Fálkinn - 19.07.1965, Qupperneq 30
una á nýjan leik. Hún sat og las í blaði, þegar hún
sá tilkynningu um að á næstunni mundi verða háð
keppni í heimabæ hennar um titilinn „Fegursta ítalska
konan í Túnis“.
CLAUjJIA CARDINALE — Bardot Ítalíu eins og
hún hefur stundum verið nefnd — er stærsta tromp
ítalskra kvikmynda síðan Loren og Lollobrigida börð-
ust um fyrsta sætið á vinsældalista almennings.
Sagan um „La Cardinale" er Öskubuskuævin^ýri
ítalskra kvikmynda. Sagan gæti hafizt á orðunum
Einu sinni var ...
Einu sinni var ung stúlka, 17 ára gömul, elzt af sex
systkinum sem bjó hjá foreldrum sínum í Túnis. For-
eldrarnir voru ítalskir útflytjendur, sem bjuggu við
mikla fátækt. Claudia var búin að gera framtíðar-
áætlanir sínar. Hún sagðist vilja verða kennslukona.
Það var skortur á kennslukonum og Claudia hafði
mikla möguleika til að láta þennan draum verða að
veruleika því að hún var í senn duglegur og gáfað-
ur nemandi, sem hafði verið svo lánsöm að fá inni í
stúlknaskóla í Túnis. Hún skar sig úr hópnum þegar
á fyrstu skólaárunum — ekki í klæðaburði því hann
var jafn einfaldur og óbrotinn og hann gat verið, lág-
hælaðir skór, sléttur kjóll. — En hún var frábrugðin
öðrum í útliti. Yndisþokki hennar leyndi sér ekki:
stór dökkbrún augu sem gáfu andlitinu sérstæðan
svip, svart mjúkliðað hár sem stakk í stúf við næst-
um glæra húðina. Hún gerði ekkert til að vekja at-
hygli á útliti sínu. Þvert á móti. Hún var í eðli sínu
feimin og hlédræg. Jafnvel systkinum hennar fannst
nóg um þetta, og ásökuðu hana fyrir að setja ljós
sitt undir mæiiker.
Að skólagöngu lokinni sótti hún um kennslustarf
og var skipuð kennslukona í litlu þorpi í einni af
vinjum Suður-Túnis. Hún var á réttri hillu, að eigin
dómi. Framtíðin virtist liggja ljós fyrir henni, skýrt
afmörkuð. En stundum fer allt öðruvísi en ætlað er.
Hún var í fríi, á heimili foreldra sinna, árið 1957,
ánægð að hafa fengið tækifæri til að hitta fjölskyld-
Yerðlaunin voru lystireisa til Feneyja í sambandi
við kvikmyndahátíðina þar í borg. Claudia gerði sér
ekki háar hugmyndir um útlit sitt og það hvarflaði
ekki að henni að gefa kost á sér í fegurðarsamkeppn-