Fálkinn


Fálkinn - 04.04.1966, Qupperneq 56

Fálkinn - 04.04.1966, Qupperneq 56
S/icMW /\r \AtfoA R^AKóT Eítir Vilborgu Dagbjartsdóttur LABBI SÝÐUR GRAUT Fyrst í stað fannst Labba gam- an að fara á barnaheimilið, en svo tók bann upp á kenjum. Mamma mátti ekki um þvert bús ganga, hann hékk í benni nauðandi, vildi ekki borða grautinn sinn, og þegar bann átti að fara í úlpuna og vett- lingana lagðist hann í gólfið og orgaði. Mamma varð óttalega þreytt á honum. Svo kom henni ráð í bug. Þegar Labbi var sofnaður prjón- aði mamma banda honum bláa vettlinga með hvítum röndum, setti svo snúru í vettlingana til þess að Labbi myndi ekki týna þeim. Morguninn eftir fór mamma snemma á fætur. Þegar Labbi opn- aði augun var hún við rúmið bans. „Nú skulum við koma í eldhús- ið og búa til morgunmatinn,“ sagði mamma. Þau Labbi fóru framíeld- húsið. Mamma lét vatn í pott og fékk Labba haframjölspakkann. Hann átti að fá að látamjöliðípott- inn. Það gerði ekkert til þó Labbi léti mikið mjöl í pottinn, því að mamma bætti bara vatni í hann. Svo stóð Labbi á stól og hrærði í grautnum meðan bann var að sjóða. Þetta varð mikill og góður grautur. Allir borðuðu sig sadda og samt var eftir af honum. Það setti mamma í skál. En þegar hún fór með Labba fram í forstofu til að klæða bann í utanyfirfötin sagði Labbi: „Þú mátt ekki slökkva í eldhúsinu. Það á að vera ljós hjá grautnum.“ Þá hló mamma og Labbi hló líka og þau voru í góðu skapi á meðan hann fór í úlpuna. En þá kom það allra skemmtilegasta. Mamma sótti nýju, bláu vettlingana og gaf Labba þá. Hann varð mjög glað- ur. Vettlingarnir voru bæði mjúkir og hlýir: „Nú verður puttunum ekki kalt,“ sagði Labbi. Svo bætti hann við: „Aumingja þumalputt-| inn, hann er hérna alveg einsam- all. Honum leiðist.“ „Nei,nei,“ sagði mamma. „Hon- um finnst bara gaman að eiga sjálfur berbergi.“ Svo fóru mamma og Labbi af stað á barnaheimilið og Labbi hlakkaði til að sýna hinum krökk- unum nýju, bláu vettlingana sína. Dódó virti málvcrkið fyrir sér og var allt annað en trúgjarn á svipinn. „Ekki skaltu reyna að telja mér trú um, að þetta málverk sé meira en þúsund ára gamalt,“ sagði hann og glotti háðslega. „Stíllinn er afar nýtízkulegur." „Ekki er það nú rétt,“ svaraði forngripasalinn og skoðaði verkið gaumgæfilega. „Ég 56 FÁLKINN fullvissa yður um jiað, herra sæll, að þessi rammi er sjaldgæft og mjög fag- urt sýnishorn af forn-rómverskri skraut- Iist.“ „Umm-humm!" sagði Dódó hálf- vandræðalegur, því að hann vildi láta alla halda, að hann hefði gott vit á list. „Eg efast ekkert um, að ramminn sé ekta fomgripur. En skrýtið finnst mér að sjá svona nýtízkulegt málverk í þess- ari fornu umgjörð.“ „Ég veit satt að segja ekkert hvernig á því stendur“, játaði kaupmaðurinn hreinskilnislega. „En ef þér viljið kaupa rammann skal ég láta myndina fylgja með ókeypis!1* Framh. í næsta blaði. BANGSI OG LISTA- VERKIÐ

x

Fálkinn

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fálkinn
https://timarit.is/publication/351

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.