Fálkinn


Fálkinn - 25.11.1963, Blaðsíða 10

Fálkinn - 25.11.1963, Blaðsíða 10
 Safnið seðlunum saman og sendið alla í emu - seðlarnir verða að vera klipptir út úr blaðinu. Dregið verður 20. desember 10 fXlkinn VERDLAUNA- GETRAUfJ FÁLKANS SIJNBE/VMl - rakvél SUIXIBEAIVI - strauvél GETRAUNIN: 1. Eftir hvern er þetta erindi? Hvað varð um yður, Austurstrætisdætur, með æskuléttan svip og granna fætur, sem ungir sveinar buðu í bíó forðum og bekkjarskáldin vöfðu í hlýjum orðum? 2. Hér kemur bókarkafli: „Það er þessa nótt, kyrra, vota og kol- dimma nótt í marz, er allir liggja í fasta svefni, að Ragnheiður og Elín vakna hér um bil jafnsnemma án þess að vita strax, hvað hefur vakið þær. „Hér sé guð!“ er sagt í dimmum, lágum róm á glugganum. „Það var guðað á gluggann,“ segja þær báðar í einu til að fullvissa sig um, að þær hafi heyrt rétt. Og báðar þjóta þær í einu fram úr rúminu. „Hver er úti?“ hrópar Ragnheiður við gluggann. „Daði Halldórsson“, er sagt í eyra hennar, með rúðuglerið á milli.“ Hér lýkur bókarkaflanum, og nú er spurn- ingin: Hvað hét faðir þessarar Ragnheiðar? (nafn og föðurnafn hans). 3. Hvað heitir kvæðið, sem þetta erindi er úr? Háa skilur hnetti himingeimur, blað skilur bakka og egg, en anda, sem unnast, fær aldregi eilífð að skilið. Hér kemur þá fjórði hluti verðlaunagetraunar Fálkans. Eins og áður hefur verið skýrt frá, er getraunin með því sniði, að vinningar eru átta. Allt eru það heimilis- tæki, sem við höfum keypt hjá sama fyrirtækinu, O. John- son & Kaaber, og öll af vönduðustu gerðum, Philco, Sunbeam og Vitesse. Stærstu verðlaunin eru Philco ísskápur, sex kúbikfeta, sem kostar 10.693 krónur. Önn- ur verðlaun eru Philco transistor útvarpstæki, sem kost- ar 3349 krónur og þrjátíu aurum betur. Þriðju verðlaun eru Sunbeam hrærivél, sem kostar 2862 krónur, fjórðu vcrðlaun eru Vitesse hárþurrka, sem kostar 1752 krónur, fimmtu verðlaun eru Sunbeam rafmagnspanna, sem kostar 1575 krónur, sjöttu verðlaun eru Sunbeam dósa- opnari, sem kostar 1235 krónur, sjöundu verðlaun eru Sunbeam rafmagnsrakvél, sem kostar 1170 krónur og áttundu verðlaun eru Sunbeam straujárn, sem kostar 568 krónur og fimmtíu aura. ____ ____ KLIPPIÐ HÉR ______ _______ SVÖRIN ERU: 4 1____________________________________ 2 3 NAFN HEIMILI FÁLKINN 11

x

Fálkinn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fálkinn
https://timarit.is/publication/351

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.