Fálkinn


Fálkinn - 16.11.1964, Page 22

Fálkinn - 16.11.1964, Page 22
Eftir GIOVAIMNI GtARESCHI Peppone kom alloft heim i þorp sitt, en hann var þó allur annar en áður. Nú bar hann jafnan í hendi skjalatösku með alls konar ríkisskjölum, og hann hafði komið sér upp svip, sem bar því helzt vitni, að allur vandi heimsins hvíldi á herðum hans. Hann heilsaði fólki með ábyrgðarsvip, og jafnvel flokksfélagar hans höfðu ótta af honum. Þegar ein- hver bar upp við hann vanda- mál, svaraði hann með alvöru- þunga: „Ég skal hreyfa mál- inu í Rómaborg". Peppone gekk nú ætíð í svörtum fyrirmannafötum með vandaðan flókahatt á höfði, og hann leyfði sér aldrei að koma fyrir almenningssjónir án háls- bindis. í ræðum hans og grein- um úði og grúði af málfræði- villum, en þar sem persónuleiki hans og veldi var orðinn svo yfirþyrmandi, þorði enginn að minnast á það eða hafa að flími. Don Camillo undirbjó árás sína vandlega og lét loks til skarar skríða klukkan ellefu að kvöldi, er Peppone stóð við húsdyr sínar. — Fyrirgefðu ónæðið, sagði Don Camillo, þegar Peppone sneri lyklinum í læsingunni. — Á ég ekki að skilja það svo, að þú sért einn þessara fátæku sakleysingja, sem prestarnir hafa rúið inn að skyrtunni með því að taka höndum saman við við fjármálasvikara? Peppone hafði opnað dyrn- ar, er ræðu Don Camillo var hér komið, og hann komst ekki hjá því að bjóða prestinum inn. Don Camillo lét hann ekki bíða framhaldsins lengi. — Félagi þingmaður, hélt hann áfram. — Nú er komið að mér að gjalda líku líkt. Þegar ég segi alla söguna opin- berlega, fær fólkið nægilegt aðhlátursefni um allt landið. Bíddu rólegur þangað til kjós- endur þínir komast að raun um það, að þú hefur farið á bak við skattayfirvöldin og komm- únistaflokkinn með þennan getraunavinning, og bættir svo gráu ofan á svart með því að fá þessar tíu milljónir í hendur fjármáiasvikara, einum þessara manna, sem þú kallar við há- tíðleg tækifæri fjandmenn fólksins. Peppone snerist þegar til varnar. — Ég kæri þig fyrir róg- burð, sagði hann. — Þú getur ekki sannað neitt. — Ég mun færa fullkomnar sannanir á þá sögu. Nafn þitt er í bókum fjármálamannsins. Hann sendi þér líka arð af fénu í ávísun, og ég hef númer þeirrar ávísunar. Peppone fann allt í einu þörf hjá sér til þess að þerra svita af enni. — Þú dirfist ekki að beita slíkum Lokaráðum við mig. Don Camillo settist og kveikti í vindilstúfnum sínum. — Þetta eru engin Lokaráð, sagði hann. — Þetta er aðeins verðugt svar við árás þinni. Peppone lét undan síga. Hann fór úr jakkanum og los- aði um hálsbindið. Þegar hann var setztur gegnt Don Camillo, sagði hann: — Þú hefur enga ástæðu til að hefna. Ég tapaði hverjum einasta eyri. — Þér hefur ef til vill hefnzt fyrir þetta? Peppone fann, að nú svarf að honum, svo að hann sneri enn við blaðinu. — Faðir, eigum við að semja um að þú látir þetta niður falla fyrir þrjár milljónir? — Félagi, sagði Don Camillo með þunga. — Þú hefur enga heimild til þess að gera mér slíkt smánartilboð. Þú skalt verða að gjalda sérstaklega fyrir það. Hann tók upp dagblað og breiddi úr því. Síðan benti hann á grein á öftustu síðu blaðsins. — Líttu á þetta, félagi Við vitum, hvað á seyði er. Hér er frá því skýrt, að þér hafi verið falið það mikilvæga hlutverk að velja tíu verðuga félaga til ferðar um Sovétríkin undir þinni stjórn. Ég skal ekki girða fyrir þetta, en jafnskjótt og þú ert farinn úr landi, hleypi ég kettinum úr búrinu. Flokks- félagar þínir munu síðan sjá um að auka við gamanið. Peppone var alveg orðlaus. Hann þekkti Don Camillo vel og vissi því, að hann yrði ekki stöðvaður. — Félagi, hélt Don Camillo áfram, — þú getur reitt þig á, að þetta verður reiðarslag, nema ... tautaði — Nema hvað? Peppone og leit upp. Don Camillo lýsti hiklaust skilmálum sínum og einu bjargarleiðinni, sem Peppone væri fær. Þingmaðurinn hlust- FALKINN

x

Fálkinn

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Fálkinn
https://timarit.is/publication/351

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.