Fálkinn - 04.04.1966, Síða 24
BENEDIKT VIGGÓSSON
SKRIFAR FYRIR
UNGA FÓLKIÐ
ÍSLENZKUR
KABARETT
í AfJSTER-
BÆJARBÍÖI
Skömmu eftir að Ella Fitzgerald söng
fyrir hálftómu húsi í kvikmyndasal
Háskólans efndi Pétur Pétursson, fyrr-
verandi útvarpsþulur, núv. „agent“
fyrir íslenzka skemmtikrafta, til eins
konar kabaretts í Austurbæjarbíói og
þar var ekki messufall, enda miðaverð
mjög sanngjarnt. Þeir, sem komu þarna
fram í sviðsljósið, voru allir af íslenzku
bergi brotnir.
Fyrstur reið á vaðið Karl Guðmunds-
son hin gamalkunna eftirherma, og
setti hann fund skoðanalausra gáfu-
manna. Síðan túlkaði hann raddir fund-
armanna með skemmtilegu látbragði á
þann hátt, sem Karl er frægur fyrir.
Karl var ekki einn um að flytja eftir-
hermur, því þrír komu til viðbótar, og
er svo að sjá, að um auðugan garð sé
að gresja í þessum efnum.
Sérstaklega vil ég minnast á 18 ára
bráðefnilegan pilt, Vilhjálm Gíslason,
sem gerði mikla lukku með sínum bráð-
snjöllu raddstælingum. Mér var tjáð, að
hann hefði aðeins komið fram tvisvar
eða þrisvar áður opinberlega, og er því
þessi frammistaða hans þeim mun eftir-
tektarverðari.
Ekki má gleyma hinum vinsæla Karli
Einarssyni, en hann flutti sitt efni af
festu og öryggi. Sérstaklega vakti það
athygli, er hann brá fyrir sig rödd
okkar vinsæla leikara, Árna Tryggva-
sonar. Sú túlkun var frábær, enda fékk
hann að launum ákafan hlátur og dynj-
andi lófaklapp.
Síðastur í þessum kvartett kom „sá
með skeggið" Jón Gunnlaugsson, og
túlkaði raddir margra valinkunnra
manna á bráðskemmtilegan hátt. Jón
er líka góður söngmaður, og lét hann
sig ekki muna um að bregða fyrir sig
rödd Guðmundar Jónssonar.
Þá komu þarna fram Ómar Ragnars-
son, Savanna tríóið, Heimir og Jónas
og fleiri. Lestina rak svo hinn mjög
•••<
Meðfylgjandi mynd af Vilhjálmi Gísla-
syni er tekin í Austurbæjarbíói.
svo vinsæli sextett frá Akranesi, Dúmbó
og Steini, sem sannaði snilli sína eins
og oft áður. Það ber að þakka Pétri
Péturssyni fyrir þetta lofsverða fram-
tak sitt í frekar einhliða skemmtana-
lífi höfuðstaðarins.
J Landið er Bandaríkin. Staðurinn er næturklúbbur og
• klukkan er 12 á miðnætti. Það er nýbúið að kynna skemmti-
• atriðið. Algjör þögn ríkir, og eftirvæntingin liggur í loftinu.
• Síðan kveða við áköf fagnaðarlæti, er blökkustúlkurnar
• þrjár, sem eru orðnar heimsfrægar undir nafninu Supremes,
• koma fram í sviðsljósið og byrja að syngja lagið I hear a
• symphony. Þær vinna hug allra viðstaddra með fáguðum
• söng og þokkafullri sviðsframkomu. Dian, Mary og Florence,
• allar sem ein.
J Þær kynntust fyrst í gagnfræðaskóla, og þar var tríóið
• stofnað. Söngkennari skólans var hrifinn af þessu uppá-
• tæki þeirra og leiðbeindi þeim eftir megni á kvöldin eftir
• að skólanum lauk. Þær voru fullar áhuga og æfðu svo til
J hvert einasta kvöld. En kunningjar þeirra hristu höfuðið
2 yfir þessari „vitleysu“. sem hafði gripið þær. En elja þeirra
• og áhugi á söngnum bar fljótlega árangur því söngkennar-
• inn, velunnari þeirra, kom þeim á samning hjá hljóm-
J plötuútgáfunni TAMBA — MOWTON. Til að byrja með
voru þær nafnlausar, eins konar aðstoðartríó, sem lét heyra
í sér í fjarlægð, á meðan viðkomandi söngstjarna túlkaði
lagið.
Loks kom þó að því, að þær sungu inn á sína fyrstu
plötu, en það var einmitt lagið Where did our love go? og
þar með voru þær ekki lengur óþekkt tríó, því lagið komst
í efsta sæti vinsældalistans, bæði í Bandaríkjunum og Bret-
landi. Síðan kom lagið Baby love, sem komst einnig í efsta
sætið í U.S.A. Stop in the name of love sló einnig í gegn
og komst einnig í efsta sæti í Bretlandi. I hear a symphony
skipaði einnig efsta sætið í heimalandi þeirra, og nýjasta
lagið þeirra, My world is empty without you, er ofarlega
á listanum, þegar þetta er skrifað.
Lagasmiðirnir frægu Holland og Dozir hafa samið öll
lögin þeirra, og þykja þeir afburðagóðir á þessu sviði. Það
hefur m. a. komið til tals að þeir semdu fyrir The Beatles.
Stúlkurnar hafa ferðazt víða og haldið söngskemmtanir,
m. a. í Englandi og Þýzkalandi. Spurningunni, hvort þetta
væri ekki erfitt svöruðu þær:
Nei, alls ekki. Við finnum aldrei til þreytu. Líf okkar
er fullt af svo mörgu óvæntu og ánægjulegu, að við gleym-
um hreinlega að hvíla okkur. Fagnaðarlæti fólksins er
okkar eina hvíld.
Dian er höfuðpaurinn i tríóinu og aðalsöngvarinn. Hún
hefur látið hafa eftir sér, að ef hinar tvær hætti, þá myndi
hún halda áfram og þá sem einsöngvari, og að flestra
áliti liggur henni sú leið opin.
24
FALKINN