Stúdentablaðið - 01.05.1998, Page 10
L i s I i r
Stúdentablaöiö
1 0
Fjaðrir, vor og
Verðlaun fyrir 10 efstu ljóðin í ljóða-
samkeppni Stúdentablaðsins og
Torfhildar voru afhent á Astro
skömmu fyrir páska. Alls bárust 73 ljóð í
keppnina og var dómnefnd vandi á hönd-
um við val þeirra efstu, að sögn Kristjáns
Árnasonar, formanns dómnefndar. Auk
hans sátu þau Ármann Jakobsson íslensku-
fræðingur og Heiða Jóhannsdóttir bók-
menntarfæðingur í dómnefndinni. Þeir
keppendur sem unnu til verðlauna en ekki
voru viðstaddir afhendinguna er bent á að
nálgast þau hjá Hákoni Skúlasyni, for-
manni Torhildar, í Bankastræti 11 fyrr en
síðar.
1. verðlaun
Fjaörir
2. verðlaun
Uppeldi vorsins
heigulleg
sólnefna vetrar
hokin f torfbæjarskugga
heimóttarleg hrakleg
kerling
vafin vaömáli
grárra skýja
hristu burt vorið af pilsufaldinum
og í guðanna bænum
reyndu að koma því til manns
Steinar Bragi, nemi í bókmennafræði
3. verðlaun
Hótelherbergi
Ajaxaðu yfirborðið
jafnvel nýmálaðir veggirnir
ná aldrei að hylja þig
eins og ofmáluð mella
kaldranaleg gríman afhjúpar
tómleikann og angistina
innkoma og útferð skammvinnra gesta
vætlandi úr hverju smáatriði
rykinu á plastrósunum og staðlaðri loftbirtunni
faðmur þinn
fundarstaður einmanaleika og söknuðar
falinna synda og fjarlægra landa
sál þín sundurtætt
samin að alþjóðlegum smekk
hér vil ég fótbrotna
hér vil ég liggja og bíða björgunar.
Sigurbjörg Þrastardóttir, nemi í hagnýtri fjöl-
miðlun
5. verðlaun
Náin í fjarlægð
Pöruð skuggafiðrildi
dansa
í eigin þyngdarleysi
Taktur svefns þíns
örvar slátt vængjanna
Af þeim
sáldrast draumfræin
yfir augnlok þín
Þau spretta uppúr Ijósinu
Þiðna á vanga mínum
og berast til þín
þegar ég opna lófana
1.
Örendur
á sundi
í vfkinni.
manstu eftir drukkna ítalanum
grátgjarna Perúbúanum
eða finnska söngvaranum
sem gæddi þig lífi f smá stund
Steinar Bragi, nemi í bókmenntafræði
Sigurður Harðarsson, nemi í hjúkrunarfræði
6. verðlaun
2.
Fluglæsir
klónum í
fýlsunga.
3.
Nauðvörn
snareygir
hreiður sitt.
4.
Endur
sendast
um sundið.
5.
Skotinn
stelkur
í bringukoll.
6. Draga
látrabjörg
í bú.
7.
Samyrkja
náttljóð
sefuglur.
Sigurbjörg Þrastardóttir, nemandi í hagnýtri
fjölmiðlun
Lífróður
4. verðlaun
Slóðir Fikrað frá barði ýtt úr sprunginni vör og þó
Ég er framhleypinn strigaskór ég er gliðnandi horn f nótt fannst mér miða til baka grunar forlögin um græsku
í olnboga ég er hafmóður andi ég er
rennandi sviti á baki vakandi
ég stikla á stóru ósléttu berglendi finn að það rís því næstu nótt
móti ráninni hallar á bakborða kemur hvalkýrin
heyri þær skella á klöppinni hvínandi skeljarnar og hlærað mér
man að ég varðveiti brotin djúpt f handraða
hætti að muna því hylurinn hóstar við brúnina ég stjakaðu þér frá og með
rataði áður en slóðinni
smám saman missi ég áttir giftu þig þegar
nú úr stað
steinþegja klappirnar
mér finnst ég einsigla
h ó t e I
á sífellt minnkandi ísjaka.
Sigurbjörg Þrastardóttir, nemi í hagnýtri fjöl-
miðlun
7. verðlaun
Daria III
Brýrnar
sem tengja
eyjar manneskjanna
eru örfínar
og viðkvæmar
og liggja yfir hyldýpi
sem enginn
ætti að rýna í
of lengi
því öll hyldýpi
hafa hvöss og seiðandi augu
og geta gertallra sálir
að sínum
í regnbogalitu árvatni
hyldýpisins
dansa heyrnarlausir fiskar
við eigin tónlist
Eins og bræður þeirra
í undirdjúpum hafsins
sem þekkja ekki dagsbirtuna
Þekkja þeir ekki annað en lífsgleðina
og halda sjálfa sig
eina um að hafa hana höndlað
því
þeir hafa ekki kynnst þér
Sigurður Harðarson, nemi í hjúkrunarfræði
8. verðlaun
Einmanaleiki
Og enn leið
Valentínusardagurinn
Margrét Dóra Ragnarsdóttir
9. verðlaun
Bátsferð
Þegar ég sigldi bátnum mfnum í þokunni var ég
aldrei
hræddur um að villast. Það var alveg sama hvað
neðarlega hún lagðist, eða hve þétt hún var, það
sá
alltaf í báða bakka. Ég hræddist það eitt að þok-
an
yrði þyngri en vatnið og þrýsti mér niður í gegnum
yfirborðið. Þá átti ég það ráð að draga djúp and-
ann,
leggja árar, láta reka, og hugsa um flugvélar.
Jóhannes Dagsson
10. verðlaun
Úr sýnisbók
Það er eins
með þetta Ijóð
og önnur.
Það missti Ijómann
um leið
og það varð skyldulesning.
Hafþór Ragnarsson, nemi I íslensku