Fálkinn


Fálkinn - 19.07.1965, Page 14

Fálkinn - 19.07.1965, Page 14
KLÁMFEIMGIIXI EÐA ... ekki. Kvikmyndaeftirlitum norðurlanda hefur gengið illa að koma sér saman um hvort ýmiss atriði í kvikmyndinni „Villa Vennely" skuli teljast klám eður ei. Sérstaklega hefur atriði sem myndin sýnir staðið í þeim og nú látum við ykkur dæma, lesendur góðir. Myndin hefur verið algerlega bönnuð í Svíþjóð, enda eru Svíar allsendis óvanir svona mynd- um eins og kunnugt er. — Sú léttkiædda leikur eitt aðalhlutverkið og heitir Birthe Pedersen, (ef það skiptir annars nokkru máli). Hvalurinn er haldinn einhverri pest og læknirinn er kominn til að gefa honum meðalið. Það eru ekki allir hvalir sem geta stillt sig um að gleypa lækni sinn ef hann gerist svo djarfur að fara með hendina niður í kok á þeim. En þessi hvalur hafði ekkert á móti því, ekki sízt vegna þess, sennilega, að pillan hafði verið sett inn í vænan kolkrabba, af gómsætri tegund. EB&HmBHIHMMn mmmm Það var gleðskapur hjá skipakónginum Onassis. Meðal gesta var Melina Mercouri, sem við þekkjum úr kvikmyndinni „Phaedra“ og „Aldrei á sunnudögum". Gleðskapurinn fór fram 1 litlu veitinga- húsi. Gestirnir gerðu sér ýmislegt til skemmtunar. Þeir dönsuðu uppi á borðum, sungu og slógust og grýttu borðbúnaðinum og brutu stóla, og sitthvað fleira gerðist. Allir virtust skemmta sér hið bezta ekki sízt skipakóngurinn, sem greiddi með ánægju nærri 80 þúsund krónur fyrir drykkina og skemmdirnar. Það virðist ekki mikil upphæð þegar litið er á neðri myndina. Veitingasalur- inn virðist vera lagður í rúst. Hvað skyldi Callas ségja þegar hún fréttir þetta? 14 FALKINN

x

Fálkinn

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Fálkinn
https://timarit.is/publication/351

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.