Fálkinn - 19.07.1965, Page 36
HVAD GERIST ÞESSA VIKU
Hrúturinn, 21. marz—20. apríl:
Þessi vika ætti að geta orðið ákaflega
skemmtileg, og tað má búast við að þeir sem ó-
kvæntir eru lendi í ástarævintýri sem verður
sérstaklega ánægjulegt. Þeim sem kvæntir eru,
er ekki ráðlagt að vanrækja heimili sín og
fjölskyldu um of.
NautiB. 21. apríl—21. mai:
Þú ættir að varast að taka fljótfærnislegar
ákvarðanir og á þetta sérstakiega við um mál-
efni fjölskyldu þinnar og heimilis. Þú æt.tir að
fara í frí ef þess er nokkur kostur í stað þess
að halda áfram vinnu með hálfri orku.
Tvíburarnir 22. maí—21. iúnl:
Það eru hagstæðar afstöður til ferðalaga
þessa viku og þá fremur stuttar ferðir og heim-
sóknir til vina og ættingja. Láttu bollalegg-
ingar um málefni sem ekki snerta þig koma í
veg fyrir að þú sinnir þínum áhugamálum.
Krabbinn. 22. iúni—23. júlí:
Þú hefur t.ilhneigingu til að ræða vandamál
þín við utanaðkomandi. Það ættir þú ekki að
gera því það er betra fyrir þig að glíma við
vandamálin sjálf. Góðar afstöður til að vinna
að fjármálunum.
tijónib. 21. júlí—23 áoúst:
Þ<5 að allt virðist leika í lyndi verður þó vart
einhverra leiðinda innan fjölskyldu þinnar og
þú þarft á því að halda að vera lipur í um-
gengni. Persónuleg málefni þín eru undir hag-
stæðum áhrifnm.
Mevian 24. áaúst—23 sept.:
Þú ættir ekki að leggja trúnað á allt. sem þér
er sagt þessa viku því margt af því er ósatt
og getur skaðað bæði þig og aðra og fyllt þig
afbrýðisemi og vantrausti til þeirra sem ekki
eiga það skilið.
Vogin, 24. sept.—2S. okt.:
Þú færð tækifæri til að kynnast nýju fólki
og eignast nýja og skemmtilega vini. Þú ættir
þó ekki að vanrækja gamla vini þína af þeim
sökum að þeir nýju virðast skemmtilegri. Forð-
astu árekstra við maka binn.
Drelcmn. 24 olct.—22. nðv.:
Fyrrihluti vikunnar er heppilegur til ferða-
laga og það hefur mikið að segja fyrir þig að
fjármálin gangi að óskum. Þú getur aukið vin-
sældir þínar og komið því svo fyrir að yfir-
menn þínir taki t.illit til þín.
Bogmaðurinn, 23 nóv.—21. des.:
Þú munt hafa hug á skemmtiferðalögum en
verið getur að þar komi til nokkurra árekstra
við aðra fjölskyldumeðlimi þegar skipuleggja
þarf ferðalag fyrir fleiri en þig einan. Vertu
tillitssamur þegar um þessi vandamál cr að
ræða.
Steinc/eitin, 22 des.—20. janúar:
Þú hefur tilhneigingu til að taka áhættur í
sambandi við fjármálin og at.vinnu, þú ættir
því að athuga vel þinn gang áður en þú tekur
mikilvægar ákvaröanir. Þú ættir að sýna meir
tillitssemi við þína nánustu.
Vatnsberinn, 21. janúar—19. fcbrúar:
Gefðu þér góðan tíma til að athuga hvað
það er sem þú raunverulega vilt og reyndu
að komast að einhverri niðurstöðu. Það gæti
verið um ástarævintýri og jafnvel hjónaband að
ræða hjá þeim, sem ógiftir eru.
| Fislcarnir, 20. febrúar—20. marz:
Jafnvel þó þér finnist þú vera of upptekinn
til að geta tekið þér frí þá ættir þú samt að
taka þér frí þessa viku og skemmta þér eftir
i föngum, það mui ii verða mikil upplyfting fyrir
í þig og dagleg störf ganga betur á eftir.
36
FALKINN