Fálkinn - 16.11.1964, Qupperneq 25
salinn, og hvert hljóðfæri með sinn hljóð-
nema. í einu laginu voru tveir flautuleik-
arar úr sinfóníuhljómsveitinni til aðstoðar
og í öðru óbóleikari. Kvennakór og hann
ekki af lakari endanum aðstoðaði Elly
Vilhjálms í einu laginu, í honum voru
fjórar kunnar söngkonur, Anna Vilhjálms,
Bertha Biering, Helena Eyjólfsdóttir og
* Sigrún Jónsdóttir. Þar var einnig til að-
stoðar í sama lagi sjö manna karlakór,
sem jafnframt hafði enn veigameira hlut-
verki að gegna í enn öðru lagi. Þessi sjö
manna kór var helmingurinn af Fjórtán
Fóptbræðrum, og þegar við smelltum mynd
af þeim, þá sögðu þeir. að nóg væri komið
af nafngiftunum, og báðu okkur blessaða
að fara nú ekki að kalla sig Sjö Fóstbræð-
ur, og auðvitað gerum við það ekki.
Það var rétt, sem Svavar sagði, sum
lögin þarf að taka aftur og aftur. Eitt lagið
tók klukkutíma og korter í upptöku, en
þegar við hlustuðum á það tilbúið þá tók
það tæpar þrjár mínútur. Það var alltaf
eitthvað að koma fyrir, Magnús elti uppi
fölsku nóturnar og Svavar vildi fá skýrari
framburð á textunum. Svona gekk þetta
frá klukkan eitt til klukkan hálf sex.
Fjórir og hálfur tími eða 270 mínútur,
sem tekur svo ekki nema tólf mínútur
að hlusta á, þegar platan er tilbúin.
Hvað tekur svo við? spurðum við Svav-
ar, um leið og hann hafði kvatt fólkið,
þakkað því fyrir og var að pakka niður
trommusettinu. Nú verður segulbands-
spólan send til fyrirtækis í Noregi, sem
kemur músikinni af segulbandinu inn á
j silfurplötu, en eftir henni er svo steypt.
Þetta gengur fyrir sig eins og þegar maður
var að steypa herdáta í gamla daga, nema
hvað þetta er miklu margbrotnara. Plöt-
• urnar eru steyptar við visst hitastig,
síðan kældar, plötumiðinn er steyptur með
á plötuna, en áður hefur hann verið búinn
til í prentsmiðju í Osló.
Eftir þrjár vikur eða svo er platan til-
búin til afgreiðslu, kemur til landsins með
Framhald á bls. 31.
1. Henry J. Eyland magnaravörður situr
við magnaraborðið og stjórnar hljóðritun-
inni. Hann sér inn í salinn gegnum glugga
og fylgist með öllu.
2. Hluti af hópnum kominn fram í magn-
| araherbergið og hlustar á eitt lagið eftir
I að það hefur verið hljóðritað. Frá vinstri:
ij Ragnar Bjarnason, Elly Vilhjálms, Svavar
, Gests, Magnús Ingimarsson, Garðar Karls-
t son og Henry J. Eyland magnaravörður.
3.. Sjö söngmenn úr Fóstbræðrum aðstoð-
uðu Ragnar Bjarnason í einu laginu og
Eily í öðru.
4. Elly Vilhjálms (í miðið) og kvennakór-
inn sem aðstoðaði hana. Frá vinstri:
j Bertha Biering, Sigrún Jónsdóttir, Elly,
Helena Eyjólfsdóttir og Anna Vilhjálms.