Fálkinn - 04.04.1966, Blaðsíða 53
gufu, kakan þakin með því.
Skreytt með örmjóum ræmum
af yzta gula sítrónuberkinum.
ÖMMU-M AREN GSTERT A.
65 g smjör
lVz dl sykur
4 eggjarauður
Wz dl hveiti
lVz tsk. lyftiduft
5 msk. mjólk
100 g valhnetukjarnar
4 eggjahvítur
2V4 dl sykur
3 dl þeyttur rjómi.
Smjör og sykur hrært létt.
Eggjarauðunum hrært saman
við, einni og einni í senn
Hveiti og lyftidufti sáldrað
saman við, hrært saman ásamt
mjólkinni. Deigið látið í 2 vel
smurð tertumót. Gróft söxuð-
um valhnetukj örnunum stráð
ofan á.
Eggjahvíturnar stífþeyttar,
sykri blandað saman við. Sett
ofan á deigið. Bakað við vægan
hita um 150° í 30—40 mínútur.
Látið kólna.
Botnarnir lagðir saman, mar-
engs látinn snúa upp og niður,
með stífþeyttum rjóma. Einnig
er gott að hafa bragðmikla
ávexti með eins og t. d. aprí-
kósur.
SÓLVEIGAR DRAUMUR
4 egg
2V4 dl sykur
1 msk. kartöflumjöl
200 g möndlur
5 bitrar möndlur
Til að væta í með:
Vz dl vatn
2-3 msk. sykur
4 msk. koníak eða
rom.
Skreytt með:
3 dl rjómi
Súkkulaði
Ribsberjahlaup.
Eggjarauður og sykur hrært
létt, kartöflumjöli og möluðum
og flysjuðum möndlum bland-
að saman við. Eggjahvíturnar
stífþeyttar, skornar saman við
deigið, sem látjð er í vel smurt
og brauðmylsnustráð mót.
Kakan bökuð við 175° í nál.
45 mínútur. Kakan vætt í mót-
inu, þegar hún hefur kólnað
dálítið. Sett á fat, skreytt með
þeyttum rjóma, gróft flöguðu
súkkulaði og ribsberjahlaupi.
VATNSDEIGSHRIN GUR.
3 dl vatn
100 g smjör
120 g hveiti
3 egg
1 tsk. sykur
Innan í:
2 dl þeyttur rjómi
Gott aldinmauk
Súkkulaðibráð:
50 g hjúpsúkkulaði
V2 msk. volgt vatn
60 g flórsykur
1% msk. vatn.
Smjörið brætt, vatninu hellt
saman við, hveitið þeytt saman
við. Deigið hrært yfir eldi, þar
til það losnar frá potti og sleif.
Deigið kælt dálítið, eggin þeytt
saman við eitt og eitt í senn.
Deiginu sprautað í hringi á
vel smurða og hveitistráða
plötu. Bakað við 225° í 5 mín-
útur síðan við 200°, þar til
hringurinn er þurr. Athugið
að opna ekki ofninn fyrstu
10—15 mínúturnar. Hringurinn
kældur á grind, klofinn og
fylltur með aldinmauki eða
ávöxtum og þeyttum rjóma.
Súkkulaðibráð smurð ofan á:
Súkkulaðið brætt í skál ásamt
volga vatninu. Á meðan er flór-
sykur og vatn hrært saman.
Súkkulaðið hrært saman við.
Skálin látin standa í volgu
vatni, þar til bráðin er hæfi-
lega þykk.
FRÖNSK DÖÐLUKAKA.
200 g smjörlíki
125 g sykur
75 g púðursykur
4 egg
250 g hveiti
1 tsk. lyftiduft
4 msk. sherry
100 g döðlur
50 g hjúpsúkkulaði
100 g flysjaðar
möndlur
5-6 rauð kirsuber.
Smjörlíki og sykur hrært vel,
saman — þeytt eggin hrærð
smátt og smátt saman við.
Hveiti og lyftidufti hrært
saman við ásamt sherry.
Döðlurnar skornar smátt,
velt upp úr hveiti (þá sökkva
þær ekki til botns), hrært í
deigið.
Deigið sett í vel smurt mót.
Kakan bökuð við 170° í 1V2
klukkustund.
Þegar kakan er köld, er
hún hulin að ofanverðu með
bræddu súkkulaðinu. Flöguð-
um möndlum stráð yfir. Hálf-
um kirsuberjum raðað eftir
miðjunni. — Glæsileg og góð
kaka.
Framh. á bls. 58.
Þrjár kökur í einni.
Tekökur.
Vatnsdeigshringur.
FÁLKINN 53