Fálkinn


Fálkinn - 04.04.1966, Page 34

Fálkinn - 04.04.1966, Page 34
• Stjörnur nr Sterkt nýtt vopn í baráttu yðar gegn tannskemmdum ^ \ HIÐ NYJA GIBBS FLUOR TANNKREM STYRKIR TENNUR YÐAR GEGN SYRUM OG VERÐUR AHRIFA VART INNAN 21 DAGS: Um leið og þér byrjið að bursta tennurnar með Gibbs Fluor tannkremi verði þær ónæmar fyrir skaðlegum áhrifum munnvatnssýranna. Allir vita að sýrur valda tannskemmdum. Gibbs Fluor tannkrem styrkir glerung tannanna og gefur þeim meira mótstöðuafl gegn skaðlegum sýrum. Eftir þrjár vikur fer að gæta áhrifanna og þá getið þér varið tennurnar betur en nokkru sinni fyrr. Hin leynilega Gibbs formúla sem styrkir glerung tannanna táknar stórkostlega framför á sviði tannvarna, þess vegna er Gibbs Fluor tannkrem sterkasta vopnið í baráttu yðar við tannskemmdum. Þess vegna ættuð þér að byrja að nota Gibbs Fluor tannkrem strax í dag. Eftir 21. dagsnotkun Gibbs Fluor tannkrems, kvölds og morgna, hafa tennur yðar öðlast þann styrkleika, sem nauðsynlegur er gegn skaðlegum áhrifum sýranna. Hvernig Virkar Gibbs Fluor? Gibbs Fluor inniheldur efnasamsetningu sem hefur styrkjandi áhrif á glerung tannanna, sem nefnist “stannous fluoride”, sem ekki er hægt að nota í venjulegt tannkrem. Það þurfti fremmstu og reyndustu tannkremaframlciðendur Bretlands til að uppgötva formúlu þá, sem Gibbs Fluor tannkremið byggist á. Um leið og þér byrjið að nota Gibbs Fluor tannkrem virka efni þess á tvennan hátt, til að minnka upplausnarhættu glerung tannanna, svo bæði “stannous” og “fluoride” hafa þýðingarmiklu hlutverki að gegná. Framh. af bls. 32. hef gert mér of háar hugmynd- ir um sjálfan mig, gáfnafars- lega. Mér hefur aldrei tekizt að lifa ástarlífi, vegna þess að allir voru svo hversdagslegir í samanburði við sjálfan mig. Þetta hefur smám saman eyði- lagt líf mitt, og í dag er ég mjög einmana. En þýðingarlaust er að spyrja, hvað ég myndi gera, ef ég ætti þess kost að lifa lífi mínu á ný. Útilokað er að hverfa til baka, og allar ósk- ir í þá átt eru heimskan einber. WILLIAM HOLDEN: ★ Ég eyðilagði ★ hjónaband mitt. Eftir tuttugu ára hamingjusamt hjónaband urðu mér á þau ör- lagaríku mistök að fara frá konunni minni, vegna þess að ég féll fyrir annarri. Innan- tómt ástarævintýri setti punkt- inn við hjúskap okkar, og ég uppgötvaði ekki fyrr en of seint, að hin konan var ekki verð þessarar fórnar. Maður verður óhjákvæmi- lega að gjalda fyrir slík mis- tök, og það hef ég líka gert. Ég hef iðrazt þeirra mjög, og ef ég ætti þess kost að standa aftur á vegamótunum, myndi ég hugsa mig um, áður en ég kastaði mér blindandi út í eitt- hvað, sem engin framtíð er í, en er byggt á yfirborðslegum tilfinningum eingöngu. REX HARRISON: ★ Ég hefði átt að gera ★ meira fyrir konuna, ★ sem ég missti. Nú er ég hamingjusamur og ánægður maður. Þegar ég var 58 ára vann ég Oscars verð- launin. Ég er kvæntur Rachel Roberts og okkur kemur ákaf- lega vel saman. En ég á mikla sorg að baki. Ég gerði ekki nóg fyrir konuna, sem ég elskaði á stuttu, en viðburðaríku skéiði ævinnar. Það var Kay Kendall, sem dó úr blóðkrabba. Kay var falleg og fræg, og hjónaband okkar var mjög hamingjusamt. Kay var tilfinninganæm og gat fengið hinar fráleitustu hugmyndir og langanir. Ég man að hún sagði mér frá öllu því, sem hana langaði til að koma í verk í lífinu. Það var skömmu áður en hún varð veik, en ég hristi höfuðið yfir hug- myndaauðgi hennar og varð að tala höstuglega til hennar Einfaldar reglur, sem tryggja heilbrigðar tennur Það eru tvær grundvallarreglur, sem tryggja heilbrigðar tennur: (i) Burstið tennurnar reglulega tvisvar á dag. (2) Farið til tannlæknis tvisvar á ári. Munið að regluleg tannhreinsun er undirstaða heilbrigðra tanna og góms, hreins og fersks munns. Með þvi að bursta tennurnar vel f jarlagið þér mat, sem annars myndar skaðlegar sýrur. Burstið upp og niður, einnig bak við tennurnar, —verið vandvirk. Farið reglulcga til tannlæknis, það t sparar yður óþægindi og sársauka. Keilbrigðar tennur eru dýrmæt eign: þær auka gott heilsufar, vellíðan og fegurð. Hirðið því vel um tennur yðar. Látið fjölskyldu yðar byrja að nota Gibbs Fluor TANNKREM 1 Gibbs fluoride X-GF 2/ICE-B041 34 FALKINN

x

Fálkinn

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Fálkinn
https://timarit.is/publication/351

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.