sínum skyldum að
gegna og enginn getur sagt, að hún geri
ekki skyldu sína. Hún var þrátt fyrir
allt virkur kommúnisti áður en hún
kynntist Krúsjov. Hún gegnir skyldum
sínum með krafti, sem virðist alveg
ópersónulegur.
Krustsjov brosir aldrei opinberlega
til konu sinnar, hún brosir heldur ekki
til hans. Hann faðmar og kyssir hvern
sem er, en hann lætur sig ekki dreyma
um að bjóða koúu sinni í fangið. Þegar
hann situr í herbergi, sem hún kemur
inn í, lítur hann ekki við henni og hvor-
ugt þeirra virðist sérlega hrifið af, að
láta mynda sig saman, þegar þau hafa
verið í heimsókn í vestrænum löndum.
En engin hreyfing og ekki eitt orð
Krustsjovs fer fram hjá Ninu.
Sextíu og eins árs gömul hélt Nina
Petrovna eigin blaðamannafund í
Bandaríkjunum.
Eitt af því, sem hún sagði þar, var,
að hún hefði gifzt manni sínum 1924,
Framh. á bls. 29.