Fálkinn


Fálkinn - 16.11.1964, Síða 5

Fálkinn - 16.11.1964, Síða 5
legt líka. Um daginn fór ég í samkvæmi og þar var mikið reykt eins og oft vill koma fyr- ir. Þetta varð mér tilefni þess að ég fór að hugleiða hvort það væri ekki skylda húsráð- enda í samkvæminu að banna sígarettureykingar. Það getur verið að sumum finnist þetta vitleysa en mér finnst það ekki. Og nú langar mig til að heyra álit ykkar á þessu. Vinsamlega svarið mér sem fyrst. Pála. St>ar.- Þaö er nú ekki vist aO allir liafi vitaO þetta meO sigaretturnar eins og þú en marga liefur sjálf- sagt grunaO þaö. VarOandi þetta sem þú ert að segja eru engar gildandi reglur í landslögum þaö bezt veröur vitaö og verður því hver að gera það sem horium réttast þykir. Ef húsráðendur banna tóbaksreykingar á sínu heimili þá er það auövitað sjálf- sagt hjá gestum að fylgja því banni. En slík bannsetning er ókurteisi gagnvart þeim sem reykja. Um rjúpnaveiðar. Háttvirta blað! Það er mikið sport að fara á fjöll með byssur og skjóta nokkur saklaus rjúpnagrey. Menn flengja fjöll fram og aft- ur í leit að þessum fugli og hleypa af hólknum sem þeir frekast mega. Eftirtekjan er ekki alltaf í réttu hlutfalli við skotfæranotkunina. Og þó áhug- inn sé nú geysilegur er mér sagt af fróðum mönnum að hin- ar vopnglöðu rjúpnaskyttur séu með öllu ófáanlegar til þess að fylla út nokkur meinlaus eyðu- blöð um hversu margar rjúp- ur þeir hafi lagt að velli. Þó er mér sagt að ef þessar skýrsl- ur yrðu sómasamlega fylltar út kæmi það fáum að jafnmiklu haldi og rjúpnaskyttunum. Þetta kann að vera sport út af fyrir sig. Kannski eru þeir feimnir við að láta spyrjast hvað þeir skjóta lítið. Annars ætlaði ég ekki að skrifa um þessar skýrslur rjúpnaveiðimanna heldur fara þess á leit við þá að þeir skili sér alltaf á kvöldin svo óvið- komandi menn þurfi ekki að vera að leita þeirra í nátt- myrkri og kannski byl. Þótt drápsgleðin kunni að vera mikil þá er hún bezt með forsjá og lítið verður úr veiðinni ef menn komast ekki aftur til byggða. Annars er mér sama, ekki leita ég. Einn sem ekki fer á rjúpnavciðar, Endursýningar á gömlum myndum. Kvikmyndaþáttur Fálkans, Reykjavík. Fyrst þið eruð að gera ykkur það ómak að hafa vikulega kvikmyndaþætti í blaðinu og kynna væntanlegar myndir er eitt atriði í rekstri kvikmynda- húsanna sem mig langar til að benda ykkur á. Kvikmynda- húsin mættu gjarna gera meira að því að endursýna gamlar myndir sem þau eiga í fórum sínum. Meðal hinna gömlu mynda eru margar ágætar og þegar liðin eru svona fimm ár frá sýningu þeirra er kominn tími til að sjá þær að nýju. Þetta mættuð þið gera að um- ræðuefni. Kvikmyndaunnandi. Svar: Við þetta bréf er þaö að athuga að kvikmyndahúsin hafa ekki sýn- ingarrétt á myndunum nema ákveðinn árafjölda, og jafnvel ekki nema nokkra mánuði. Þegar sá réttur er útrunninn eru mynd- irnar sendar út að nýju. 1 sára- fáum tilfellum mun sýningarrétt- urinn vera lengri en tvö til þrjú ár og í mörgum tilfellum jafnvel ekki nema sex mánuöir. Af þessu leiðir áö kvikmyndahúsin endursýna ekki gamlar myndir nema sára sjaldan. Þó ber þaö viö og þegar þetta er skrifað vitum viö til þess aö Háskólabíó er aö taka til endursýningar hina vinsælu mynd með Alec Gunnies Lady Killers og kannski veröur þegar fariö aö sýna lxana þegar þetta svar birtist. Hvað á að gera? Kæri Fálki! Þú ert alltaf að hjálpa fólki og þess vegna datt mér í hug að vita hvort þú gætir ekki líka hjálpað mér. það er svo svoleiðis að ég er alltaf feitur og það er alveg sama hvað ég reyni að grenna mig það hefur ekkert að segja. Nú langar mig til að vita hvort þú getur ekki gefið mér einhver ráð sem ég get farið eftir til þess að ég sé ekki svona feitur. Mér liggur mikið á svarinu og þess vegna vona ég að þú dragir það ekki voðalega lengi. Ekki birta nafnið mitt. U. Svar: ViO fáum stundum svona bréf og svar okkar er ævinlega á sama hátt: Leitaöu læknis. KRYDDRASPID FÆST í NÆSTU MATVÖRUVERZLUN GLÖÐ BÖRN GERA GLEÐILEG JÓL! Letkföng í miklu úrvali. Sendum heim — og i póstkröfu. VALVER Laugavegi 48 — sími 1-5692 FALKINN 5

x

Fálkinn

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fálkinn
https://timarit.is/publication/351

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.