Fálkinn - 19.07.1965, Side 25
Effir
LELAIMD
STOWE
m RlKIR
DJðFULL
í MANNSMYN D
verða ríkjandi í hjarta hvers
Haitibúa!“
Árið 1946 varð hann skrif-
stofustjóri í heilbrigðismála-
ráðuneytinu og síðar atvinnu-
málaráðherra. Þegar Paul Mo-
gloire hershöfðingi varð for-
seti árið 1950 hrapaði vonar-
stjarna Duvaliers um tíma.
Hann varð að fara huldu höfði
í tvö ár, en ásamt Clement
Barbot, sem einnig var læknir,
notaði hann tímann til að auð-
velda sér að ná völdum.
Árið 1957 voru kosningar
auglýstar, og Voodoo-læknir-
inn bauð sig fram. Stefnuskrá
hans var fólgin í því, að stefna
bæri að afríkönsku Haiti, og
að útiloka ætti múlatta frá öll-
um embættum. Með aðstoð
hersins vann hann svo kosn-
ingasigur. Fyrsta verk hans var
að útnefna Barbot sem vara-
forseta, og lét hann síðan
stofna Tonton Macoute, sem
samanstóð af afbrotamönnum
og því um líku.
Þegar Duvalier hafði loksins
náð völdum, varð hann eins og
hákarl, sem hefur smakkað
blóð og hóf að iosa sig við and-
stæðinga sína. Á fyrsta hálfa
mánuðinum voru hundrað
manns fangelsaðir án dóms og
laga. Fleiri tugir manna voru
drepnir af Tonton Maeoute á
fyrtsa stjórnarári forsetans.
(Barbot hefur síðar sagt, að
Duvalier hafi skipað honum að
drepa 300 manns á ári.) Du-
valier bannaði öll vinnu- eða
stúdentasamtök, en tók sér
sjálfur æðsta vald í dómsmál-
um, og setti þá presta úr emb-
ætti, sem neituðu að viður-
kenna hann.
Margir af andstæðingum
hans björguðu lífi sínu með
flótta. Tonton-böðlarnir fundu
aldrei mótframbjóðanda forset-
ans, en hins vegar fundu þeir
tvo bræður hans, og brytjuðu
þá niður.
Af sömu miskunnsemi voru
ritstjórar þeirra blaða, sem
voru andstæð Duvalier hand-
leiknir. Áður en hann hafði ríkt
í eitt ár var hann búinn að
láta handtaka sjö, flestir voru
síðar pyndaðir og drepnir. Ung-
frú Rimpel, sem var ritstjóri
tímaritsins ’Escale fordæmdi
aðferðir Duvaliers. Daginn eft-
ir var ráðizt inn á heimili henn-
ar af vopnuðum Tontonum.
Þeir börðu hana fyrir framan
æpandi börn sín, þar til hún
missti meðvitund, fóru síðan
með hana í hús utan við borg-
ina, þar sem þeir misþyrmdu
henni og nauðguðu, og skildu
hana síðan látna eftir í blóði
sínu.
Þau fáu blöð, sem enn starfa
á Haiti, tala um hinn ódauð-
lega snilling og göfuga hugsuð,
forsetann.
„Ég held varla, að lögregla
mín sé grófari en lögregla ann-
arra landa,“ sagði Duvalier við
erlenda blaðamenn.
Framh. á bls. 40.
FALKINN
25