Fálkinn - 14.08.1963, Blaðsíða 31
— Já, en Sam, strax og þú hefur
sigrað Bason, getur þú fengið að berj-
ast við Python.
— Geturðu séð hurðina, sagði Sam
og opnaði hana. — Og komdu þér svo
út. Ég skal svei mér þá finna götuhorn
við tækifæri, þar sem ég get gert upp
við Python. Ég fellst ekki á skilyrði
þin.
Svartur fór — og hvernig átti Sam
nú að afla fjár í hring handa Sonju.
Hann fékk lánað hjá Kandinsky og
nokkrum mínútum síðar stóð hann fyr-
ir framan sýningarglugga gullsmiðs.
Inni í kjólaverzlun frú Rítu, þar sem
Sonja vann, sat Jói undir búðarborð-
inu og safnaði tuskupjötlum, saman.
Hann ætlaði að nota þær til að klæða
með bás nashyrningsins litla. Þegar
Sam kom inn í búðina rétti hann hönd
sína fram og gaf Sonju hringinn, sem
hann var ný búinn að kaupa.
— Það er nashyrningurinn minn, sem
hefur sent hann, sagði Jói.
Sonja stóð með hringinn og var alltof
ringluð til að geta sagt nokkuð.
— Sonja, sagði Sam svo, — ég er
mjög glaður, að geta lýst því yfir, að
við erum nú trúlofuð, en . . en sjálft
brúðkaupið verður að bíða enn um
stund.
Sonja varð vonsvikin og beizk og
skyndilega rétti hún Sam hringinn
aftur.
— Bíða, sagði sagði hún. — Á ég að
halda áfram að bíða. Ég hef beðið í
fjögur ár, Sam. Hún snerist á hæl,
sneri baki í Sam og hóf vinnu sína á ný.
Sam fór á eftir henni. — Gott, sagði
hann.
— Við skulum fara til borgardóm-
ara, Sonja, og láta gefa okkur saman
í hvelli.
Sonja var hnakkakert. — Ef ég gift-
ist. sagði hún, vil ég giftast almenni-
lega .. . ekki svona í flýti... og af því
að þér finnst þú neyddur til þess.
Allt í lagi, hrópaði Sam — Þú skalt
fá almennilegt brúðkaup, Sonja. Lofaðu
mér þá að fara í þessa keppni. Láttu
mig þá hálsbrjóta mig. Hann skundaði
út úr búðinni.
Jói safnaði tuskupjötlunum saman og
spurði undrandi: Hvers vegna talið þið
svona mikið um að Sam eigi að berjast.
Sam getur ekki tapað. Við höfum jú
nashyrninginn minn.
Gerðu út af við hann! Hrópin komu
frá áhorfendum og var beint til Bully
Bason, sem hafði tekið Sam í „hálft
Nelsonsbragð.“
Svarti-ísak fylgdist áhyggjufullur
með keppninni og gegnum opinn glugga
reyndi Jói, sem stóð fyrir utan, að
fylgjast með einstökum atburðum
keppninnar, en hann var einnig dálítið
áhyggjufullur. Hann var með kiðling-
inn — nú beygði hann sig niður og
lyfti honum upp til að hann gæti séð,
hvað fór fram. — Sérðu, það lítur út
fyrir að Sam sé að tapa? Rödd Jóa
skalf.
— Þú verður að gera eitthvað, nas-
hyrningur!
Sam hafði æft sig vel, en ekki með
tilliti til fjölbragðaglimu. Nú bjargaði
kiukkan honum og hann 'gekk örmagna
í hornið sitt.
Þegar klukkan hringdi til næstu lotu,
strauk Jói ástúðlega hið vanskapaða
horn kiðlingsins. Rödd hans var lág, en
mjög innileg, þegar hann sagði við
kiðlinginn.
— Það er núna — það er núna, sem
þú átt að sjá um, að Sam vinni. ..
Nú varð það að gerast. Sam réðst
eins og hann væri óður á Bully Bason,
greip utan um hann og þrýsti hand-
leggjunum að síðum hans um leið og
hann minnti hann á að Bason ÆTTI að
tapa. Já, en nú hefur fólkið að minnsta
kosti enn einu sinni séð, að ég er glímu-
maður, hvíslaði Bason að Sam. Og svo ..
Nú datt Bason á dýnunni nálægt sínu
eigin horni með Sam ofan á sér.
Bardaginn var um garð genginn. —
Dómarinn lyfti handlegg Sam upp til
merkis um að hann hefði sigrað.
Jói faðmaði nashyrninginn sinn.
Áhorfendur hrópuðu húrra. Svarti- ísak
klifraði upp í hringinn og hyllti Sam
sem nýjan glímukappa — og hann
hrópaði út i sal:
Þessi glæsilegi ungi glímumaður hef-
ur þegar skorað á hólm einn af meist-
urum okkar: Python Macklin! Keppnin
mun fara fram hér í hringnum eftir
hálfan mánuð á venjulegum tíma!
Jói gerði það, sem hann gat, til að
hjálpa Bason að æfa Sam — en þegar
þeir hlupu í æfingarbúningum gegnum
East End, gat hann ekki almennilega
Framh. á næstu síðu.
Ferðamenn!
Góður matur
Mikill matur
» *
Odýr matur
Cafeteria (matstofa)
K.E.A. Akureyri
FALKINN
31